Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 11

Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 11
Sunnudagur 10. febrúar 1974. TtMINN* 11 Hér eru tveir synir Rosenberg-hjónanna, þeir Robertog Michael, sex og tiu ára gamlir. Myndin var tek in, er þeir voru aft koma úr heimsókn til foreldra sinna i Sing-Sing-fangeisinu. lögum, og fékk þyngsta dóm, sem þar er hægt að fá, 15 ára fangels'i. En fangaárin eru eins og allir vita styttri en almanaksárin, og eftir 9 ár var Klaus Fuchs látinn laus og fór hann þá beint til Rússlands. Siðar settist hann að i Dresden i Austur-Þýzkalandi, og var talinn einhver mesti njósnari heimsins, sem hvorki FBI né M 15 hafði tek- izt að ná fyrr en það var orðið of seint. Hann var gerður að yfirmanni kjarnorkurannsóknar- stöðvar i Dresden. Hverjir voru njósnar- arnir að baki Fuchs? Raymond var nafn þess, sem tók við upplýsingum frá Fuchs um kjarnorkusprengjuna. Fuchs þekkti ekki sjálfur hið rétta nafn Raymond, og hann gat heldur ekki gefið allt of nákvæma lýsingu á honum: Hann var þéttvaxinn, um fertugt, nokkuð búlduleitur. Hann var ekki kjarnorkufræðingur, en eftir þvi, sem Fuchs vissi bezt var hann efnafræðingur. Þaö var eins og að leita að nál i heystakki, að ætla að finna rétta manninn eftir þessari lýsingu i hinu mikla mannhafi Bandarikj- anna. Hversu margir skyldu ekki efnafræöingarnir vera i Banda- rikjunum? í New York einni voru á skrá 75.000 fyrirtæki á sviði efnafræðinnar. Eftir ótrúlega nákvæma rannsókn, sem náð hafði út i hvern krók og kima Bandarikjanna fóru menn að fá mjög ákveðnar grunsemdir, og að lokum gat FBI beint spjótum sin- um að einum ákveðnum manni. Hann hélt Harry Gold. Eftir stutt- ar yfirheyrslur játaði hann. Hann var félagi i njósnahring, sem starfaði fyrir Rússa, og hann hafði sjálfur farið með upplýsing- arnar til rússneska vararæðis- mannsins i New York, Anatoli A. Yakolev. Málið fór smátt og smátt að skýrast, og ekki leið á löngu þar til FBI gat látið taka David Greenglass, sem unnið hafði I kjarnorkurannsóknarstofunni i Texas, fastan. Hann hafði einnig gefið Rússum mjög þýftingar- miklar upplýsingar. Greenglass var mjög samvinnuþýður, senni- lega til þess eins að bjarga sjálfum sér. Hann skýrði frá þvi, að Ethel og Július Rosenberg, systir hans og mágur, væru foringjar njósnahringsins. Nánasti aðstoðarmaður þeirra væri Morton Sobell. Allt var þetta fólk Gyðingar, og sannir kommúnistar að auki. Það var nú tekið fast. Það má þykja næsta undarlegt, að FBI skuli ekki fyrr hafa veitt þessu fólki athygli, þegar þess er gætt, að fyrrver- andi njósnari og kommúnisti, Elisabeth Bentley, hafði nokkru fyrr komið af frjálsum og fúsum vilja til FBI og veitt alrlkis- lögreglunni upplýsingar um kommúnistískt njósnaranet, og þá meðal annars nefnt Harry Gold. Málaferlin gegn Rosenberghjónunum Nú hófust ein merkilegustu réttarhöld, sem fram hafa farið i Bandarikjunum eftir siðari heimsstyrjöldina, og sem fjöl- margir fylgdust með af geysileg- um áhuga. Gold og Sobell játuðu allt. Hins vegar héldu Rosenberg- hjónin þvi fram allt til hinztu stundar, að þau væru saklaus. Þau voru handtekin i ágúst 1950, og i april árift eftir voru þau dæmd — hjónin voru dæmd til dauða, en Sobell i 30 ára fangelsi. Sjálfur fékk Greenglass ekki nema 15 ára fangelsisdóm fyrir nákvæmlega sömu afbrot og hinir. A næstu 27 mánuðum var allt gert, sem hægt var til þess að fá dómnum yfir Rosenberg-hjón- unum breytt. Sjö sinnum var málinu áfrýjað, sjö sinnum var það tekið fyrir i hæstarétti lands- ins, án nokkurrar breytingar á dómsorðinu. Að lokum' visaði Eisenhower á bug beiðni um náðun. Fá dómsmál hafa valdið jafnmiklum heilabrotum en einmitt þetta. And-ameri'sk bylgja gekk yfir hinn vestræna heim, ekki sizt á Norðurlöndum. Stór orð voru viðhöfð um réttar- farið i Bandarikjunum og um FBI, sem likt var við Gestapo Þýzkalands. Sagt var að hér væri verið að fremja morð með aðstoð yfirvaldanna. Bandariskur rithöfundur llkti máli Rosenberg-hjónanna við mál þýzka málarans Willi Goettl- ing, sem tekin var fastur af sovézkum yfirvöldum i Austur- Berlin 17. júni 1953. Hann var dæmdur til dauða án opinberra réttarhalda, sagður hafa verið njósnari. Siðan hafði hann verið tekinn af lifi, og allt þetta mál tekið 24 klukkustundir. Enginn hafði hreyft andmælum. Tveimur dögum siðar voru Rosenberg- hjónin tekin af lifi, nær þrem árum eftir að þau voru handtekin og eftir 27 mánaða málaþjark. Allur heimurinn stóð á öndinni og fylgdist með. Margar ástæður lágu til þess, að fleiri en rétttrúaðir kommún- istar mótmæltu aftöku hjónanna. Margir töldu þau saklaus, enda þótt margt hefði komið fram i vitnaleiðslunum sem var þeim andstætt. Þar við bættist að margir litu svo á, að dómurinn væri óréttlátur, þar sem njósnar- arnir, sem höföu reynzt sam- vinnuþýðir yfirvöldunum i málaferlunum fengu vægari dóm fyrir sömu afbrot. Enn aðrir héldu þvi fram, að dómararnir einkenndust af Gyðingahatri, og mætti sjá, að það hefði haft áhrif á dómarana, að þeir voru að dæma i málum fjögurra Gyðinga. Svo mátti heyra suma spyrja: Voru ekki Rosenberg-hjónin dæmd vegna þess að þau voru kommúnistar? Það var engin furða, að menn skyldu spyrja, þvi Joseph R. McCarthy var einmitt á hápunkti valdaferils sins og Evrópúbúar sáu I honum upphaf fasismans. Kommúnistaofsóknir hans urðu til þess að baka Bandarikjamönn- um mikla óvild erlendis. Jafnvel hinir ihaldssömustu stjórn- málamenn horfðu á aðgerðir McCarthys með mikilli skelfingu og óttuðust áhrif þau, sem hann hafði á hugsunarhátt landa sinna. Þurftu Sovétmenn á upplýsingunum um kjarnorkusprengjuna að halda? Nú eru liðin tuttugu ár frá þvi Júlíus og Ethel Rosenberg voru tekin af lifi, og flestir hafa gleymt þvi hvað málið vakti mikla athygli og umtal á sinum tima. Voru Rosenberghjónin sek? Eða var þetta dómsmorð? Málið hefur ekki upplýstst ennþá, en margt bendir til þess, að þau hafi verið njósnarar, þótt þau færu i gröfina með leyndarmál sin. Enn þann dág i dag eru eftir leifar af njósnaranetinu, sem þau tilheyrðu, þótt ekki séu þær mikl- ar. Meðal þeirra njósnara, sem tókst að komast undan frá Banda- rikjunum, þegar Rosenberg- málið komst i hámæli, voru kanadiski Gyðingurinn Morris Cohn og kona hans. Þau komu aftur fram i sviðsljósið árið 1961, þegar þau voru handtekin i Eng- landi, en þar gekk Morris undir nafninu Peter Krogen, og hann og kona hans ráku þar bókaverzlun. Þau voru félagar i njósnahring Gordons Lonsdales, sem hét öðru nafni Konon Molodý. Þessi njósnahringur hafði sent upplýsingar til Sovétrikjanna um fimm ára skeið, og aflað Sovét- mönnum mikillar vitneskju um helztu hernaðarleyndarmál Eng- lands. Þessi njósnahringur var að lokum afhjúpaður fyrir tilstilli leyniþjónusta Bandarikjanna, Kanada og Englands, sem höfðu verift að vinna saman af meiri alvöru eftir að Rosenberg-málið kom upp. Var það að þakka njósnum Rosenberg-hjónanna, að Sovétmönnum tókst að framleiða kjarnorkusprengjuna ? Areiðanlega ekki. Hin stórkostlega framför, sem átt hafði sér stað á sviði visinda og tækni i Sovétrikjunum, réð þar áreiöanlega miklu, og trúlega hafa Sovétmenn alltaf verið rétt á hælum Bandarikjamanna i þess- ari framleiðslu. Sennilega hefðu Sovétmenn getað búið til kjarnorkusprengjuna án upplýsinga þeirra, sem þeir fengu frá Bandarikjunum, á nokkurn veginn sama tima og þeir gerðu það að lokum. Rússneski visindamaðurinn Igor Kurchatov þekkti öll aðalatriðin i sambandi við framleiðslu kjarnorku- sprengjunnar nokkru fyrr en starfsbræður hans i Bandarikjun- um, ef treysta má staðhæfingum bandariska blaðsins Time. I blaö'inu var þvi einnig haldið fram, að Rússarnir hefði á mörgum sviðum verið komnir lengra en visindamennirnir i Bandarikjunum um þetta leyti. Spurningin er sú, hvort dómurinn yfir Rosenberghjónun- um hefði orðið jafn þungur, ef menn hefðu vitað fyrir vist, hversu langt Rússarnir voru komnir á sviði kjarnorkuvisind- anna. Það var algjörlega rangt, og einungis áróðursbragð, að segja, að Rosenberghjónin hefðu gert Sovétrikin að kjarnorku- veldi. En það er ekki hægt að fullyrða neitt um þessi mál. aðeins leiða getur að hinu og þessu. Njósnarinn var sekur — en ^ar sleppt Bandarikin eru land andstæðn- anna. Það eru oft á tiðum glæpa- menn og stjórnmálamenn, sem berjast um völd og frægð, og mismunandi mikiðandlega bilað- ar kvikmyndastjörnur, sem vekja þar hvað mesta athygli. En þetta fólk er þó ekki i meirihluta i Bandarikjunum. Það er heldur ekki hinn táknræni Bandarikja- maður. 1 þessu stóra landi eru annars konar manneskjur, sem mega ekki vamm sitt vita. og reyna eftir fremsta megni að vera heiðarlegar i daglegum viðskiptum við annað fólk. Sjálfstætt fólk, opið fyrir nýjung- um og frjálslegt i hugsunarhætti. Um þetta fólk er ekki mjög mikið talað, en það hefur þó oft töluverð áhrif i raun og veru, og getur ráðið úrslitum i stjórnmála- heiminum og i samfélaginu yfir- leitt. Allir þeir, sem urðu uppvægir út af Rosenberg-málinu hefðu mjög gjarnan átt að kynna sér Judith Coplon, sem einnig var njósnari. Hún var ung og vel gefin háskólamenntuð kona, og var i ábyrgðarstöðu i dómsmála- ráðuneytinu, en FBI velur einmitt fólk i stöftur sem hennar. Hun varp einnig njósnari fyrir Rússa. Kvöld nokkurt i marz 1949 var hún tekin föst i götu i New York. þar sem hún var i fylgd með Yalentin A. Gubitschev, l'ulltrúa Sovétrikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. 1 tösku Judith Coplons fundust skjöl. sem hefðu sannar- lega átt að nægja til þess að hún fengi fyrir ferðina. sém sannur njósnari. Þar voru m.a. uppiýsingar. sem hún haffti stolið úr skjalasafni FBl. og ætlaði sér að afhenda Rússunum. Hún var dregin fynr rétt. Kviðdómurinn neitaði hreint og heint að trúa skýringum hennar um að þarna liefði aðeins verið Framhald á 3 6. siðu. Mikil mótmælaalda reis, þegar dómurinn yfir Ethel og Júiius Rosenberg var kunngerður. Myndin var tckin i 17th Avenue I New York, nokkrum stundum áftur en taka átti hjónin af lífi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.