Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 12
12
TÍMINN "
Suivnudagur 10. febrúar 1974.
Ódýr matur
og góð
þjónusta
AUK hins milda og marglofaða loftslags, þá býður
Malta upp á verðlag, sem talið er vera eitt hið hag-
stæðasta i Evrópu i dag.
T.d. er hægt að borða kvöldverð á veitingastað fyrir
200 krónur og er þá innifalið vin með matnum. Há-
marksverð á slikri máltið á fyrsta flokks veitinga-
stað er um 500 krónur og verður enginn vonsvikinn
af þeim kvöldverði. í kaupbæti fær ferðamaðurinn
góða þjónustu og hið vingjarnlega viðmót, sem ein-
kennir Möltubúa, en þeir tala allir ensku auk
móðurmálsins, sem er blendingur af arabisku og
itöslku.
Möltubúar eru nær allir kaþólskir, enda er mikið
um að vera á eynni um páskana, til ánægju og yndis
ferðamönnum jafnt sem innfæddum.
Geta vauo ur
þrem ferðum
Tvenn verðlaunin í ferða-
getraun Tímans eru ferð á
vegum Feröamiðstöðvar-
innar, Aðalstræti 9, og er
hún til Miðjarðarhafseyj-
unnar Möltu.
Um páskana verða farnar
3 hópferðir til Möltu á
vegum Ferðamiðstöðvar-
innar: 6.til 16. apríl, 7. til 20.
apríl og 9. tiI 20-apríl, — og
getur vinningshafi get-
raunarinnar valið úr
þessum þrem ferðum.
Flogið verður með Flug-
félagi Islands, Loftleiðum
og British Airways.
Mögulegt er að f ramlengja
ferðirnar með viðstöðu í
London í bakaleið.
Loftslag á Möltu í apríl er
sérstaklega milt, og hita-
stig um hádaginn frá 20 til
30 stig á Celsius.
Verð á Möltu er afar hag-
stætt, og sem dæmi má
nefna, að bflaleigubf 11
kostar 400-500 krónur á dag
með ótakmörkuðum kíló-
metraf jölda.
r Kubbur
staddur?
KUBBUR litli — strák-
hnokkinn, sem heilsar dag-
lega upp á lesendur Tím-
ans, — er um þessar mund-
ir á ferðalagi um ýmis
lönd. Svo sendir hann
Tímanum myndir af sér
frá hinum og þessum stöð-
um, — en hann lætur þess
ekki getið, hvar hann er
staddur í hvert skipti —
það verður verkefni
áskrifenda Tímans í
„Ferðagetraun Tímans"
að f inna það. Kubbur lætur
þó þriggja nafna getið, —
og eitt er það rétta.
Rétt til þátttöku i Ferða-
getrauninni hafa allir
áskrifendur Timans. Þeim
skal bent á að klippa get-
raunamyndirnar út úr
blaðinu, jafnóðum og þær
birtast, og geyma þær
þangað til getrauninni er
lokið. Með síðustu mynd-
inni i getrauninni birtist
sérstakur seðill fyrir svör-
in. Á honum verða allar
spurningarnar endurtekn-
ar, og þegar hann hefur
verið útfylltur, skulu þátt-
takendur í getrauninni
senda hann tii blaðsins.
Jafnframt getrauninni
mun Tíminn birta ýmsar
gagnlegar upplýsingar um
ferðir til sólarlanda.
Hér að ofan birtist 2.
myndin í getrauninni.
Kubbur er staddur á sól-
skinseynni Möltu. Hann er
að virða fyrir sér frægan
helli á eynni. Hvað skyldi
hellirinn vera kallaður:
Guli hellirinn — Blái hellirinn — Rauði hellirinn?
Þau eru af ýmsum gerftum farartækin á Möltu.