Tíminn - 10.02.1974, Síða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 10. febrúar 1974.
Vandaðar vélar
borga
LOFT
KÆLDU
dictttarvélamar
Með eða án framdrifa
Fullnægja ströngustu kröfum
Hagsýnir bændur velja
sér hagkvæmar vélar, þeir
velja
dráttarvélar viö sitt hæfi
Nokkrar stærðir Deutz drdttavéla til afgreiðslu strax
HFHAMAR
VeLADEILD SlMI 2-21-23
TRYGGVAGoTU REYKJAVIK
Komi upp hegðunar-
vandkvæði eða tauga-
veiklunareinkenni hjá
barni eða unglingi, leitum
við gjarnan aftur í frum
bernsku hjá viðkomandi,
að skýringu á eðli
atferlisins. Er búizt við að
sambandið milli móður og
barns hafi verið erfiðleik-
um bundið og barnið hafi
skort öryggi og umhyggju
á fyrstu mánuðunum eftir
fæðingu. En er ástæða til
að leita ennþá lengra aftur
— allttil fósturskeiðisins —
til þess að finna skýringu?
Blaðamaður hafði nýlega viðtal
við sálfræðinginn Lisbeth Fanny
Brudal og spurði hana þessarar
spurningar, en hún hefur mikið
rannsakað þetta vandamál.
v — Fjöldi taugaveiklaðra barna
hefur aukizt á siðustu árum. Við
vitum að i mörgum tilfellum er
orsakarinnar fyrir taugaveiklun
hjá barni að leita til sambands-
leysis milli móður og barns á
fyrstu árum barnsins. En er sam-
bandið milli móður og barns eitt-
hvað, sem hefst á þvi augnabliki
er barnið fæðist og hvilir i örmum
móðurinnar, eins og við oftast
gerum okkur i hugarlund? Hefst
sambandið ekki um leið og konan
verður vanfær?
Það er mikilvægara en nokkru
sinni, að kona, sem er vanfær lifi
rólegu lifi, lifi ekki i spennu, að
hún taki tillit til þess að hún beri
barn undir belti sér, heldur
Brudal áfram. Eigi kona við
sálarleg bandkvæði að striða
meöan á meðgöngutima stendur
eru miklar likur á þvi að þau hafi
áhrif á barnið sem hún gengur
með.
Sigmund Freud var á þeirri
skoðun að timinn, frá þvi að barn
er getið, þar til það fæðist hafi
mikla þýðingu fyrir persónuleika
mannsins siðarmeir. Og C.R.
Stockard gekk svo langt i bók,
sem hann skrifaði árið 1931 um
samhengið milli likama og sálar,
að segja að úrslita-timinn i lifi
mannsins sé fósturskeiðið.
— Eru til sannanir fyrir þessu?
— Á árunum eftir strið voru
gerðar tilraunir á dýrum sem
sýna, að tilfinningar móður og
það sem hún upplifir á
meðgöngutimanum hafi sálræn
áhrif á afkvæmið. Langvarandi
rannsóknir á barnshafandi kon-
um sýna hið sama. Lester Sontag
hefur kannað viðbrögð fósturs,
þegar móðirin hefur verið æst og
óróleg. Ef vanfær kona er róleg
og afslöppuð, hryefir barnið sig
eðlilega og hjartsláttur þess er
reglulegur. Verði moðirin aftur á
móti uppspennt og komist úr jafn-
vægi tilfinnanlega, verður fóstrið
órólegt og hreyfir sig mikið.
Samtimis eykst hjartsláttur þess.
Einnig hefur Sontag sýnt fram á,
að þetta jafnvægisleysi varir
miklu lengur hjá fóstrinu, en
timinn sem móðirin er æst og óró-
legt. Sé barnshafandi konu gert
bilt við og hún verið hrædd i
nokkrar minútur, liða oft fjórar
til fimm timar þar til barnið
fellur i ró aftur.
Mikilvægt atriði var, að þau
börn, sem athuguð voru i móður-
kviði voru einnig rannsökuð eftir
fæðingu. Það sýndi sig, að börn,
sem höfðu búið við mikla spennu i
móðurkviði, vógu i flestum tilfell-
um minna i hlutfalli við lengd en
önnur börn. Einnig voru þau óró-
legri og ergilegr.i eftir fæðingu og
höfðu tilhneigingu til að vera með
spennta vöðva. Þau áttu lika i
erfiðleikum með að melta fæðu og
voru sérstaklega viðkvæm gagn-
vart móðurmjólkinni. Niðurstaða
Lesters Sontags er sú, að barn
sem er órólegt i móðurkviði og
sem er eftir fæðingu órólegt og
ergilegt, sé raunverulega tauga-
veiklað, þegar það fæðist, sem er
afleiðing af óheppilegu umhverfi
á fósturskeiði.
— Munuáhrif af óheppilegu um-
hverfi á fósturskeiði vara til
fullorðinsáranna?
Það eru mjög margir þættir
sem ákvarða þroskann.
Umhverfið, sem barniö fæðist i —
vist. umhverfi getur eytt þessum
óheppilegu áhrifum frá fóstur-
skeiði, meðan aðrar aðstæður
auka þau. Áhrif fósturskeiðsins
erueinnaf mörgum þáttum, sem
við höfum veitt of litla athygli
hingað til.
— Fara allar konur sem eru
ófriskar úr jafnvægi tilfinninga-
lega?
— Flestar, en þó i mismunandi
miklum mæli. Ég held, að þessi
ókunnugleiki sem svo margir
finna til i okkar nútima
samfélagi, meðal annars vegna
þessa mikla hraða og spennu,
sem skapast i borgum — geti átt
sinn þátt i að gera aðstöðu barns-
hafandi konu á okkar timum
erfiðari en hún var áður. Að vera
t.d. aðfluttur til einhvers staðar
getur verið ennþá erfiðara þegar
maður er ófriskur, þvi að þá er
meiri þörf en ella fyrir samband
við annað fólk.
— Það er þvi ekki aðeins
mikilvægt fyrir móðurina að hún
sé ánægð og henni finnist hún
örugg, heldur einnig barnið?
— Það er eins og ég sagði áðan
margir þættir sem ákvarða
þroska barnsins. Og það er
Laust starf
RafmagnsveitaReykjavikur óskar eftir að
ráða starfsmann i innheimtudeild, til
lokunaraðgerða (lokunarmann).
Umsækjendur þurfa að hafa bifreið til
umráða.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
i skrifstofu Rafmagnsveitunnar, Hafnar-
húsinu, 4. hæð.
1» ^ RAFMAGNS
t \ 1VEITA
^ 1 REYKJAVlKUR