Tíminn - 10.02.1974, Síða 22
22
TÍMTNN
Sunnudagur 10. febrúar 1974.
////
Sunnudagur 10. febrúar 1974
Heilsugæzla
Slysavarðstofan: slmi 81200,
eftir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavil: og
Kópavogur simi 11100,
Hafnarfjörður simi 51336.
Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00
— 08.00 mánudagur —
fimmtudags, simi 21230.
Hafnarfjörður — Garða-
hreppur Nætur- og helgidaga-
varzla upplýsingar lögreglu-
varðstofunni simi 50131.
A laugardögum og helgi-
dögum eru læknastofur
lokaðar, en læknir er til viðtals
á göngudeild Landspitala,
simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og
lyfjabúðaþjónustu eru gefnar i
simsvara 18888.
Kvöld, nætur og helgidaga-
varzla apóteka i Reykjavik,
vikuna 8. til 14. febrúar, verð-
ur sem hér segir: Opið er til
kl. 10 að kvöldi i Vesturbæjar
Apóteki og Háaleitis Apóteki.
Nætur og helgarvakt er i
Vesturbæjar Apóteki.
Lögregla og
slökkviliðið
Reykjavik: Lögreglan simi
11166, slökkvilið og sjúkra-
bifreið, simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkra-
bifreið simi 11100.
lfafnarfjörður: Lögreglan
simi 50131, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreiðsimi 51336.
Rafmagn: 1 Reykjavik og
Kópavogi i sima 18230. t
Hafnarfirði, simi 51336.
Hitaveitubilanir simi 25524.
Vatnsveilubilanir simi 35122.
Simabilanir simi 05.
Vaktmaður hjá Kópavogsbæ.
Bilanasimi 41575, simsvari.
Flugdætlanir
Flugfélag islands,
innanlandsflug. Aætlað er að
fljúga til Akureyrar (3 ferðir)
til Vestmannaeyja (2 ferðir)
til tsafjarðar, Egilsstaða,
Norðfjarðar og til Horna-
fjarðar.
Millilandaflug. Gullfaxi fer til
Osló og Kaupmannahafnar kl.
08:30.
Flugáætlun Vængja. Aætlað er
að fljúga til Akraness kl. 11:00
f.h. Til Rifs og Stykkishólms
kl. 16:00. ennfremur leigu og
sjúkraflug.
Mánudagur Flogið verður til
Akraness kl. 11:00 f.hd. Til
Flateytar, Rifs og Stykkis-
hólms kl. 10:00 f.hd. Til
Blönduóss, Gjögurs,
Hólmavikurog Hvammstanga
kL 12:00.
Félagslíf
Prentarakonur.
Skemmtifundur verður
haldinn, á Hverfisgötu 21,
mánudaginn 11. febrúar kl.
8,30. Kvenfélagið Edda.
Kvenfélag Lágafellsóknar.
Fundur verður i Brúarlandi
mánudaginn 11. febrúar kl.
8,30. Bingó. Stjórnin.
Kvenfélag Bæjarleiða Spiluð
verður félagsvist i safnaðar-
heimili Langholtskirkju
þriðjudaginn 12. febr. kl.
20:30.
Sty rktarfélag vangefinna.
Félagið efnir til Flóamarkað-
ar laugardaginn 16. febr. kl. 2,
að Hallveigarstöðum. Mót-
taka á fatnaði og ýmsum
gömlum skemmtilegum mun-
um er i Bjarkarási kl. 9-16.30,
mánudaga—föstudaga. Fjár-
öflunarnefndin.
Kvenfélag Óháða Safnaðarins.
Félagsfundur eftir messu
næstkomandi sunnudag.
Félagsstarf eldri borgara.
Mánudaginn 11. febrúar
verður opiö hús að Hallveigar-
stöðum trá kl. 1.30 e.h. Auk
venjulegra dagskrárliða
verður kvikmyndasýning.
Þriðjudaginn 12. febrúar hefst
handavinna kl. 1.30. e.h.
Sunnudagsgangan 10/2.
verður um Esjuhliðar
Brottför kl. 13 frá B.S.l. Verð
300 kr.
Ferðafélag tslands.
Útboð — Gatnagerð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum i
gerð gatna og lagna i Norðurbæ.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 5 þús.
kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 21. febrúar 1974 kl. 11.
Bæjarverkfræðingur.
Menntamálaráðuneytið
6. febrúar 1974.
Þeir aðilar
sem rekið hafa dagvistunarheimili (leikskóla, dag-
heimili og skóladagheimili)á árinu 1973 og falla undir
lög nr. 29/1973 um hlutdeild rikisins i byggingu og
rekstri dagvistunarheimila, eru beðnir að skila
rekstrarreikningum til menntamálaráðuneytisins
fyrir lok febrúar. Ennfremur eru þeir, sem eigi hafa
sent ráðuneytinu fullkomin gögn um stofnkostnað dag-
vistunarheimila á árunum 1973 og ’74 beðnir að skila
þeim fyrir sama tima.
Verzlunarskólinn:
LEYNI-
MELUR
13
S.P.—Reykjavik — Verzlunar-
skólanemendur sýna á nemenda-
móti sinu á miðvikudaginn n.k.
leikritið Leynimel 13, og jafn-
framt mun Verzlunarskólakórinn
flytja þar rokkóperuna Tommy
eftir brezku hljómsveitina Who,
sem Sigurður Rúnar Jónsson
hefur æft. Almenningi gefst
kostur á að hlýða á og sjá sömu
verk I Austurbæjarbiói á sunnu-
dag, 17. febrúar.
Leynimelur 13 er eftir Emil
Thoroddsen, Indriða Waage og
Harald A. Sigurðsson. Uppruna-
lega er þetta þriggja tima verk,
en I uppfærslu Verzlunarskólans
tekur það um tvo tima. Leikstjóri
er Jón Hjartarson, en leikendur
eru alls 18, þar af 5 börn. Leikhús-
iðFjalakötturinn sýndi .þetta leik-
rit fyrst, 1943, og lék Haraldur Á.
þá aðalhlutverkið. Siðan hafa
mörg leikfélög viðs vegar um
land tekið þetta leikrit til sýning-
ar. Var það sett upp i Iðnó fyrir
nokkrum árum. Þetta er gaman-
farsi út i gegn, og I honum eru ein
þrjú lög. í uppfærslu Verzlunar-
skólans er reynt að halda sama
tiðaranda, og þegar verkið varð
til. Olfar Steindórsson og
Sigurður B. Harðarson leika aðal-
hlutverkin. Æfingar hófust nú um
áramótin.
Könnun í
Fræða-
félagi MH
FRÆÐAFÉLAG MH gekkst um
mánaðamótin fyrir könnun á af-
stöðu nemenda, sem alls eru
skráðir um 820, til herstöðva-
málsins. Um 550 tóku þátt í könn-
uninni, 375 skiluðu svörum og 23
scðlar voru auðir eða ógildir.
41 vildi, að hér væru aðeins
óvopnaðir eftirlitsmenn, 77 vildu,
að hér væru vopnaðir hermenn og
eftirlitsmenn, 215 .vildu, að allt
útlent lið, vopnað og óvopnað,
færi burt, en 14 tóku ekki afstöðu.
11 vildu að herstöðin yrði flutt á
annan stað á landinu, 93 vildu, að
herstöðin væri kyrr á
Keflavikurflugvelli, 225 vildu, að
hún væri lögð niður með öllu, og
17 tóku ekki afstöðu.
131 vildi, að tsland yrði áfram i
Atlantshafsbandalaginu, 188
vildu, að við færum úr þvi, en 33
tóku ekki afstöðu.
Fyrstir á
morgnana
^uoAauijam
Bind9t\l' lUQBbunnua
Lárétt
1) Rikt.- 6) Oþrif,- 8) Þýfi.- 9)
Andúð.- 10) Kaupfélag,- 11)
Óþétt.- 12) Sprænu,- 13)
Bænarávarp.- 15) Svik.
Lóðrétt
2) Flækist,- 3) Fersk,- 4)
Fiflsk.- 5) Fjárhirðir.- 7)
Rósemd,- 14) Sex,-
X
Ráöning á gátu nr. 1606
Lárétt
1) Unnir.- 6) Unn,- 8) Pár,- 9)
Ná.- 10) LLL,- 11) Lúa.- 12)
Ern.- 13) Rán,- 15) Binda.-
Lóðrétt
2) Nurlari,- 3) NN,- 4) Inn-
lend,- 5) Spól,- 7) Glans,- 14)
An.-
■ 1 X % V ■
■ 6 ■
s TH
■ tc ‘ ■
u ■
■ /4 1>/ ■
■ 18 ■
!#ntf I GENCISSKRÁNINC Nr. 26 - 8. fcbrúar I974. SkrátS frá Eining Kl. 13.00 Kaup Sala
5/2 1974 1 Bandaríkjadollar 86, 20 86, 60
8/2 - 1 Sterlingspund 193, 55 194, 65 *
1 Kanadadollar 87,80 88, 30 *
- 100 Danskar krónur 1314, 50 1322, 10 *
- 100 Norskar krónur 1470, 50 1479,00 *
- 100 Sænskar krónur 1821, 80 : 8 32, 40 *
5/2 - 100 Finnsk mörk 2176, 05 ,1188, 65
8/2 - 100 Franrlcir frankar 1718, 70 1729,00 «• 1)
’00 Bclg. -frankar 207, 15 208, 35
100 Svissn. frankar 2666, 95 2681, 45 #
•• 100 Gyllini 3007,50 5025,00 4
- 100 V. -Þyzk mörk 3129.60 314'', 8.0 V
7/2 - 100 Lírur i 3, 02 13, 10
8/2 - 100 Austurr. Sch. 424, 50 426, 00 *
- 100 Escudos 328, 20 330, 10
- 100 Pcsetar :*t-, 30 147, 10
- 100 Ycn 29. 09 29, 26 *
15/2 1973 100 Reikningskrónur-
Vöruykipttaldnd 99, 86 100, 14
5/2 1974 1 Rcikningsdollar-
Vöruskiptalönd 86, 20 86, 60
* Breyting frá síðustu plcráningu.
1) Gildir aöeins-fyrir greiSslur tengda x* inn- og ntOutn
ingi á vdrum.
Útboð — Málarar
Tilboð óskast i að mála húseignina Hjalta-
bakka 2-16 Reykjavik að utan, glugga og
veggi.
Tilboð skal miðast við að verktaki útvegi
tilheyrandi verkfæri, en málning er fyrir
hendi.
Verkinu skal lokið fyrir 15. júni n.k.
Skrifleg tilboð skulu send Steindóri
úlfarssyni, Hjaltabakka 4, Reykjavik,
fyrir 1/3 n.k.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er, eða hafna öllum.
Stjórnin.
Innilegar þakkir til allra vina okkar og vandamanna fyrir
samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar,
tengdamóður og ömmu
Valgerðar Björnsdóttur,
Hverfisgötu 12, Reykjavik.
Leifur Hannesson, Áslaug Stefánsdóttir,
Valgerður Hannesdóttir.ólafur Ólafsson,
Lina Lilja Hannesdottir, Hilmar Pálsson,
Helga Hannesdóttir, Jón Stefánsson,
og barnabörn.