Tíminn - 10.02.1974, Page 27
Sunnudagur 10. febrúar 1974.
TÍMINN
27
þjappað geta þessum leikmönn-
um saman i eina heild — efla fé-
lagsanda.
Ég hef talið það heppilegast, ef
unnt er að fá einn mann, „lands-
liðseinvald”, til að bera ábyrgð á
vali og þjálfun landsliðsins. En
ýmsir aðrir möguleikar koma og
til greina, sem ég er enn með i at-
hugum. Allt mun þetta skýrast,
þegar ljóst er, hvaða landsleikir
fara fram i ár.
Ekki ætti
íþróttahreyfingin
að tapa á því.
— Hætt hefur verið um, að si-
fcllt gerist algengara, að stjórn-
máiamcnn gegni forustuhlut-
verkum hjá iþróttahreyfingunni.
Er þetta óæskileg þróun?
Þvi ætti það að vera óæskileg
þróun? Getur iþróttahreyfingin
tapað á þvi að eiga áhrifamenn i
stjórnmálaflokkunum? Forystu-
menn úr iþróttahreyfingunni hafa
löngum átt sæti i borgarstjórn
Reykjavikur, og ég held,að reyk-
visk iþróttafélög og hreyfingin i
heild hafi vissulega notið þeirra
áhrifa en ekki goldið.
Auðvitað er óæskilegt, ef menn
blanda saman iþróttum og
flokkapólitik, en ég þekki ekkert
dæmi þess, að menn hafi látið
pólitiskar skoðanir sinar hafa
áhrif á störf sin fyrir iþrótta-
hreyfinguna.
I öllu félagsstarfi, hvort heldur
það lýtur að menningu, liknar-
málum, stéttarmálum eða iþrótt
um, veljast þeir menn til forystu,
sem sýnt hafa dugnað og áhuga.
Stjórnmálaflokkarnir hafa löng
um sótzt eftir slikum mönnum til
trúnaðar og fulltingis, og ég tel
það á engan hátt óeðlilegt, eða
óæskilegt.
Skemmtilegasta
verkefnið
Eitt stærsta og skemmtilegasta
verkefni þessa árs er undirbún-
ingur og þátttaka unglingalands-
liðsins i úrslitum Evrópukeppn-
innar i mai i vor. Sá undirbúning-
ur er þegar hafinn af fullum
krafti, piltarnir æfa fjórum sinn-
um i viku, og ráðgerð er sérstök
keppnisför utan um páskana.
Unglinganefndin, Árni Agústs-
son, Gunnar Pétursson og Albert
Eymundsson, er mjög áhugasöm
um að vel takist til i þessari
keppni, og stjórn KSl telur það
sjálfsagt mál að gera allt, sem i
hennar valdi stendur til að greiða
fyrir góðum undirbúningi.
Þvi verður og að treysta, að fé-
lögin hafi góðan skilning á undir-
búningi unglingalandsliðs, þvi
það er sameiginleg viðurkenning
„Heimaleikir” landsliösins verða hér eftir ekki seldir úr landi. Þessi mynd er frá landsleik við Austur-Þjóðverja á Laugardalsvellinum.
til þeirra allra, ef góður árangur
næst.
Vissa undir-
stöðu vantar
— Hvar eru helztu framtiðar-
vcrkefni KSÍ?
Helztu framtiðarverkefni KSÍ
lúta að minu viti að unglinga-
þjálfun og unglingastarfi. Knatt-
spyrna er iþrótt æskunnar, og það
sjónarmið má aldrei gleymast i
kapphlaupinu um verðlaun og
meistaratitla. í fyrsta lagi þurf-
um við að veita fleiri unglingum
aðstöðu til' að stunda iþróttina,
ekki aðeins i þéttbýli, heldur um
land allt. Það þarf að gera með
bættum aðbúnaði, völlum,
kennslu i skólum, fræðslu og
áróðri fyrir gildi iþróttarinnar.
En ekki siður þarf að bæta sjálfa
þjálfunina, menntun þjálfaranna
og æfingarnar sem slikar. Okkar
unglingar hafa sömu hæfileika og
unglingar annars staðar, þeir
Ein af breytingunum, sem fylgja Ikjölfar formannsskipta, er sú, að vetraræfingar landsliðsins verða að
mestu lagðar niður.
[ V 1
Núverandi stjórn KSt. Fremri röö frá vinstri: Jón Magnússon, Ellert B. Schram og Friöjón Friðjóns-
son. Aftari röð: Páll Bjarnason, Bjarni Felixson, Jens Sumarliðason og Axel Kristjánsson.
hafa þrótt og likamsþroska á við
hvern sem er. En einhvern veginn
vantar viss undirstöðuatriði i
þjálfunina, sem sjálfsagt stafar
af þvi, aö oftast fást við unglinga-
þjálfun menn, sem þau störf taka
að sér nneira af vilja en mætti.
Nú, þegar erlendir þjálfarar
streyma til landsins, myndast
skilyrði til þess að færa sér þekk-
ingu þeirra og þjálfunaraðferðir i
nyt. Með auknum fjárráðum fé-
laganna eru meiri likur á þvi, að
þau geti ráðið til sin menntaða
þjálfara og greitt að sama skapi.
Menntun þjálfara fæst hins
vegar ekki með einstaka nám-
skeiðum, heldur með námi og
reynslu, og i þvi sambandi verð-
um við að lita til íþróttakennara-
skólans.
f þeim skóla má ekki einasta
mennta fólk til iþróttakennslu i
skólum, heldur til sérhæfðrar
þjálfunar hjá iþróttahreyfing-
unni, þ.á.m. knattspyrnu. Þau
mál þurfum við nú að skoða betur,
og það er eitt stærsta verkefni
KSI.
Tilboð óskast í
Datzun 220, árgerð 1973
i núverandi ástandi eftir árekstur.
Bifreiðin verður til sýnis i bifreiðaverkstæðinu Armi,
Skeifunni 5, Reykjavik, á morgun (mánudag) frá kl. 10 til
Í7.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, tjónadeild
fyrir hádegi á þriðjudag 12. febrúar 1974.
Knattspyrnudómara-
nómskeið
hefst mánudaginn 1. febrúar kl. 20. i Vals-
heimilinu
Stjórn K.D.R.