Tíminn - 10.02.1974, Page 37
Sunnudagur 10. febrúar 1974.
TÍMINN
37
l
HVERNIG ÉG
KLÚÐRAÐI
KONUNGLEGRI
FRÉTT
Blaðamaðurinn Jimmy Anderson (eitt sinn hjá ,,Daily AAail")
segir í eftirfarandi frásögn, hvernig stórfrétt
rann úr greipum hans þegar hann henti skítugum
bréfsnepli og hvernig hann fékk annað tækifæri.
Ég hellti næstum niður viskiinu
minu. Þegar ég röaðist, þá var
fyrsta hugsunin, að ég yrði að ná i
„Mr. Fish”. Ég varð að komast
að hver yrði svaramaður, hvert
brúðkaupsferðinni yrði heitið
o.s.frv. Einhvers staðar hlaut Mr.
Fish að vera. Ég varð að finna
hann. Las hann ennþá The
Times?
Ég auglýsti eftir Mr. Fish og
•bað hann um að hafa samband við
mig og gaf upp skrifstofunúmerið
mitt.
Næsti dagur leið i eftirvænt-
ingu, en það var ekki fyrr en
morguninn eftir, að rödd i einka-
simanum minum sagði: „Fish
hér”. Ég gat tæplega trúað min-
um eigin eyrum. „Mr. Fish,
Anderson fréttastjóri hér Segðu
ekkert nema hvar við getum
hitzt”.
„Eftir hádegi á sunnudag,
Trafaigar Square. Ég verð með
rós i hnappagatinu”, ságði.hann.
Hvar hann gæti fengið rós á
sunnudegi i febrúar gat ég ekki
imyndað mér. Ég reyndi að vera
fyndinn og sagði: „Allt i lagi. Þú
ættir eiginlega heldur að hafa
Margréti prinsessu meðferðis”.
Hann hló og lagði tólið á.
Það er ekki erfitt að finna mann
með rós i hnappagatinu á Trafal-
gar Square á rökum febrúar-
sunnudegi. Ég sá hann um leið og
ég steig út úr leigubilnum.
Hann stóð þarna vel klæddur
með hatt á höfði. Hann leit út fyr-
ir að vera ungur, en það getur
hafa verið blekking, þvi að hann
var sú manngerð, sem er eins og
unglingur fram á miðjan aldur.
„Mr. Fish geri ég ráð fyrir”,
sagði ég og reyndi að vera spaug-
samur. „Já”, svaraði hann.
„Hversu mikils virði er þetta?”
„Við sjáum til” svaraði ég. „Við
skulum sjá hvað þú hefur i poka-
horninu, áður en við gerum upp”.
Við gengum á næstu krá og hann
sagði mér sitt rétta nafn , sem
kom mér mjög á óvart.
Hann sagði mér allt sem ég
vildi vita, svaramenn, brúð-
kaupsterð og hverjar yrðu
brúðarmeyjar.
Hann gaf mér upp alla söguna,
eða a.m.k. nóg til að lækna sært
stolt mitt. Ég borgaði honum 100
pund, sem ég hafði tekið úr pen-
ingaskáp blaðsins.
Þegar ég kom aftur á skrifstofu
mina, skrifaði ég upp það sem
hann sagði mér.
Daginn, sem Margrét prinsessa
giftist, var ég of önnum kafin til
að horfa á sjónvarpið, enda þurfti
ég þess ekki, þvi að ég vissi þetta
allt fyrirfram.
PÓSTSTIMPILLINN sýndi, að
bréfið var póstlagt i skuggalegu
hverfi i austurhluta London.
Bréfsefnið var kámugt og rifið.
Orðin voru illa skrifuð með
prentstöfum, eins og barn hefði
skrifað! Tvö orð voru vitlaust
stafsett. Innihald snepilsins var
eftirfarandi:
TIL FRÉTTASTJÓRA DAILY
MAIL. MARGARET PRIN-
SESSA ÆTLAR AÐ GIFTAST
TONY ARMSTRONG-JONES.
NANARI FRÉTTIR SIÐAR.
AUGLÝSTU I PERSÓNULEG-
UM DALKI TIMES, ASAMT
SIMANÚMERI.
MR. FISH.
Þetta gerðist I janúar 1960.
Dagurinn hafði verið erfiður og
mig þyrsti eftir hressingu i næstu
krá. Ég athugaði bréfið og hugs-
aði: Hver i ósköpunum er Arm-
strong-Jones? Einhver ljósmynd-
ari? Margrét prinsessa hafðí ver-
ið bendluð við næstum hvern
frambærilegan mann i sinni eigin
stétt.
En Armstrong-Jones! Prin-
sessa að giftast ljósmyndara...
Gott efni, ef eitthvað væri til i þvi.
Ég fór til ritstjórans. Hann
yppti öxlum yfir bréfinu og bauð
mér drykk, sem ég reyndar þáði
ekki, vegna stefnumóts á kránni.
Um leið og ég gekk út úr skrifstof-
unni, henti ég bréfinu i rusla-
körfuna.
Ég var slappur, þegar ég kom
heim um kvöldið. Það reyndist
vera inflúenza og ég var rúmfast-
ur nokkra daga. Kvöld nokkurt
var ég að hlusta á fréttirnar.
Þulurinn sagði: „Rétt i þessu var
að berast tilkynning frá Bucking-
ham höll, að Margrét prinsessa
ætlar að giftast Mr. Anthony
Armstrong-Jones....
yrstir a
morgnana
OFIÐ
LAUGAIIDAGA
KLUKKAN
9-12
KONl
HÖGGDEYFAR
sem hægt er að
stilla og gera við
ef þeir bila.
rr* i
ARMULA 7 - SIMI 84450
Ég vissi að „Mr. Fish” var þar
klæddur sinum beztu fötum og sat
i einu af sætunum, sem voru ætluð
þeim tignustu, sannfærður um að
leyndarmál hans væri vel geymt
hjá mér.
(Þýtt og endursagt gbk)
Prinsessan og Ijósmyndarinn. Fyrsta mync
in, sem tekin var af þeim opinberlego.
HIRB-FOCO
Meistari í
þungavigt
Hiab-Foco kraninn er byggöur rneð þekkingu og reynslu tveggja stórvirkustu
kranafyrirtækja Svíþjóöar. Enda eru Hiab-Foco kranar vafalaust meö þeim traust-
ustu sem völ er á.
Lyftigeta: 0-5 tonn. Armlengdir frá 1,7m til 8,95m. Hiab-Foco er staðsettur
fyrir miöjum palli. Þunginn hvílir á miöri grind, en armlengdin er hin sama beggja
vegna bílsins. Stjórntækin eru beggja megin.
Snúningsgeta Hiab-Foco er 360 gráöur. Fullkomin varahluta- og viðgerðaþjónusta.
SUÐURLANDSBRAUT 16. SIMI 35200
í
4
0
argus