Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 5 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 130 stk. Keypt & selt 25 stk. Þjónusta 31 stk. Heilsa 9 stk. Skólar & námskeið 3 stk. Heimilið 14 stk. Tómstundir & ferðir 7 stk. Húsnæði 21 stk. Atvinna 33 stk. Tilkynningar 3 stk. SAMANBURÐUR VIÐ AÐRA MIÐLA [ KONUR 18-49 ÁRA Á ÖLLU LANDINU ] Lesendur „Allts“ er fólk með áhuga á efni hverrar opnu og eru auglýsingarnar eðlilegur hluti lesefnisins og ein af ástæðum þess að þeir staldra við. Það er með öðrum orðum, vel skilgreindur og áhugasamur hópur, sem skoðar t.d. þessa auglýsingu. Grunnhugmyndin á bak við „Allt“ er að flokka auglýsingar og staðsetja í lesefni sem vekur áhuga þeirra sem auglýsandinn vill ná til. „Allt“ er löngu tímabær og áhugaverður valkostur á íslenskum auglýsingamarkaði. LESTUR/ÁHORF: NOKKUR DÆMI ÚR NÝRRI GALLUP KÖNNUN * *Upplýsingarnar í þessari auglýsingu eru fengnar úr nýafstaðinni fjölmiðlakönnun Gallup í október s.l.. TÍSKA Í FBL FIMMTUDAGUR FJ Ö LM IÐ LA R 0 20 40 60 56.1% FORSÍÐA MBL SUNNUDAGUR 40.2% FÓLK Í MBL MIÐVIKUDAGUR 39.5% FRÉTTIR Á RUV MEÐALÁHORF VIKUNNAR 33% INNLIT ÚTLIT Á SKJÁ EINUM UPPSAFNAÐ 37% IDOL stjörnuleit UPPSAFNAÐ 50% - markvissar auglýsingar - Góðan dag! Í dag er föstudagurinn 7.jan., 7. dagur ársins 2005. Reykjavík 11.10 13.34 15.58 Akureyri 11.20 13.19 15.18 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag „Ég var með skötuveislu hérna í heila viku fyrir jólin og bauð upp á saltfisk, skötu og Steingrím,“ segir Kjartan Halldórsson í Sægreifan- um í verbúð númer 8 við Geirsgötu rétt aftan við Hamborgarabúllu Tómasar. „Það er alveg til í því að ég verði með smá hamingju fyrir fólk á laugardögum, hvort sem það verður saltfiskur eða annar fiskur,“ segir Kjartan sem lengi vel var kokkur til sjós. „Annars ætlum við hérna að sér- hæfa okkur í reyktum fiskafurðum og vera flottir á því og gera þetta af fullri alvöru. Það er lítið um reyktan fisk hérna á Klakanum,“ segir Kjart- an sem hefur komið fyrir forláta reykofni í Sægreifanum þar sem reykmeistarinn Steingrímur Matthí- asson hefur náð góðum tökum á reyklistinni og sér um að reykja ál. „Við erum búnir að ná góðum tök- um á álnum en ætlum einnig að reykja skötusel, lúðu og makríl. Lyk- ilatriðið er bara að hafa ferskt hráefni en ekkert gamalt,“ segir Kjartan. Talsvert er um ál í Sægreifanum en í sumar var þar matreiðslumeist- ari sem matreiddi ferskan ál. „Ég er með stóran ál hérna núna sem er um metri að lengd en hann ætla ég að láta stoppa upp. Hann var veiddur fyrir mig í tjörn í Hveragerði á landi Saurbæjar,“ segir Kjartan sem býð- ur upp á heilmikið annað en ál. Í Sægreifanum fást hinar hefð- bundnu fisktegundir auk humars og rækju og að sjálfsögðu harðfiskur. „Já já, ég er með harðfisk hérna frá honum Hannesi ríka í Ölfusi,“ segir Kjartan. kristineva@frettabladid.is Smá hamingja fyrir fólk tilbod@frettabladid.is Verslunin Úlfarsfell býður upp á gott tilboð á framköllun mynda sem nýtist einmitt vel eftir jólin. Margir hafa eflaust tekið ófáar myndir í öllum jóla- boðunum en í janúar býður Úlfarsfell framköllun á stafræn- um myndum fyrir aðeins 35 krónur stykkið þegar fimmtíu myndir eða fleiri eru framkall- aðar. Verslunin er til húsa á Hagamel 57 en tölvupóst- fang hennar er ulfars- fell@simnet.is. Útsalan í golfversluninni Nevada Bob hófst á þriðjudaginn. Í versluninni ætti golfarinn að finna eitthvað við sitt hæfi á tilboði en nú eru til dæmis Bay Hill boltar á 1.740 krónur, 250 pör af skóm með fimmtíu prósenta afslætti og áttatíu stykki titanium driverar á 9.900 krónur. Enn fremur er þrjátíu prósenta afsláttur af X- 16 settum frá Callaway og hægt er að fjárfesta í járnsetti frá 9.900 krónum. Verslunin er staðsett í húsnæði Húsgagnahallarinnar og er með vefsíðuna nevadabob.is. Í versluninni Næs í Hverafold 1-3 í Grafarvogi er hafin útsala eins og annars staðar. Þar er fjörutíu til áttatíu prósenta afsláttur af gjörsamlega öllu en í versluninni er hægt að gera góð kaup í kvenfötum. Kjartan Halldórsson býður fólki stöku sinnum upp á heitan mat í Sægreifanum í verbúð númer 8. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í tilboðum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Dóu sardínurnar úr olíumenguninni í dósinni? Chevrolet silverrato 6,2 diesel. Árg. ‘89. Góður bíll. Verð 650 þús. S. 822 4167. Tilboðin í stórmörkuðunum BLS. 2 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Sægreifinn í verbúð númer 8 er engum líkur og býður upp á ótrúlegustu fiskteg- undir auk þess sem suma daga er eldað fyrir viðskiptavini. Útsölurnar eru hafnar af fullum krafti og eflaust eru þeir margir sem hyggjast nýta sér þær enda hægt að gera þar góð kaup, til dæmis í vetrar- fatnaði, nú þegar veturinn er rétt hálfnaður. Hita- stigið hér á okkar breidd- argráðu er líka yfirleitt með þeim hætti að „heilsárs- fatnaður“ er einmitt það sem hentar og því eru vetrarút- sölurnar ákjósanlegar til að hressa upp á fataskápinn. Margir hafa eflaust fengið gjafakort í jólagjöf sem gilda í ýmsum verslunum og þeir fá talsvert meira fyrir aurinn nú en í desember. Framundan eru þorrablót og árshátíðir og eflaust er hægt að finna fyrirtaks samkvæmisklæðnað á útsölunum, skó, skart, töskur og aðra fylgihluti og heilsu- ræktin er hátt skrifuð hjá mörgum á þessum árstíma, svo útsölurnar í sportvörubúðunum koma sér vel. En það eru fleiri en fatakaupmenn sem bjóða afslætti í byrjun árs. Út- sölurnar ná líka til annarra vörutegunda eins og húsgagna, heimilistækja og búsáhalda svo fátt eitt sé nefnt. Upplagt er að nota útsölurnar til að kaupa ýmsa gjafa- vöru sem gott er að eiga í handraðanum heima og gauka að vinum þegar tilefni gefst til, eins og á afmælum. Þá má benda hagsýnum á að það koma jól líka í lok þessa árs og því ekki úr vegi að huga að jólagjafakaupum þegar vöru- verð er í lágmarki. ■ Steiktur áll með papriku, lauk og tómötum að hætti Baska 800 g áll snyrtur og roðflettur 1 dl hveiti 3 msk. ólífuolía 1 græn paprika kjarnhreinsuð og skorin í strim- la 1-2 laukar, skornir í sneiðar 3-5 hvítlauksgeirar, fínt sneiddir 4 tómatar, flysjaðir og skornir í báta 1 1/2 dl svartar steinlausar ólífur 1 msk. söxuð steinselja 1 sítróna salt og pipar úr kvörn Skerið álinn í 10 cm breiða jafna bita. Veltið þeim upp úr hveiti og steikið á viðloðunar- frírri pönnu upp úr ólífuolíu í 2-3 mín á hvorri hlið. Saltið og piprið eftir smekk. Takið fiskinn af pönnunni, steikið grænmetið upp úr restinni af ólífuolíunni, þar til það er orðið mjúkt. Bætið þá tómötunum út í og ólífunum. Steikið áfram. Saltið og piprið örlítið meira og kreistið smá sítrónusafa út í. Látið þetta á miðjan disk og álabita ofan á. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram með sítrónusneið og soðnum kartöflum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Nú er hægt að gera góð kaup Vetrarútsölur eru hafnar og varningur boðinn til kaups á 15-75% afslætti.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.