Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 41
Árni Heimir Ingólfsson hef- ur undanfarin ár stundað rannsóknir á íslenska tví- söngnum, sem þykir býsna sérstakt fyrirbæri í tónlistar- sögunni. Honum fannst tími kominn til að leyfa þessum forna söng að hljóma á ný. Nýútkominn geisladiskur með ís- lenskum tvísöng þykir sæta veru- legum tíðindum, því þar vaknar úr löngum dvala forn tónlistarhefð sem fáir Íslendingar nú til dags vita nokkuð um. Það er Árni Heimir Ingólfsson tónlistarmaður sem stendur að út- gáfu disksins. Hann hefur stundað rannsóknir á íslenska tvísöngnum allt frá árinu 1997 og lauk doktors- prófi frá Harvard-háskóla árið 2003 um efnið. Hann segist hafa þurft að leita víða fanga við rannsóknir sínar. „Ég skoðaði öll handrit með tví- söngstónlist sem eru til á Árnastofn- un og á Landsbókasafninu, og einnig hlustaði ég á yfir 10 klukkustundir af hljóðritunum af tvísöng og efni tengdu honum sem er að finna á Árnastofnun. Síðan leitaði ég að fyr- irmyndum söngsins í erlendum heimildum, sem tók töluverðan tíma og kostaði líka nokkuð af ferðalög- um, en allt var þetta mjög spennandi og skemmtileg vinna.“ Á disknum eru 26 nýjar hljóðrit- anir á tvísöngslögum. Lögin eru ann- ars vegar fengin úr gömlum íslensk- um handritum, hins vegar úr þjóð- lagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar. Elsta handritið var ritað árið 1473. Disknum er ætlað að gefa fólki kost á að heyra íslenska tvísönginn á ný og bregða um leið nýju ljósi á íslenska menningarsögu. Árni Heimir segist þó varla búast við því að hægt verði að endurvekja þessa fornu hefð hér á landi. „Hún var auðvitað barn síns tíma, en það er samt engin ástæða til að við þekkjum ekki þessi lög og hafa ekki aðgang að þeim í hljóm- andi formi. Þessi diskur kom eigin- lega til af því að mér fannst svo sorglegt að þessi tónlist væri hvergi aðgengileg nema þá í gömlum hand- ritum sem fáir geta lesið úr, og svo í safni sr. Bjarna Þorsteinssonar sem er mjög misáreiðanlegt.“ Diskurinn hefur fengið feiknagóðar móttökur. Gagnrýnendur hafa helst gert þá at- hugasemd að söngurinn sé of fágað- ur, sem kann að þykja undarleg gagnrýni. Ástæðan er væntanlega sú að þau fáu tvísöngslög, sem lifað hafa fram á þennan dag, lög á borð við Ó, mín flaskan fríða og Ísland, farsælda frón, þekkja menn helst í frekar grófgerðum flutningi. Árni Heimir segist reyndar hafa velt því eitthvað fyrir sér áður en upptökur hófust, hvort ástæða væri til að hafa flutninginn svolítið óheflaðan. Niðurstaðan varð þó sú að láta slíkt eiga sig. „Þessi flutningur – og ég held raunar flutningur á tónlist almennt – getur aldrei orðið „eins og hann var“,“ segir Árni Heimir. „Það er tál- sýn að reyna að endurskapa eitthvað sem er liðið, við höfum allt aðrar viðmiðanir og forsendur í dag held- ur en fólk fyrir hundrað eða fimm hundruð árum. Þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða kantötu eftir Bach eða íslenskan tvísöng. Ég spurði sjálfan mig hins vegar – hefði einhver gaman af því að kaupa geisladisk með fölskum og grófum söng, þótt við vitum að tvísöngur hafi ekkert endilega alltaf verið sunginn tandurhreint? Ég get bara svarað fyrir sjálfan mig, að mér finnst þetta fara betur svona. Betur get ég ekki gert.“ Flytjendur laganna á disknum eru karlaraddir Schola cantorum og sönghópurinn Feðranna frægð, undir stjórn Árna Heimis Ingólfs- sonar sem einnig ritar ítarlegan inn- gang um lögin í bæklingi sem fylgir með disknum. ■ FÖSTUDAGUR 7. janúar 2005 33 798 18590 28785 35559 38554 41301 47584 52705 62253 5874 23002 28884 35777 38647 41363 47898 54716 64275 9561 24346 30610 36035 39025 43805 48609 57446 65055 11619 27658 31311 38342 40642 46531 51832 60074 68570 Nissan Primera 4 dyra kr. 2.380.000 60623 Fujitsu Siemens FSC Amilo pro V2000 kr. 169.900 29576 43041 54602 Vinningar Jólahappdrætti Sjálfsbjargar 2004 Dregið var 31. desember 2004 Ferðavinningur með ferðaskrifstofunni Úrvali-Útsýn kr. 160.000 Þökkum veittan stuðning Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, Hátuni 12, 105 Reykjavík, S:550-0300. Vöruúttekt að eigin vali frá Kringlunni kr. 40.000 Sýnt í Borgarleikhúsinu Næstu sýningar: Laugardagur 8. janúar Sunnudagur 9. janúar Föstudagur 13. janúar Sunnudagur 15. janúar L E I K A R A R Guðrún Ásmundsdóttir • Ilmur Kristjánsdóttir • Þór Tulinius • Þráinn Karlsson „Til hamingju Ilmur“ AB Fréttabl. „Hið gullna jafnvægi harms og skops“ SAB Mbl ■ TÓNLEIKAR  17.00 The Viking Giant Show, gæluverkefni Heiðars í Botnleðju, kemur fram í Smekkleysu Plötu- búð.  19.30 Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur einsöng á nýárstónleik- um Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í Háskólabíói. Stjórnandi er Michael Dittrich.  23.00 Djasshljómsveit Símons Jer- myn leikur blöndu af gömlum stöndurdum og nýjum á Póst- barnum við Austurvöll. ■ LEIKLIST  20.00 Leikfélag Reykjavíkur frum- sýnir í Borgarleikhúsinu Híbýli vindanna eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar í leik- gerð Bjarna Jónssonar. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. ■ SKEMMTANIR  Unglingahljómsveitin Pops rokkar feitt á Kringlukránni í minningu Péturs heitins Kristjánssonar og hefur fengið til liðs við sig sjálfan Rúnar Júlíusson.  Dúettinn Halli og Kalli skemmtir á Ara í Ögri.  Atli skemmtanalögga og Áki Pain á Pravda.  Stórsveit Hermanns Inga spilar á Catalinu.  Hljómsveitin Tilþrif skemmtir í Klúbbnum við Gullinbrú.  Rúnar Þór og hljómsveit spila í Vél- smiðjunni á Akureyri.  Spilafíklarnir spila á Dubliner.  Dj Master spilar alla nóttina á Gauknum. Fritt inn.  Liz Gammon spilar fyrir gesti á Café Romance, Lækjargötu 10.  Dj Þröstur 3000 þeytir skífum á létt- um föstudegi á Kaffi Sólon. ■ FYRIRLESTRAR  17.15 Katrín Sigurðardóttir mynd- listarmaður heldur fyrirlestur um eigin verk í Hafnarhúsinu í nýrri fyrirlestraröð á vegum dagskrár- nefndar AÍ sem nefnist „Hin röð- in“. ■ SAMKOMUR  16.00 Styrktarsjóður Halldórs Hansen verður formlega stofnað- ur í Salnum, Kópavogi. Á hátíðar- samkomu af því tilefni minnist Bergþór Pálsson söngvari Hall- dórs og starfa hans í þágu tónlist- ar. Tilkynnt verður um verðlauna- hafa sjóðsins á árinu 2004 og koma þeir fram á samkomunni. Einnig verður til- kynnt um afhend- ingu fyrsta framlags sjóðsins til upp- byggingar tónlistar- bóka- safns LHÍ. ■ DANSLIST  21.30 Línudansarar koma saman í Línudansklúbbnum Línudansar- anum að Hamraborg 7, Kópavogi, og dansa Línudans. ■ FÉLAGSLÍF  14.00 Fræðslunefnd FEB verður með kynningu í Ásgarði, Glæsi- bæ, á framboði námskeiða, námsbrauta og námsefnis, sem mörg er beinlínis sniðið að þörf- um eldri borgara á vorönn. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 4 5 6 7 8 9 10 Þriðjudagur JANÚAR SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » Vakti tvísönginn upp af löngum dvala ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON Fyrir jólin stóð Árni Heimir að út- gáfu geisladisks með íslenskum tvísöng, þar sem þessi forna tón- listarhefð vaknar úr dvala.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.