Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 6
Verktakar:
Sækja um
fleiri leyfi
VINNUMARKAÐUR Verktakar gera
ráð fyrir að þurfa að sækja um at-
vinnuleyfi fyrir erlenda starfs-
menn í auknum mæli á þessu ári.
Loftur Árnason framkvæmda-
stjóri gerir ráð fyrir að erlendum
starfsmönnum fjölgi fremur en
fækki hjá Ístaki á þessu ári.
„Það er mikið að gerast og stór
verkefni í gangi,“ segir hann.
„Við höfum oft
flutt inn erlent
vinnuafl þegar
það hefur
skort hér inn-
anlands svo að
það er ekkert
nýtt fyrir okk-
ur. Vinnuafl
frá Evrópu-
sambandinu
hefur verið
sve i f lujafn -
andi fyrir ís-
lenskan vinnumarkað og ég held
að það sé bara af hinu góða.“
Loftur segir óánægju með það
í samkeppninni ef innflutt vinnu-
afl fær ekki sömu kjör alls staðar
á markaðnum. „Það skekkir sam-
keppnisgetu fyrirtækisins ef ekki
sitja allir við sama borð,“ segir
hann.
Bjarni Pálsson, forstjóri
Keflavíkurverktaka, gerir einnig
ráð fyrir því að sækja um at-
vinnuleyfi fyrir erlenda starfs-
menn. - ghs
6 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
Forráðamenn verktakafyrirtækisins Impregilo:
Frábiðja sér ásakanir
KÁRAHNJÚKAR Impregilo hefur
lýst yfir að ásakanir ASÍ undan-
farna daga um að portúgalskir
leigustarfsmenn hafi verið snuð-
aðir eigi sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Fyrirtækið hafi
frá upphafi greitt laun sam-
kvæmt gildandi kjarasamning-
um og svo verði áfram.
Impregilo segir að sam-
kvæmt samkomulagi við verka-
lýðshreyfinguna skuli starfs-
menn sem vinna undir virkjana-
samningnum fá íslenskan launa-
seðil þar sem komi fram vinnu-
tímar og tímakaup. Frá brúttó-
launum skuli draga frá fjárhæð
sem svarar til lífeyrissjóðs, stað-
greiðslu skatta og stéttarfélags-
gjalds. Launaupphæðin sem þá
standi eftir sé lágmarksgreiðsla
inn á reikning hvers starfs-
manns. Gefi erlenda uppgjörið
lægri upphæð en það íslenska
skuli greiða starfsmanninum
uppbót þannig að erlendur
starfsmaður fái aldrei lakari
kjör en íslenskir kollegar.
Impregilo lítur svo á að sam-
komulag þetta sé ígildi kjara-
samnings og frábiður sér frekari
ásakanir verkalýðsfélaganna um
brot á samningum.
- ghs
Starfsréttindi ekki virt
Formaður Rafiðnaðarsambandsins gagnrýnir Impregilo fyrir að virða ekki starfsréttindi og segir að
sýslumaðurinn á Seyðisfirði hafi ekki eftirlit með því. Gagnrýni vísi hann til verkalýðsfélaganna sem
hafi enga heimild til eftirlits eða eftirlitsskyldu.
KJARAMÁL Guðmundur Gunnarsson,
formaður Rafiðnaðarsambandsins,
gagnrýnir Impregilo fyrir að virða
einskis starfsréttindi, ökupróf og
vinnuvélaréttindi og segir að sýslu-
maðurinn á Seyðisfirði virðist hafa
tilskipun um að athuga engin rétt-
indi. Gagnrýni vísi hann til verka-
lýðsfélaganna sem hafi enga heim-
ild til eftirlits eða eftirlitsskyldu.
„Við höfum engin slík fyrir-
mæli enda er alltaf eitthvað í
gangi hjá okkur á Kárahnjúkum.
Nú er janúar, ófærð og erfitt um
vik því að þetta er uppi á regin-
fjöllum, það hefur kannski áhrif á
okkar starfsemi núna en við skoð-
um þetta,“ segir Helgi Jensson,
sýslufulltrúi á Egilsstöðum, og
telur ýkjur oft í gangi. „Við verð-
um oft varir við að menn hafa til-
hneigingu til að ýkja allt slæmt
þarna upp frá. Þegar við skoðum
málið þá er það ekki rétt.“
Guðmundur gagnrýnir einnig
Impregilo fyrir að flytja erlent
vinnuafl beint að Kárahnjúkum
án þess að senda það fyrst í heil-
brigðiseftirlit.
„Það er hlutverk heilbrigðisyf-
irvalda og sýslumannsembættis-
ins að sjá til þess að þetta fólk
framvísi heilbrigðisvottorði eða
fari í heilbrigðisathugun áður en
það fer inn á vinnustaðinn en það
fer þráðbeint upp á Kárahnjúka-
svæðið. Þar er starfsmannaveltan
hröð og margir sem hafa farið í
gegnum þetta svæði án þess að
hafa uppfyllt þetta skilyrði. Þar
hefur skort á að yfirvöld fram-
fylgi sínu hlutverki,“ segir hann.
Stefán Þórarinsson, lækninga-
forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Austurlands, segir að heilbrigðis-
eftirlitið á Kárahnjúkum sé unnið
undir leiðsögn Haraldar Briem
sóttvarnarlæknis. Reglurnar hafi
verið skerptar og farið yfir þær
þegar innflutningur vinnuaflsins
hófst. Starfsmenn séu skoðaðir og
sendir í myndatöku á Egilsstöðum
ef þörf krefur.
„Menn þurfa að hafa fæturna á
jörðinni. Hvað koma margir
ferðamenn til Íslands á ári? Það
þarf að leyfa mönnum að njóta
sannmælis,“ segir hann. „Þetta er
ekki vandamál. Það get ég full-
yrt.“ ghs@frettabladid.is
Vinnumálastofnun:
Fær greinar-
gerð ASÍ
KJARAMÁL Gissur Pétursson, for-
stjóri Vinnumálastofnunar, á von
á því að fá greinargerð ASÍ í dag.
Í framhaldi af því verða umsóknir
um atvinnuleyfi fyrir Kínverja
skoðaðar.
Vinnumálastofnun hefur gefið
jákvætt vilyrði um undanþágu
fyrir 54 Kínverja að uppfylltum
lagaskilyrðum. Gissur segir að
þetta sé með þeim fyrirvara að
fyrirtækið haldi lög.
„Það er algjör útgangspunktur.
Ef það kemur í ljós svart á hvítu
að fyrirtækið heldur ekki lög þá
hefur það áhrif á afgreiðslu máls-
ins,“ segir hann. - ghs
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
27
00
4
0
1/
20
05
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald
Verð frá 36.900 kr.*
Netsmellur til USA
Bandaríkjaferðir á frábæru verði
Bókaðu á www.icelandair.is
Drekkur þú orkudrykki?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Verður Chelsea enskur meist-
ari í fótbolta?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
82%
18%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
KJARAMÁL Þorbjörn Guð-
mundsson, framkvæmda-
stjóri Samiðnar, segir að
Impregilo blandi saman lág-
markslaunum og skattkerfi en
þetta tvennt sé aðskilið og eigi
að vera það. Erlendir starfs-
menn eigi að borga skatta hér.
Hann segir að portúgalskir
leigustarfsmenn séu látnir
borga skatta til Portúgals.
Skattar þar séu lægri og heim-
ilt að taka hluta af laununum,
t.d. í staðaruppbót, án þess að
skattar séu greiddir af þeirri
upphæð. Portúgölsku starfs-
mennirnir borgi því lægri
skatta en íslenskir. Þeir fái þó
ekki þennan mismun heldur
taki fyrirtækið það til sín í
formi þess að borga lægri
laun.
„Það er enginn ágreiningur
við Impregilo um að þetta sé gert
svona. Þeir hafa staðfest það sjálf-
ir,“ segir Þorbjörn.
Í ársgömlu samkomulagi
verkalýðshreyfingarinnar við
Impregilo segir hann að alltaf hafi
verið gert ráð fyrir því að erlend-
ir starfsmenn greiddu skatta á Ís-
landi. Indriði H. Þorláksson
hefur gefið yfirlýsingu um
að allir ættu að greiða skatta
á Íslandi og það hefði alltaf
legið fyrir.
„Samkomulagið gekk út á
það að reikna launaseðlana
skv. íslenska og portúgalska
kerfinu og átti starfsmaður-
inn að fá laun skv. þeim
launaseðli sem gæfi hærra
þegar búið var að draga
skattana frá hér. Það var
aldrei samið um að nota
skattkerfi í heimalandi
starfsmannsins vegna þess
að það ætti þá við alla starfs-
menn. Þarna eru 25 þjóð-
erni,“ segir Þorbjörn.
Tvísköttunarsamningur
er í gildi milli Íslands og
Portúgals og fleiri landa.
„Við skiljum það þannig að
einstaklingur sem vinnur hér
greiðir skatta hér. Hann á að gera
skattaskýrslu hér og þá getur
komið til endurgreiðslu, ekki af
hálfu fyrirtækisins heldur í gegn-
um skattkerfið. Fyrirtækið á
aldrei að taka að sér hlutverk
skattstofunnar.“ ghs@frettabladid.is
Starfsmenn portúgalskra starfsmannaleigna greiða skatta í Portúgal:
Skattamunurinn
rennur til Impregilo
FRAMKVÆMDIR VIÐ KÁRAHNJÚKA
Impregilo segist fara eftir samkomulagi við
verkalýðshreyfinguna við frágang launa til
portúgalskra starfsmanna og frábiður sér
ásakanir um brot á samningum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
RÖ
N
N
ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON
Formaður Samiðnar segir að ágreiningur-
inn við Impregilo snúist um það að fyrir-
tækið láti portúgalska starfsmenn á leigu
borga skatta til Portúgals. Þeir séu lægri en
hér og fyrirtækið hirði mismuninn í formi
lægri launa í stað þess að láta það ganga
til starfsmannsins í gegnum
skattkerfið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
LOFTUR ÁRNASON
Framkvæmdastjóri
Ístaks býst við að fyrir-
tæki sæki um atvinnu-
leyfi fyrir fleiri erlenda
starfsmenn á árinu.
GUÐMUNDUR GUNNARSSON
Formaður Rafiðnaðarsambandsins gagn-
rýnir sýslumanninn á Seyðisfirði fyrir að
framfylgja ekki eftirlitsskyldu sinni gagnvart
starfsemi Impregilo á Kárahnjúkum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T