Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 7. janúar 2005
Kowparade-kýrnar eru á 15% afslætti á
útsölunni.
Glös
og aðrar
gersemar
Mirale selur merkjavörur
með afslætti.
Búsáhalda-, húsgagna- og gjafa-
vöruverslunin Mirale á Grensás-
vegi 8 er ein þeirra sem efnt
hefur til útsölu nú í janúar. Þar
eru ítalskar og þýskar vörur með
þekktum merkjum til sölu með
15-50% afslætti svo sem Alessi,
Riedel og Cassina. Mestur er af-
slátturinn á glösum, kertastjök-
um og bollum, 50%, og af Cassina
húsgögnum er 15-20% afsláttur. ■
Nærfatnaður
á alla
fjölskylduna
Verslunin IGMA er með útsölu
á öllum fatnaði í versluninni.
Útsala er hafin í IGMA, Klepps-
mýrarvegi 8, en 40-70% afsláttur
er af vörum í versluninni.
Bómullarbolir, stuttermabolir,
nærföt, rúllukragabolir, lang-
ermabolir, kvartermabolir sokkar
og náttföt eru meðal þeirra vöru-
tegunda sem eru til sölu í verslun-
inni. Jafnframt er þar að finna
fatnað sem unninn er úr plöntu-
beðma, en það er fjölsykrungur
sem er öllum plöntum nauðsyn-
legur. Það sem plöntubeðmi þykir
hafa umfram bómull í fatnaði er
að hann dregur fyrr í sig raka og
sleppir honum hraðar en bómullin
gerir sem þýðir að flíkin andar
vel. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Þægilegur
fatnaður á
útsölu
Redgreen býður upp á góðan
afslátt á fatnaði.
Verslunin Redgreen á Laugavegi 1
í Reykjavík selur þægileg föt fyrir
bæði dömur
og herra
sem hægt er
að nota dags
daglega. Nú
er útsala þar
á bæ á öllum
vörum í
versluninni.
Afsláttur er
frá 25 til 50
prósent og
verður útsal-
an væntan-
lega eitthvað
út mánuðinn eins og flestar útsöl-
ur. Redgreen-merkið er danskt og
hefur vakið lukku í Skandinavíu
og er verslun í hverju landi á
Norðurlöndunum. ■
Redgreen selur fatnað
fyrir bæði dömur og
herra.