Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 46
Heimildarmyndin „How do you like Iceland?“ verður frumsýnd sunnudaginn 16. janúar í Sjón- varpinu. Eins og titillinn gefur til kynna er þarna á ferðinni mynd sem tekur á skoðunum útlendinga á Íslandi og íbúum þess. „Upprunalega markmið mitt með myndinni var að endur- skoða ímynd okkar og að skapa umræður og pælingar um efnið. Eigum við fegurstu konurnar, hreinasta vatnið og sterkustu mennina? Ég fór um víðan völl og talaði við 37 útlendinga sem eru eins mismunandi og þeir eru margir. Í hópnum eru blaða- menn, kvikmyndagerðarfólk, rithöfundar, fólk úr viðskipta- heiminum og fleira,“ segir Kristín Ólafsdóttir leikstjóri, handritshöfundur og framleið- andi myndarinnar. Fyrirtæki hennar Klikk Prod- uction hefur áður framleitt myndina Love is in the Air. Fólk- ið sem Kristín talaði við fyrir myndina segir hún allt eiga það sameiginlegt að hafa sótt Ísland oft heim og þar af leiðandi haft ágætis tíma til þess að mynda sér skoðun á þjóðinni. „Þetta er ekki hinn týpíski túristi heldur fólk sem virkilega veit eitthvað um okkur. Þetta er mynd sem snertir sjálfsmynd allra íslend- inga. Myndin tekur á mörgum þáttum eins og arkitektúr, kurt- eisi okkar og húmornum. Þarna er fullt af hlutum sem við höfum gott af að heyra en samt ekkert endilega auðvelt fyrir viðkvæm- ar íslenskar þjóðarsálir,“ segir Kristín og hlær. Nokkrir þekktir einstakling- ar koma fram í myndinni og láta í ljós sína skoðun á þjóðinni. Helst má nefna Damon Albarn söngvara Blur, Victoriu Abril leikkonu og Terry Jones úr Monty Python hópnum. Kristín vill þó taka fram að meirihluti viðmælenda eru óþekktir ein- staklingar og venjulegt fólk. „Það er nauðsynlegt að taka þetta ekki of alvarlega og þó svo að útlendingar segi eitthvað um okkur þá er það ekkert endilega rétt. Raunveruleiki og ímynd er ekkert endilega það sama. Oft heyrði ég hluti sem ég veit alveg að eru ekkert réttir. Í gegnum myndina er þó rauður þráður og engin skoðun fór inn í myndina án þess að hún væri sögð nokkrum sinnum af mismunandi viðmælendum.“ hilda@frettabladid.is 38 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR Femínistafélag Íslands útnefnir Mannréttindaskrifstofu Íslands Norn ársins 2004. Femínistafélagið segir Nornaverðlaunin afhent aðila sem talið er hafa unnið að mann- réttinda- og jafnréttismálum af einurð, fylgt eigin sannfæringu en fengið bágt fyrir. Með verðlaun- unum vill Femínistafélagið einnig mótmæla ákvörðun ríkisstjórnar- innar um að taka Mannréttinda- skrifstofuna af föstum fjárlögum Alþingis og um leið sýna stuðning við störf skrifstofunnar. „Okkur hefur fundist fólk vera að gjalda fyrir pólitískar skoðanir sínar eða aðgerðir og vildum því útnefna einhvern sem hefur staðið sig vel en hefur verið refsað fyrir. Nafnið á verðlaununum er vísun í nornaveiðarnar í gamla daga og einnig tengjast nornir þrettánd- anum. Því ákváðum við að afhenda verðlaunin á þeim degi. Við vildum veita mannréttindaskrifstofu verð- launin bæði til þess að sýna þeim stuðning og líka til þess að mót- mæla því að þau séu tekin af föst- um fjárlögum. Við teljum það vera nauðsynlegt fyrir skrifstofuna að halda sjálfstæði og vera óháð því að þurfa að sækja um fjárveit- ingu á hverju ári,“ segir Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélagsins. ■ Nornaverðlaun afhent í gær NORNAVERÐLAUN AFHENT Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélagsins, afhenti Brynhildi Flóvenz, stjórnarformanni Mannréttindaskrifstofu, Nornaverðlaunin. DAMON ALBARN Söngvari Blur er einn þekktasti Íslandsvinurinn og lætur í ljós skoðun sína á Íslandi í myndinni. KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR: SKOÐAR ÁLIT ÚTLENDINGA Á ÍSLANDI Há dú jú læk Æsland? 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 … fær Jón Oddgeir Guðmundsson kaupmaður sem helgar Guði sitt líf og selur bænabækur, Biblíur, krossa og fleiri vörur í verslun sinni í Litla húsinu á Akureyri. HRÓSIÐ Lárétt: 1fagurt, 6aur, 7ar, 8lm,9 skú,10þak,12lag,14hug,15ná,16 ár, 17tal,18strá. Lóðrétt: 1fall,2aum,3gr, 4rakkana, 5trú,9sal,11burt, 13gála,16hás, 17tá. Litríkar sokkabuxur eru hrikalega góð leið til þess aðlífga upp á litlausan fatnað svo ekki sé talað um litlausan og kaldan vetur. Flottustu og vinsælustu litirnir núna eru fjólublár, blágrænn og bleikur og ekki er verra ef sokka- buxurnar eru úr ull eða þykku efni. Flottast í heimi við glæsi- legt pils og falleg stígvél. Fínir og kvenlegir hanskar eru toppurinn á ísjakanumþegar kemur að því að klæða sig vel þessa dagana. Ef ætl- unin er að skella sér út í flottum klæðnaði og lúffurnar passa ekki við fínu kápuna er um að gera að fá sér eitt stykki fallega hanska. Leikhúsferðir er hollt sport sem ekki máláta deyja út. Af hverju ekki að spara nokkrar bíóferðir og skella sér frekar á menningarlega sýningu í leikhúsi? Af nógu er að taka og fátt er jafn heillandi og hressandi áhorfs en góð leiksýning. Að reykja. Nei og aftur nei, þetta er ekkikúl. Fræðslan um skaðsemi reykinga er það mikil á okkar tímum að enginn getur lengur skýlt sér á bak við það að hafa ekki vitað um óhollustuna þegar hann byrjaði. Þetta er ekkert nema kæruleysi og vanvirðing við líkama og sál. Að henda rusli á víðavangi. Óskaplega er nú leiðinlegtað í hvert skipti sem snjórinn bráðnar kemur í ljós allt ljóta ruslið sem við höfum fleygt frá okkur um veturinn. Gerum okkur ferð alla leið að næstu ruslatunnu og hætt- um þessum sóðaskap! Of mikið brúnkukrem veldur flekkóttri og appel-sínugulri húð. Hver vill það? Nei, notið brúnku- kremin í hófi. Þau eru ekki lausnin. Hvít húð er alveg jafn falleg og brún og miklu fallegri en flekkótt og appelsínugul húð! INNI ÚTI Fókus fylgir DV í dag .20 Brasilískur barþjónn innleiðir sundknatt- leik á Ísland i Lárétt: 1 frítt, 6 for, 7 rykkorn, 8 í röð, 9 kofi – r, 10 á húsi, 12 tónverk, 14 sinni, 15 handsama, 16 tímabil, 17 mál, 18 gras. Lóðrétt: 1 hrap, 2 sár, 3 greinir, 4 hundana, 5 traust, 9 herbergi, 11 héðan frá, 13 flenna, 14 rám, 17 á fæti. LAUSN. ■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Ástralía Eitt 84 prósent (samkvæmt Gallup) TERRY JONES Góðkunni leikarinn úr gríngrúppunni Monty Python er meðal hinna mörgu stjarna sem hafa sótt Ísland heim. VICTORIA ABRIL Spænska leikkonan sem lék í myndinni 101 Reykjavík, er meðal við- mælenda.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.