Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Með Fréttablaðinu alla fimmtudaga Vi› segjum fréttir Fimm-orða- kúrinn Flestir megrunarkúrar byggjast áþví að útskýra í löngu máli að nauðsynlegt sé að borða lítið af því sem mann langar í en hins vegar meira af því sem mann langar ekki í. Yfirleitt er þetta gert í afarlöngu máli með efnafræðiformúlum og vísindalegum upptalningum á marg- víslegum bætiefnum sem hægt er að fá í pilluformi fyrir stórfé í næsta apóteki eða heilsuvöruverslun, rétt eins og maður sé staddur í geimfari langt utan við vetrarbrautina og hafi ekki aðgang að kjöti, fiski, grænmeti og ávöxtum sem innihalda þessi bætiefni. Þessum upplýsingum fylg- ja síðan yfirleitt mataruppskriftir sem eru svo nýstárlegar að til að fylgja þeim út í æsar þyrfti maður að helga sig matarinnkaupum og skipulagningu og undirbúningi mál- tíða, auk þess sem það nálgast að vera fullt starf að borða fimm til sex „léttar“ máltíðir á dag og þamba alla þá lítra af vatni sem nýtískuteóríur um innvortis hreinsun og þvotta kveða á um. ÍSLENDINGAR eru stórmerkileg þjóð. Til dæmis um sérvisku okkar má nefna að það er landlægur siður þegar skammdegið er hvað svartast að hefja nýtt ár á stórkostlegum megrunarkúr eða leggjast inn á spít- ala til að láta fjarlægja úr sér megn- ið af meltingarfærunum með skurð- aðgerð, minnka magann um mörg númer og stytta garnirnar um bæj- arleið. YÐAR EINLÆGUR hefur áratuga reynslu af megrunarkúrum og átti að baki stórkostlega og erfiða megr- unarkúra þegar flestir helstu megr- unarfræðingar nútímans voru enn á brjósti. Eftir að hafa stundað stran- ga megrun um árabil hefur maður öðlast mikla samkennd með hvítum músum og öðrum tilraunadýrum sem eru þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að deyja úr einhverju öðru en offitu. Reynslan bendir til að flestir þessir megrunarkúrar hafi eitthvað sér til ágætis, en það sem er sameig- inlegt með þeim öllum er að þeir mæla með því að fólk innbyrði ekki fleiri hitaeiningar en það brennir. ÉG HEF ÞVÍ sem áhugamaður um megrunarkúra hannað minn eigin sem ekki þarf að útskýra á mörg hundruð blaðsíðum og hljóðar svo: „Borða minna, hreyfa sig meira.“ Það er Fimm-orða-kúrinn. BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.