Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 17
17FÖSTUDAGUR 7. janúar 2005 GLEÐILEG JÓL Orþódoxakirkjur víða um lönd héldu jól sín í gær, 6. janúar. Íbúar Búkarest í Rúm- eníu létu ekki sitt eftir liggja heldur leyfðu rétttrúnaðarklerkunum að stökkva á sig helguðu vatni sér til blessunar. VERÐLAUN Tveir hlutu hvatningar- verðlaun fyrir rannsóknir á sviðum heilbrigðis- og lífeðlisfræða sem afhent voru í Öskju, náttúrufræða- húsi Háskóla Íslands, á miðviku- dag. Sigrún Lange líffræðingur hlaut hvatningarverðlaun Jóhanns Ax- elssonar, prófessors emeritus. Verðlaunin eru ætluð efnilegum vísindamönnum á sviði líf- og læknisfræði. Sigrún er 27 ára göm- ul og hlýtur verðlaunin fyrir rann- sóknir á ónæmiskerfi fiska sem hafa bæði fræðilega og hagnýta þýðingu. Bergljót Magnadóttir tók við verðlaununum fyrir hönd Sig- rúnar sem var stödd erlendis. Þá hlaut Sædís Sævarsdóttir læknir hvatningarverðlaun menntamálaráðuneytisins til ungra vísindamanna. Sædís, sem er 29 ára, hlaut verðlaunin fyrir rann- sóknir á ónæmisfræðum. Verð- launin voru veitt í tengslum við ráðstefnu um rannsóknir í heil- brigðisvísindum við Háskóla Ís- lands. Sigrún og Sædís fengu hvor um sig 250 þúsund krónur í verð- laun. - bs Íslensk læknarannsókn: Örorka vegna sykur- sýki vex hjá körlum HEILBRIGÐISMÁL Offita og sykursýki henni tengdri hefur farið vax- andi á Íslandi á undan- förnum árum. Svo virð- ist sem örorka vegna sykursýki hafi einnig vaxið. Þetta styðja niður- stöður könnunar Sig- urðar Thorlaciusar tryggingayfirlæknis og fleiri lækna sem greint var frá á ráðstefnu um rannsóknir í líf- og heil- brigðisvísindum sem nýlokið er í Öskju, náttúruvísindahúsi Há- skóla Íslands. Þar kemur fram að örorka vegna sykursýki hefur aukist verulega á síðustu árum hjá íslenskum körlum. Á sama tíma hefur ekki orðið mark- tæk aukning hjá konum. Læknarnir báru saman tíðni örorku vegna sykur- sýki á árunum 1990 og 2003. Kannað var í hve mörgum tilvikum greining sykursýki kom fyrir í örorkumati og hvort hún krafðist meðferð- ar með insúlíni eða ekki. Af niðurstöðum rann- sóknarinnar eru dregnar þær ályktanir að hjá körlum hafi örorka vegna sykursýki auk- ist verulega umfram almenna ör- orku frá 1990 til 2003, sérstaklega vegna sykursýki sem krefst með- ferðar með insúlíni. ■ OFFITA Offita og sykursýki henni tengdri hef- ur farið vaxandi á Íslandi. AFHENDING VERÐLAUNANNA Frá vinstri: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Sædís Sævarsdóttir, Berg- ljót Magnadóttir og Jóhann Axelsson prófessor. Rannsóknir í heilbrigðisvísindum: Tveir hljóta hvatningarverðlaun FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.