Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 20
Lesaðstaða
Góð lesaðstaða skiptir máli og að þú getir notað hana þegar þér hentar. Settu niður fastan
tíma á lesaðstöðuna ef þú deilir henni með öðrum og gakktu vel um svo hún sé hrein þegar
þú kemur að henni. Sjáðu til þess að verða ekki fyrir truflun og slökktu á símanum.[
Rýnt í texta Megasar
Námskeið um texta Megasar verður haldið hjá Endurmenntun HÍ í lok janúar.
Endurmenntun Háskóla
Íslands býður upp á
námskeið nú í lok janúar
sem kallast Megas Fram
og aftur blindgötuna.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir,
blaðamaður og bókmenntafræðing-
ur, mun kenna námskeiðið Megas
Fram og aftur blindgötuna hjá End-
urmenntun HÍ og hefst það 26. jan-
úar. Þess var farið á leit við Þórunni
að kenna námskeiðið en hún hefur
ætíð haft gríðarlegan áhuga á text-
um Megasar. „Þó hann skipi þennan
sess í okkar menningarlífi sem
hann gerir hafa textarnir gjarnan
orðið útundan í umræðunni um
Megas, en það eru fyrst og fremst
þeir sem hafa gert hann frægan,“
segir Þórunn, sem valdi námskeið-
inu heiti sem er titill á einni af plöt-
um Megasar, Fram og aftur blind-
götuna. „Mér finnst þessi titill
fanga kjarnann í höfundarverki
Megasar en hann fjallar svo fallega
um allar þessar blindgötur sem við
röltum,“ segir Þórunn.
Þetta er í fyrsta sinn sem nám-
skeið af þessu tagi er haldið, þar
sem rýnt verður í texta Megasar og
fjallað verður um höfundarverk
hans frá ýmsum hliðum en einnig
um ævi hans og áhrifavalda. Við-
tökur við verkum hans fyrr og nú
og stöðu hans í íslenskri samtíma-
menningu eru meðal þess efnis sem
tekið verður á en námskeiðið
er gagnvirkt þar sem áhugi þátt-
takenda ræður að einhverju leyti
hvaða texti og efnisþættir verða
teknir fyrir.
Megináhersla verður þó lögð á
textarýni út frá ákveðnum þáttum
eða þemum sem birtast ítrekað í
verkum Megasar. Sem dæmi má
nefna afhelgun og ádeilu, ást, reiði,
húmor, vísanir, heilræði, lyfjafræði
og Reykjavík. ■
9
Námskeið til pungaprófs/ 30 rúml. skipstjórnarréttinda,
12. jan.– 21.mars. Kennsla Austurbugt 3
mánudags- og miðvikudagskvöld kl 19-23.
Hafsiglinganámskeið (Yachtmaster Offshore)
Úthafssiglinganámskeið (Yachtmaster Ocean)
Sími 898 0599 og 588 3092
Netfang. sigling@mmedia.is
Heimasíða: www.siglingaskolinn.net
Siglingaskólinn
]
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Í Foreldrahúsi sem rekið er af
Vímulausri æsku eru haldin sjálf-
styrkingarnámskeið fyrir börn og
unglinga. „Annars vegar er þetta
námskeiðið Sjálfstyrking unglinga
fyrir 13 til 17 ára og hins vegar
Börnin okkar fyrir 10 til 12 ára,“
segir Jórunn Magnúsdóttir, for-
stöðukona Foreldrahúss. Í lýsingu
á námskeiðunum segir meðal ann-
ars að unglingum sé kennd víðsýni
og skilningur á samfélaginu. Mikil-
vægt sé að vera fær um að setja sig
í spor annarra án þess að dæma, og
að átta sig á hvað liggi að baki
hegðun annarra hverju sinni auð-
veldi viðkomandi að átta sig betur
á skilaboðum frá umhverfinu.
„Þetta er forvarnanámskeið þar
sem við kennum þeim að efla
sjálfstraust og félagslega færni,
auk þess sem þeim er kennt að
standa fast á nei-inu sínu og standa
með sjálfum sér. Gott sjálfstraust
og trú á eigin getu eru nauðsyn-
legir kostir til að varast óæski-
leg áhrif frá umhverfinu,“ segir
Jórunn en bætir við að engin tvö
námskeið séu eins því það sé sniðið
að hópnum hverju sinni og sé það í
höndum leiðbeinandans hvernig
því sé háttað.
„Mikilvægt er að ná til unga
fólksins því nokkrum árum seinna
getur það verið um seinan,“ segir
Jórunn og bætir við að ekki sé
tekið á móti börnum í þennan hóp
sem þegar eru komin í neyslu. For-
eldra segir hún hafa lýst ánægju
með þessi námskeið en það segi
enn meira að unglingarnir sjálfir
séu ánægðir. „Unglingarnir hafa
komið til okkar og beðið um fram-
haldsnámskeið, sem segir ansi
margt,“ segir Jórunn.
kristineva@frettabladid.is
Höfum heilsusamleg
áhrif á ungdóminn
Opinn fræðslufundur í Kennara-
háskólanum í kvöld.
Hvernig við hjálpum börnum að til-
einka sér hollan lífsstíl verður um-
ræðuefni foreldrakvölds Kennarahá-
skóla Íslands í kvöld, þriðjudag 11.
janúar kl. 20. Þar mun Brynhildur
Briem, lektor í matvæla – og nær-
ingarfræði, segja frá rannsókn á lífs-
stíl barna sem hún hefur tekið þátt
í og Jórlaug Heimisdóttir, verkefna-
stjóri hjá Lýðheilsustöð, kynna nýtt
þróunarverkefni – Allt hefur áhrif,
einkum við sjálf – sem Lýðheilsu-
stöð er að hefja í samvinnu við
sveitarfélög í landinu. Auk þess
verður rætt vítt og breitt um þá
þætti sem hafa áhrif á heilsu fólks
og samstarf foreldra og kennara í
því verkefni að bæta lífshætti ís-
lenskra ungmenna og auka heil-
brigði þeirra. Þetta er fyrsta fræðslu-
kvöld KHÍ á þessu ári en þau verða
haldin annan þriðjudag í hverjum
mánuði fram á vorið með áhuga-
verðri dagskrá og eru öllum opin.
„Unglingarnir hafa komið til okkar og beðið um framhaldsnámskeið, sem segir ansi
margt,“ segir Jórunn Magnúsdóttir forstöðukona Foreldrahúss.
Að standa með sjálfum sér
Forvarnanámskeið á vegum Foreldrahúss.