Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 21
Í byrjun árs huga margir að
heimilisbókhaldinu. Fram-
færsla margra námsmanna
byggir að mestu leyti á náms-
lánum og því getur vel skipu-
lagt bókhald skipt sköpum til
að ná endum saman.
„Þegar sótt er um námslán verður
að vanda tekjuáætlunina eins og
hægt er. Helsta ástæða þess að
mismunur er á milli lánsins sem
greitt er út og áætlunarinnar í
upphafi skólaannar er sá að tekj-
ur eru vanáætlaðar og því er lánið
skert. Það er því nauðsynlegt að
setja allar mögulegar tekjur inn í
áætlunina svo útgreitt lán í lok
annar nái að greiða yfirdráttinn
upp að fullu,“ segir Kristín Val-
týsdóttir, þjónustufulltrúi hjá
Landsbanka Íslands.
„Ef einhverjar umframtekjur
eru eftir í lok sumars er skynsam-
legast að nota þær til framfærslu
fram eftir skólaönninni og fresta
töku yfirdráttarláns í nokkra
mánuði. Þannig sparast greiðslur
vegna vaxta af yfirdrætti og hægt
er að ávaxta peningana sem LÍN
greiðir,“. segir Kristín og jafn-
framt að ef til þess komi að fólk
þurfi að taka yfirdráttarlán mæli
hún ekki með því að yfirdráttur-
inn sé hærri en sem nemur
lánsloforðinu frá LÍN. „Best er að
hækka yfirdráttarheimildina
mánaðarlega, þá fæst yfirsýn yfir
það hve miklu má eyða um hver
mánaðamót, en yfirdráttarlán eru
fyrst og fremst hugsuð til að brúa
bilið,“ segir Kristín og telur hún
það mikilvægt að huga að öllum
kostnaðarliðum þegar fjármálin
eru skipulögð. Fyrir utan bóka-
kostnað þurfa námsmenn að gera
ráð fyrir framfærslukostnaði og
einnig hvort þeir hafi efni á að
reka bíl. Rekstur á bíl er dýr og
því skiptir máli að kanna verð á
tryggingum og auðvitað spara
eins og hægt er við bensínkaupin.
„Það sparar tíma og peninga að
hafa öll regluleg útgjöld í
greiðsluþjónustu, en þá eru út-
gjöldin skuldfærð í hverjum mán-
uði. Þessi þjónusta hentar þeim
sem hafa fáa reikninga. Þeir sem
hafa fleiri fasta útgjaldaliði ættu
frekar að vera í greiðsludreif-
ingu, en þá er útgjöldum heimilis-
ins dreift jafnt yfir árið og föst
upphæð greitt mánaðarlega.
Þannig er hægt að hafa góða yfir-
sýn yfir fjármálin,“ segir Kristín.
Fyrir þá námsmenn sem kjósa að
nota kreditkort vill Kristín benda
á kreditkort með inneign. Með
þessum kortum hafa námsmenn
aðgang að öllum eiginleikum
kreditkorts eins og slysa- og
ferðatryggingum en skulda ekki
neitt um mánaðamót.
Velji námsmenn að fá sér hefð-
bundin kreditkort er mikilvægt að
stilla heimildum í hóf og gera
alltaf ráð fyrir að geta greitt
reikninginn um næstu mánaða-
mót því fjölgreiðslur auka kostn-
að.
„Það er mjög góð regla að setja
niður áætlun fyrir mánuðinn til að
sjá betur í hvað þú getur eytt og
taka saman í lok mánaðar hvort
áætlunin hafi staðist og hverju
þurfi að breyta fyrir næsta mán-
uð,“ segir Kristín.
kristineva@frettabladid.is
Vanda skal tekjuáætlunina
ÞRIÐJUDAGUR 11. janúar 2005
FULLORÐINSFRÆÐSLA Í 65 ÁR
Morgun-, síðdegis- og kvöldnámskeið
PRÓFADEILD – ÖLDUNGADEILD
Grunnskólastig: (íslenska, danska, enska, stærðfræði) grunnnám, fornám – upprifjun og undirbúningur
fyrir framhaldsskólanám.
Framhaldsskólastig: sjúkraliða-, nudd- og félagsliðanám. Almennur kjarni fyrstu þriggja anna
framhaldsskóla og sérgreinar á heilbrigðissviði. Fjarnám í sérgreinum á heilbrigðissviði. Félagsliðanám –
brú fyrir starfsfólk í umönnun aldraðra og fatlaðra.
Sérkennsla í lestri og ritun. Íslenska:: aukin lestrarfærni, stafsetning og málfræði.
INNRITUN: 7. – 12. janúar. Kennsla hefst 17. janúar
ALMENNIR FLOKKAR - FRÍSTUNDANÁM
Fjölbreytt tungumálanám: Byrjenda- og framhaldsflokkar.Norska,sænska,enska,þýska, hollenska,
franska, ítalska, spænska, portúgalska, pólska, tékkneska, arabíska og tælenska.
Myndlist og handverk:
Fatasaumur, skrautskrift – byrjenda-
og framhaldsnámskeið, glerlist, mósaík,
listasaga, teikning, vatnslitamálun,
olíumálun, skopmyndateikning, prjón.
Önnur námskeið:
Fjármál heimilanna, húsgagnaviðgerðir
matreiðsla fyrir karlmenn – byrjenda- og
framhaldsnámskeið, viðhald og viðgerðir á
gömlum timburhúsum, útskurður í tré.
Stærðfræðiaðstoð og tungumálanámskeið fyrir börn og unglinga.
Íslenska fyrir útlendinga
Morgun-, síðdegis- og kvöldkennsla fyrir byrjendur og lengra komna (stig 1-5).
Íslenska talflokkar og ritun.
Fjarnám í íslensku – vefskoli.is
INNRITUN: 13.-20.janúar kl. 09 - 21. Kennsla hefst 24.janúar
Innritun fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1.
Upplýsingar í síma: 551 2992
Netfang: nfr@namsflokkar.is - Vefsíða: www.namsflokkar.is
Kennt er í Miðbæjarskólanum og í Mjódd, Þönglabakka 4.
SVO LENGI LÆRIR SEM LIFIR
Kristín Valtýsdóttir segir það góða reglu að fara yfir fjármálin í hverjum mánuði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LÆRÐU AÐ HEKLA, PRJÓNA
OG SAUMA BÚTASAUM
1. PRJÓNTÆKNINÁMSKEIÐ á miðvikudögum 12. janúar til 23. febrúar.
2. PRJÓNTÆKNINÁMSKEIÐ á mánudögum 17. janúar til 21. febrúar.
3. PRJÓNTÆKNINÁMSKEIÐ á miðvikudögum 9. mars til 20. apríl.
1. HEKLNÁMSKEIÐ á fimmtudögum 6. janúar til 27. janúar
2. HEKLNÁMSKEIÐ á þriðjudögum 18. janúar til 15. febrúar
3. HEKLNÁMSKEIÐ á fimmtudögum 24. febrúar til 17. mars.
4. HEKLNÁMSKEIÐ á fimmtudögum 31. mars til 28. apríl
5. HEKLNÁMSKEIÐ á mánudögum 4. apríl til 25. apríl
1. BÚTASAUMSNÁMSKEIÐ Saumuð er taska eftir Kaffe Fassett.
Kennt er fimmtudagana 10. og 17. febrúar.
2. BÚTASAUMSNÁMSKEIÐ Saumaður er dúkur eftir Sigríði Bragadóttur
Kennt er mánudagana 7. og 14. mars.
Innritun og allar nánari upplýsingar í
Storkinum, Laugavegi 59, sími 551 8258.