Fréttablaðið - 11.01.2005, Side 32
Svitnar ókeypis í bústörfum
& gerir gagn í lei›inni
10 { HEILSA 2005 } T ÍMAPANTANIR Í S ÍMA 577 5555
www.veggsport.is
NÝTT Í
VEGGS
PORT
GOLFH
ERMIR
Fyrsta ROPE YOGA stöðin á Íslandi
Stórkostlegt opnunartilboð!!!
Bæjarhraun 22 / 220 Hafnarfjörður / 3. hæð til vinstri
NÚ GETUR ÞÚ LEYFT ÞÉR AÐ PRÓFA
5 VIKUR KR. 9900
miðað við 3 skipti í viku
5 VIKUR KR. 6900
miðað við 2 skipti í viku
Stakur tími
KR. 800
SKRÁNING ER HAFIN Í SÍMA 555-3536 EÐA 695-0089. KENNSLA HEFST MÁNUDAGSMORGUNINN
10 JANÚAR ( 2005 ) kennt verður 14 sinnum í viku !!!
HÁGÆÐA AMERÍSK FÆÐUBÓTAREFNI
Eykur brennslu líkamans meðan þú hvílist.
Minnkar matarlyst. 3 hylki fyrir svefn.
Fæst í apótekum, Fjarðakaupum
og Hagkaupum Kringlunni
NÝTTfráFuturebiotics
Hrund
Verslun &
snyrtistofa
Grænatún 1 • 200 Kópavogi • Sími: 554-4025
Guinot
andlits-
meðferðir
Clarins
andlits-
og líkams-
meðferðir.
Öll almenn
snyrting.
Gísli Einarsson pu›ar í sveitinni og spilar fótbolta me› ö›rum yfirflungavigtar-
mönnum í Borgarnesi.
„Mín helsta heilsurækt er að spila fótbolta með
nokkrum old boys í Skallagrími í yfirþungavigt.
Ég fer stöku sinnum í sund og körfubolta og skýst
líka stundum upp í heimasveitina, Lundarreykja-
dalinn, smala rollum og reyni eitthvað á mig við
búskapinn. Það er besta og ódýrasta heilsurækt
sem til er,“ segir Gísli Einarsson, fréttamaður
Sjónvarps og ritstjóri Skessuhorns. Honum finnst
óskynsamlegt að púla í illa loftræstum líkams-
ræktarstöðvum og borga fyrir það stórfé þegar
hægt er að svitna ókeypis annars staðar og jafn-
vel gera gagn í leiðinni. En hann kveðst aldrei
hafa náð því að verða efnilegur í fótbolta. „Ég var
í neðstu deild og það útskýrir eflaust dálæti mitt
á neðstudeildarliðum víða um lönd,“ segir hann
og viðurkennir að vera formaður aðdáendaklúbbs
Halifax á Englandi, sem sé lélegasta knattspyrnu-
lið fyrr og síðar þar í landi. „Ég styð lítilmagnann
því að minnsta kosti á knattspyrnuvellinum er ég
í þeim hópi,“ bætir hann við.
Gísli er afar ánægður með nýjan upphitaðan
gervigrasvöll sem KSÍ hefur komið upp í Borgar-
nesi. Sá er afgirtur og í góðu skjóli fyrir veðrum
og vindum. „Þegar maður er farinn að nálgast
fertugsaldurinn er ekki hægt að láta tækla sig á
grjóthörðum malarvelli. Það verður að vera
mjúkt að detta,“ segir hann. En hvað um matar-
æðið? Skyldi Gísli eitthvað spá í hvað hann læt-
ur ofan í sig? „Nei, ekki nema að borða nógu
mikið af því sem mér finnst gott. Mikið af sméri
og feitu keti. Það hefur gefist mér ágætlega,“
svarar hann og kemur með þá kenningu að það
að hugsa sífellt um heilsuna fari algerlega með
hana. „Það bætir heilsuna talsvert að hafa gam-
an af því að vera til og taka lífið ekki of hátíð-
lega. Það er of stutt til þess.“ segir þessi lífs-
kúnstner að lokum. Gísli er hrifinn af því að hreyfa sig utan dyra og teyga hreina loftið.