Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 33
SPLENDA er náttúrulegt sætuefni sem hefur eðlilegt sætubragð. SPLENDA er kalóríufrítt og veldur ekki tannskemmdum. Hægt er að baka, elda og sulta úr SPLENDA. SPLENDA kemur í stað sykurs og er frábært fyrir sykursjúka. Fæst í Lyf og heilsu, Hagkaupum og Lyfju Fólk er mjög ánægt með hraðferðina í gegnum tækjasalinn, að sögn Ágústu Johnson.  { HEILSA 2005 } 11 Líkamsræktarlausn fyrir flá sem eru a› fl‡ta sér Það er alltaf ný tafla í byrjun árs hjá Hreyfingu og nú eru að byrja hin gamalgrónu átta vikna aðhaldsnámskeið sem hafa verið vinsæl gegnum árin. „Við erum með svipað prógramm og á haustönn, þar á meðal Stott Pílates sem verður alltaf vinsælla og vinsælla. Svo erum við með fullt af spennandi og skemmtilegum tímum,“segir Ágústa Johnson. Það sem er nýjast hjá Hreyfingu er hraðferðin í tækjasalnum. „Fólki finnst það frábær kostur að geta gengið að stuttum en hnitmiðuðum æfingahring og geta verið búið með líkamsrækt dagsins á hálftíma þegar svo ber undir.“ Svo eru hjólatímar eða spinning orðnir mjög vinsælir aftur að sögn Ágústu. „Við upplifðum smá lægð fyrir nokkrum árum en nú sækir spinning stöðugt í sig veðrið. Spinning-tímarnir eru einfaldari en þeir voru og nú er áherslan lögð á að hjóla og vinna markvisst með púlsinn, sem gefur betri árangur og er öruggara en að vera með þolfimiæfingar á hjólunum í bland eins og tíðkaðist mikið áður,“ segir Ágústa að lokum. hvítlaukur } Gó›ur fyrir ónæmis- kerfi›, hjarta› og lungun auk fless sem hann fælir burt vampírur! Fáar plöntur hafa annað eins orðspor og hvítlaukurinn. Hann er talinn lækna eða fyrirbyggja ótal sjúkdóma auk þess sem hann fælir vampírur frá! Ótal rannsóknir á verkun hvítlauksins staðfesta þau sannindi að hann sé góður fyrir hjartað og lungun auk þess sem hann styrkir ónæmiskerfið. Hvítlaukurinn er einnig meðal vinsælustu krydda svo auðvelt er að taka hann inn enda er hann notaður í salöt, sósur, pottrétti, súpur, á kjöt og í ýmsa smárétti. Hvítlaukur gegn krabbameini Í hvítlauknum eru efni sem hindra alls kyns krabbameins- myndanir í tilraunadýrum. Þar má nefna krabbamein í brjóst- um, lifur og ristli. Í rannsókn á 42.000 eldri konum, sem gerð var í Iowa-ríki í Bandaríkjunum, kom í ljós að þær sem borðuðu hvítlauk oftar en einu sinni í viku minnkuðu líkur á því að fá ristilkrabbamein um helming. Hvítlaukur gegn kvefi Hvítlaukur drepur bakteríur sem valda kvefi og flensu. Borðið hvítlauk þegar þið finnið ein- kenni hálsbólgu því það gæti orðið til þess að þið yrðuð ekki veik. Ungbörn og hvítlaukur Þegar mæður með börn á brjósti borða hvítlauk eru börn- in lengur á brjóstinu í einu og drekka meira magn. Þetta var niðurstaða prófana sem gerðar voru í Bandaríkjunum. Að losna við lyktina Eftir að hvítlaukurinn hefur ver- ið borðaður til ánægju og heilsubótar vilja margir losna við lyktina sem fylgir honum. Það er ekki að ástæðulausu sem fersk steinselja sést svo oft með hvítlauknum í alls kyns upp- skriftum, því besta ráðið til að losna við lyktina er að tyggja ferska steinselju, sem auðvitað er einnig þrungin bæti- efnum. Hra›fer› í gegnum tækjasalinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.