Fréttablaðið - 11.01.2005, Side 41
21ÞRIÐJUDAGUR 11. janúar 2005
Skýr markmið
mikilvægust
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður
KB banka, sagði í ávarpi sínu á fundi
Fjármálaeftirlitsins, að mikilvægast væri
að eftirlitsstofnanir með mörkuðum
hefðu skýr markmið og hefðu á að
skipa hæfu starfsfólki.
Hann gat þess að eftir reynslu af
eftirlitsstofnunum í tíu löndum þætti
honum mest til fjármálaeftirlitsins í
Lúxembúrg og á Íslandi koma.
Sigurður sagði einnig að viðmót
stjórnvalda í garð fjármálastofnana
væri mikilvægt og sagðist hafa kynnst
því að víða um heim væru stjórnvöld
fyrri til að snúast til varnar fyrir fjár-
málastofnanir heldur en hér á landi.
„En þar sem þetta er viðkvæmt mál
mun ég ekki ræða það nánar hér,“
sagði hann.
Vill harðari
aðgerðir
Í ávarpi sínu fagnaði Bjarni Ármanns-
son, forstjóri Íslandsbanka, því að boð-
að hefur verið aukið gegnsæi í starf-
semi Fjármálaeftirlitsins og sagðist
þeirrar skoðunar að stofnunin ætti að
grípa til harðari aðgerða heldur en
hingað til.
Bjarni sagði að sökum þess hve nýr
og óþroskaður íslenskur fjármálamark-
aður væri hafi virðing fyrir Fjármála-
eftirlitinu gjarnan verið ónóg. Hann
sagði dæmi þess að stofnanir færu vilj-
andi inn á „gráa svæðið“ og að slík
hegðun gæti til lengri tíma skaðað
traust manna á íslenska markaðinum.
Því væri mikilvægt að gripið yrði til að-
gerða gagnvart þeim sem slíkt stunda.
„Til lengri tíma litið eru óskráðar
reglur, hefðir og venjur á markaði rétt
eins mikilvægar og lög og reglur,“
sagði Bjarni.
Mikilvægt að
traust ríki
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, lagði áherslu á það í
ávarpi sínu að ekki yrðu settar sér-
íslenskar reglur á fjármálamarkaði.
Hann sagði aðild Íslands að EES
hafa haft í för með sér fjölda tækifæra
og að rekstrarskilyrði banka og fjár-
málastofnana hefðu verið góð á síð-
ustu árum.
Hann fjallaði einnig um aðlögun að
nýjungum í fjármögnun banka og fjall-
aði um þátt íslenska ríkisins á íbúða-
lánamarkaði og fullyrti að starfsemi
Íbúðalánasjóðs væri ekki í samræmi
við evrópsk lög.
Halldór kvað mikilvægt að traust
ríkti milli markaðsaðila og eftirlitsstofn-
unar og sagði að slíkt traust hefði í för
með sér tækifæri til þess að leysa úr
ágreiningsmálum á greiðari hátt heldur
en ef öll samskipti séu formleg.
Fjármálaeftirlit þarf að
vera óháð stjórnvöldum
Sir Howard Davies, fyrrum forstjóri breska fjármálaeftirlitsins, leggur áherslu á að stofnanir sem eiga að setja og framfylgja
reglum á markaði séu óháðar pólitísku dægurþrasi. Hann segir mikilvægt að aðilar á markaði komi að vinnu við reglusetn-
ingu og úrlausn ágreiningsmála.
Þótt fjármálastofnanir og aðrir
þátttakendur á markaði telji
jafnan að best sé að þeir komi sér
sjálfir saman um reglur þá dugir
sá vilji ekki til þess að hægt sé að
komast hjá opinberum afskiptum
af starfsemi markaða. Þó er mikil-
vægt að opinberir aðilar láti ekki
stjórnast af pólitískum þrætum
þegar slíkar reglur eru settar.
Þetta er meðal þess sem kom
fram í máli Sir Howard Davies á
ráðstefnu Fjármálaeftirlitsins um
þróun íslenska fjármálamark-
aðarins. Sir Davies gegnir nú
starfi rektors London School of
Economics en var áður forstjóri
breska fjármálaeftirlitsins. Í
erindi sínu fjallaði hann meðal
annars um viðleitni yfirvalda á
Evrópska efnahagssvæðinu til að
samrýma reglur um markaði.
Hann hefur miklar efasemdir um
að sú viðleitni hafi í för með sér
fleiri kosti en galla.
Hann sagði að hjá stjórnmála-
mönnum í Evrópusambandinu
gætti tilhneigingar til þess að vilja
setja reglur um málefni viðskipta-
lífsins áður en þörf skapaðist á því
en sjálfur telur hann slíkt verklag
verra heldur en að löggjafinn
bregðist við þeirri þróun sem
þegar er orðin á markaði og sagði
að mikilvægasta verkefnið víðast
hvar væri að framfylgja þeim
reglum sem þegar væru í gildi.
Davies segir að aukin upplýs-
ingagjöf um starfsemi fjármála-
eftirlits sé markaðinum til hags-
bóta. Með því sé skotið sterkari
rótum undir trú fólks og fjárfesta
á því að sanngjörn og heiðarleg
vinnubrögð séu ríkjandi á mark-
aði.
„Ég tel að það sé erfitt að
treysta á að markaðsaðilar setji
sér sjálfir reglur. Í fyrsta lagi
vegna þess að það passar illa í
lagaumhverfið í Evrópu. Í öðru
lagi hvíla rök fyrir slíku fyrir-
komulagi á þeim grunni að mark-
aðsaðilar hafi mikla sameiginlega
hagsmuni. Nú á dögum er þetta
ekki forsenda sem hægt er að
ganga út frá þar sem menn keppa
harkalega sín á milli,“ segir
Davies. Af þessum sökum telur
hann mikilvægt að opinbert reglu-
verk sé til staðar um markaði.
Hann segir hins vegar mikil-
vægt að þær stofnanir sem veita
markaði aðhald og hanna reglur
séu einangraðar gagnvart póli-
tískum hagsmunum. Hann segir
að slíkt fyrirkomulag sé við lýði í
Bretlandi og að fjármálaeftirlitið
þar sé sjálfstæðara en flestir
seðlabankar.
„Það er mikilvægt að einangra
stjórnvöld um markaði frá póli-
tísku dægurþrasi. Í Bretlandi
hefur þetta verið gert. Þar geta
ráðherrar ekki gefið Fjármála-
eftirlitinu fyrirmæli og ráða engu
um fjárveitingar til þess. Mér
skilst að svo sé ekki raunin á
Íslandi. Markaðurinn hefur efa-
semdir um stjórnmálamenn og
því verður markaðurinn trúverð-
ugri eftir því sem eftirlitsaðilarn-
ir eru sjálfstæðari,“ segir hann.
Hann leggur einnig mikið upp
úr því að markaðsaðilar hafi að-
komu að mótun reglna á markaði
og séu kallaðir til við úrlausn
mála. „Það þarf að tryggja að lög-
gjafinn eða eftirlitsaðilinn búi
yfir mikilli þekkingu á markaðin-
um og ráði starfsmenn sem hafa
reynslu af störfum á markaðin-
um. Einnig þarf að gæta að því að
aðilar á markaði hafi aðgang að
nefndum sem vinna að reglum. Í
Bretlandi hafa markaðsaðilar
alltaf aðgang að nefndum sem
rannsaka þau mál sem koma upp.
Markaðsaðilar eru í minnihluta í
slíkum nefndum en þetta fyrir-
komulag tryggir að yfirvöld geri
ekki kröfur sem ekki er raunhæft
að framfylgja,“ segir hann. ■
KÁTIR BANKASTJÓRAR Þeir sátu saman forsvarsmenn stóru íslensku bankanna og
höfðu sér á hægri hönd forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Þrátt fyrir að eiga í harðvítugri sam-
keppni flesta daga fór vel á með þeim. Frá vinstri eru Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins; Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka; Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans; og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka.
ÞÓRLINDUR KJARTANSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
FUNDUR FJÁRMÁLA-
EFTIRLITSINS UM ÞRÓUN
ÍSLENSKA MARKAÐARINS
FORSTJÓRI FYLGIST MEÐ Óskar Magn-
ússon, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar,
var meðal fundargesta í gær og fylgdist
einbeittur með gangi mála.
SJÁLFSTÆÐI MIKILVÆGT Sir Howard
Davies leggur áherslu á að næg þekking sé
til staðar innan stofnana sem fylgjast með
mörkuðum. Hann telur það þó ekki raun-
hæft að markaðsaðilar ráði sjálfir hvaða
reglum beri að framfylgja á markaði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R