Fréttablaðið - 11.01.2005, Síða 45
GOLF Þegar upp var staðið eftir síð-
asta dag fyrsta stórmótsins í golf-
heiminum á nýju ári stóð Ástral-
inn Stuart Appleby uppi sem sig-
urvegari og skaut þannig aftur
fyrir sig öllum stjörnum golf-
heimsins sem tóku þátt. Appleby
varð þar með fyrsti kylfingurinn í
22 ár til að vinna mótið tvisvar í
röð.
Fyrir lokahringinn var Vijay
Singh líklegastur til að byrja nýja
árið á svipuðum nótum og hann
spilaði á liðnu ári enda með eins
höggs forystu og hafði ekki fram
að lokahringnum farið braut yfir
pari. Fjögur högg skildu hann og
Appleby að og fáir bjuggust við að
Ástralinn gæti endurtekið leikinn
tvö ár í röð. En með þrautseigju
og einbeitingu spilaði hann á sex
undir pari og alls á 21 höggi undir
parinu og það dugði til sigurs. ■
ÞRIÐJUDAGUR 11. janúar 2005
flugfelag.is
ÍSAFJARÐAR
5.599 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.699kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
12. - 18. janúar
EGILSSTAÐA
6.299
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
70
23
01
/2
00
5
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.940 kr. aðra leiðina.
KOM Á ÓVART Appleby spilaði loka-
hringinn á Mercedes-mótinu af mikilli ein-
beitingu og vann mótið annað árið í röð.
García úti í kuldanum
Þrátt fyrir 32 stiga meðalhita á ströndum Púertó Ríkó þar sem Jaliesky
García dvelur í góðu yfirlæti er kappinn úti í kuldanum hjá landsliðsþjálfar-
anum Viggó Sigurðssyni eftir framkomu hans undanfarnar vikur.
HANDBOLTI „Það má nánast slá því
föstu að framtíð hans með ís-
lenska landsliðinu sé fyrir bí,“
segir Viggó Sigurðsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, vegna
frétta af því að stórskyttan
Jaliesky García hafi loks fundist á
Púertó Ríkó en hans hefur verið
leitað eftir að hann fór til Kúbu
um jólin vegna fráfalls föður
hans.
Tæp tvo ár eru síðan García,
sem fæddur er á Kúbu, fékk
íslenskan ríkisborgararétt og
hefur hann síðan reglulega spilað
fyrir íslenska landsliðið og staðið
sig með ágætum. Hann var hluti
af þeim hópi sem Viggó valdi til
að leika fyrir Íslands hönd á
World Cup í Svíþjóð í nóvember
síðastliðnum en Viggó tók við
liðinu skömmu áður.
„Þarna er um góðan leikmann
að ræða og hann stóð sig að mínu
viti bærilega og þess vegna valdi
ég hann í þann hóp sem fer á á
heimsmeistaramótið í Túnis en úr
því að hann sýnir landsliðinu ekki
meiri áhuga en svo að strendur á
eyju í Karíbahafi heilla meira þá
eru möguleikar hans nánast engir
að spila undir minni stjórn.“
Viggó segir að hann hafi grun-
að um tíma hvað var á seyði en
það hafi ekki fengist staðfest fyrr
en nú.
„Upplýsingar okkar benda til
þess að hann sé í fríi með konu
sinni en hann hefur ekki gert svo
lítið að láta nokkurn vita af stöðu
mála og í raun málað sig þar með
út í horn hvað mig varðar. Þetta er
vægast sagt fyrir neðan allar hell-
ur og merkilegt afstaða skömmu
eftir að hann hefur orðið sér úti
um íslenskan ríkisborgararétt.“
Viggó vill ekki að svo stöddu
endanlega segja að ferill García
með landsliðinu heyri fortíðinni
til. Telja má þó víst að García fari
ekki með landsliðinu á fimmtu-
daginn kemur til Spánar en þar
tekur liðið þátt í æfingamóti áður
en haldið verður til Túnis á heims-
meistaramótið sem hefst 23.
janúar.
albert@frettabladid.is
GARCIA FER EKKI MEÐ TIL TÚNIS Stórskyttan Jaliesky Garcia fer ekki með íslenska
landsliðinu á heimsmeistaramótið í Túnis enda tók hann frí með konunni fram yfir
æfingar og leiki með landsliðinu.
Ástralinn Stuart Appleby vann fyrsta stórmót ársins:
Skaut stórstjörnum
ref fyrir rass
Kenenisa Bekele:
Sorgin knúði
óvænt dyra
FRJÁLSAR Heims- og Ólympíumeist-
arinn í 10 þúsund metra hlaupi,
Eþíópíumaðurinn Kenenisa
Bekele, mun ekki taka þátt í nein-
um mótum á næstunni en unnusta
hans, hin 18 ára gamla Alem
Techele, lést skyndilega í síðustu
viku. Hneig hún niður við æfingar
og lést án þess að komast til með-
vitundar á ný. Bekele hefur því
aflýst þátttöku á næstu mótum en
þau skötuhjú höfðu blásið til brúð-
kaupsveislu í vor og áfallið því
mikið fyrir þennan mikla
hlaupara. ■
FRJÁLSÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS
Langhlauparinn Bekele keppir ekki á nein-
um mótum á næstunni.