Fréttablaðið - 11.01.2005, Síða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Innritun fyrir vorönn 7. - 17. janúar á www.fa.is
Fjarnám allt árið - þitt nám þegar þér hentar
Skólameistari
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Costa del Sol
Frá 26.900 kr.
Bóka›u núna á www.heimsferdir.is
Hin staðfasta
skoðun
Að hafa skoðun eru forréttindi,segja sumir. Að hafa skoðun eru
mannréttindi, segja aðrir. Spekingur
hafði orð á því að þótt honum líkaði
ekki tilteknar skoðanir skyldi hann
berjast fyrir því að menn fengju að
hafa þær. Sumir hafa ógeðfelldar
skoðanir. Aðrir hafa frábærar skoð-
anir – allt eftir því hvaða skoðun
menn hafa á skoðunum annarra.
Einhverjir hafa skoðanir sem sára-
fáir hafa. Aðrir fylgja fjöldanum.
Allt þetta fæst til dæmis staðfest
með sérlegum skoðanakönnunum
sem Gallup og fleiri gera. Það er
réttur einstaklingsins að fá að halda
í sínar ljótu og fallegu skoðanir.
Hins vegar má færa fyrir því rök
að það sé kostnaðarsamt umstang að
hlusta á skoðanir annarra, velta
þeim fyrir sér, virða þær og jafnvel
framfylgja þeim. Lífið á landinu bláa
væri mun einfaldara ef öll mál réð-
ust af tveggja manna tali. Því er nú
svo komið að það er della og vitleysa
að meirihlutinn ráði. „Aumingja fólk-
ið“ sem veit ekki betur og svarar
delluspurningum í vitleysisgangi.
Skoðanir eru meðal annars til
þess gerðar að finna lausnir. Þær
eru samræður sjónarmiða þar sem
niðurstaðan er vonandi oftast að lok-
um einhvers konar lausn eða í það
minnsta málamiðlun. Einhverjir
kalla slík skoðanaskipti dellu og vit-
leysu. Það má líka segja að tveggja
manna skoðun, með lausn án sam-
ræðna, sé skoðanakúgun. En ef ein-
hver lendir í þeirri aðstöðu að fram-
fylgja skoðunum fjöldans er um að
gera að vera staðfastur og viljugur
og hafa vit fyrir „aumingja fólkinu.“
Að hafa skoðun getur verið óþægi-
legt og erfitt – jafnvel hættulegt.
Einhverjir hafa því tekið þá meðvit-
uðu ákvörðun að hafa ekki skoðanir,
berja þær niður innra með sér og
geyma þær í læstum skúffum. Þeir
hinir sömu segja gjarnan þegar
spurt er: Ég veit ekki hvað skal
segja. Ég vil ekki tjá mig um það.
Hefur ekki forsætis... nei, ég meina
utanríkis... nei, ég meina... æi, sá
sem allt veit... ágætis skoðanir? Til
eru þeir sem vildu gjarnan að Gallup
og fleiri hættu að spyrja „aumingja
fólkið“ heimskulegra spurninga sem
meira að segja forsætis... nei, utan-
rikis... æ, okkar maður er í vandræð-
um með. Svo eru þeir til sem vilja
spyrja spurninga, leita svara og
mynda sér skoðanir á sameigin-
legum hagsmunamálum. ■
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR