Fréttablaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 1
● laus við stjörnustæla og mont Alvaro Calvi: ▲ SÍÐA 42 Hitti Giorgo Armani ● félagið er 77 ára í dag Slysavarnafélag Íslands: ▲ SÍÐA 20 Stofnað eftir hörmungar ● kjörstaðir opnaðir á morgun Kosið í Írak: ▲ SÍÐA 12 Ekki endastöð heldur upphaf MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI LAUGARDAGUR TÓNLEIKAR Í SALNUM Alina Dubik mezzósópran og Jónas Ingimund- arson píanóleikari flytja söngva slavn- eskra tónskálda í Salnum í Kópavogi. Tónleikarnir hefjast klukkan 16. DAGURINN Í DAG 29. janúar 2005 – 27. tölublað – 5. árgangur UMDEILDUR AÐALFUNDUR Heimild- ir herma að verið sé að skapa bakland fyrir Pál Magnússon varaþingmann í Kópavogi. Hann sé á leið í bæjarpólitíkina. Skondin umræða, segir eiginkona Páls. Sjá síðu 2 SAMBANDSLAUST Á SÚÐAVÍK Það er ekki á valdi Símans að koma í veg fyrir snjóflóð, að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins. Þetta kom fram í svari Símans við fyrirspurn Ómars M. Jónssonar, bæjarstjóra í Súðavík. Sjá síðu 2 SKEYTTI EKKI UM LÍF STÚLKU Maður hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ekki komið ungri stúlku í bráðri lífshættu til hjálpar. Stúlkan lést vegna banvænar kókaíns- og e-töflu eitrunar. Sjá síðu 4 LEKI FORDÆMDUR Utanríkismála- nefnd fordæmir harðlega að trúnaðarupp- lýsingar frá fundum nefndarinnar um Íraks- málið hafi komist í hendur Fréttablaðsins. Sjá síðu 6 Kvikmyndir 38 Tónlist 34 Leikhús 34 Myndlist 34 Íþróttir 30 Sjónvarp 40 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 VARÐSKIP Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, vill að nýtt varðskip verði leigt en ekki keypt. Hann telur óskynsamlegt að verja þremur milljörðum króna til kaupa á nýju skipi og segir betri kost að greiða 150 milljónir króna í leigu á ári. Þá telur hann óþarft að nýtt varðskip verði sérhannað fyrir Íslendinga, ekki þurfi annað en að líta til norskra skipa sem notuð eru við svipaðar aðstæður og hér eru. Norska strandgæslan rekur 24 skip en á aðeins þrjú. Hin eru leigð. Skipaleigu er háttað með svip- uðum hætti og flugvélaleigu og jafnvel rekstrarleigu bíla sem er alþekkt meðal Íslendinga. Georg segir ýmsa kosti fylgja leigufyrirkomulaginu. „Í stað þess að binda þrjá milljarða í eign sem ónýtist smám saman gætum við greitt ákveðið leigugjald. Það ætti líka að leiða til skilvirkari endurnýjunar á þessum tækjum.“ Georg Lárusson rennir hýru auga til skipa á borð við þau sem meðal annars eru notuð í Noregi, Það eru millistór fjölnota skip sem nýtast vel til allra verka sem Landhelgisgæslan sinnir. - sjá viðtal við Georg á síðu 24. - bþs KJARAMÁL Launamunur hefur auk- ist mikið hér á landi miðað við alþjóðlega Gini-stuðulinn sem mælir tekjudreifingu. Kvarðinn tekur gildi frá núll og upp í einn, en því hærri sem hann er, því ójafnari er dreifing tekna. Samkvæmt upp- lýsingum frá fjármálaráðherra hefur mismunur ráðstöfunartekna hjóna og sambúðarfólks aukist úr 0,206 árið 1995 í 0,3 árið 2003. Það telst mjög marktæk breyting. Út- reikningur á stuðlinum byggist á öllum tekjum en ekki einungis launatekjum. Sigurjón Þórðarsson, þingmaður Frjálslyndra, beindi nýverið fyrir- spurn til Geirs H. Haarde fjármála- ráðherra um útreikning á stuðlin- um, en hann hefur ekki verið gerð- ur hér á landi síðan Þjóðhagsstofn- un var lögð niður árið 2002. Sigurjón Þórðarson segir að tekjumunur hér á landi sé greini- lega að aukast mikið og hann eigi enn eftir að aukast þegar boðaðar skattalækkanir ríkisstjórnarinnar komi til framkvæmda því þær komi nánast eingöngu hinum efna- meiri til góða. Hann segir tekju- mun í nágrannaþjóðum stöðugan á meðan hann aukist hér á landi. „Tekjumunur fólks hefur lítið verið í umræðunni upp á síðkastið vegna þess að ríkisstjórnin hætti þessum útreikningum,“ segir Sig- urjón. „Þetta er grundvallarbreyt- ing á þjóðfélaginu og í næstu kosn- ingum verður þjóðin að taka af- stöðu til þess hvort það sé í þessa átt sem hún vill þróast.“ Pétur Blöndal, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþing- is, segir að ný starfsgrein hafi orð- ið til með tilkomu og stækkun fjár- málastofnana. Starfsfólk þar fái greidd há laun og það kunni að skýra þróun Gini-stuðulsins hér á landi að hluta. „Annars hefði ég átt von á öðru þar sem lægstu laun hafa hækkað umfram önnur og það hefði átt að minnka þennan mun. En há laun í fjármálageiranum virðast vega þetta upp.“ Talsmenn Alþýðusambandsins höfðu ekki skoðað niðurstöðu fjár- málaráðuneytisins þegar leitað var eftir viðbrögðum í gærkvöld og ekki náðist í Geir H. Haarde fjár- málaráðherra. -ghg Launamunurinn hefur aldrei verið meiri Samkvæmt útreikningum fjármálaráðuneytisins hefur launamunur aukist á undanförnum árum. Niðurstaðan er samkvæmt staðli sem hefur ekki verið notaður hér á landi síðan Þjóðhags- stofnun var lögð niður. Þingmaður stjórnarandstöðu óskaði eftir útreikningnum. Besta afkomuár bankanna: Hagnaðar- met banka VIÐSKIPTI Methagnaður var af bönkunum í fyrra. Viðskiptabank- arnir þrír högnuðust um tæpa 40 milljarða króna. Ef Straumur er tekinn með er hagnaðurinn rúmir 46 milljarðar króna. Afkoma Landsbankans kom verulega á óvart, en búist var við slakri afkomu af síðasta fjórðungi ársins vegna lækkandi hluta- bréfaverðs. Landsbankinn skilaði einum milljarði í hagnað, en spár gerðu ráð fyrir allt að tveggja milljarða tapi á fjórðungnum. Arður til hluthafa þessara skráðu banka fyrir árið í fyrra nemur á tólfta milljarð króna. sjá síðu 11 -hh VONBRIGÐI HJÁ VIGGÓ OG LÆRISVEINUM HANS Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari og lærisveinar hans, Einar Hólmgeirsson og Guðjón Valur Sigurðsson, voru að vonum svekktir eftir tapið gegn Rússum á HM í handbolta í Túnis í gær. Vonir íslenska liðsins um að komast í milliriðil eru nú nánast úr sögunni. Sjá bls. 30-31 Helgi Þorsteinsson: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Bíll fyrir barnið og golfsettið ● bílar Karlar 20-40 ára Me›allestur dagblaða Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004 MorgunblaðiðFréttablaðið 61% 33% VEÐRIÐ Í DAG ÞAÐ DREGUR ÚR VINDI NORÐAN- LANDS Í DAG EN VERÐUR ÁFRAM VINDASAMT ENGU AÐ SÍÐUR Það hlýnar um tíma á landinu í dag. Sjá síðu 4 Kommablót í Neskaupstað Kári Stefánsson gengur á hólm við Hallgrím Helgason á ritvellinum SÍÐUR 26 & 27 ▲ Alþýðubandalagið lifir enn fyrir austan SÍÐA 28 ▲ Af flísum og bjálkum M YN D /A N D R EA S W AL TZ NORSKT STRANDGÆSLUSKIP Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar gæti orðið svipað þessu. Forstjóri Landhelgisgæslunnar um endurnýjun flotans: Nýtt varðskip á rekstrarleigu Hvassviðri: Stormasamt á landinu VEÐUR Mjög hvasst var sums staðar á Vestfjörðum í gær. Lögreglan bað fólk um að vera ekki á ferli að nauð- synjalausu en vindhviður mældust yfir fjörutíu metrar á sekúndu á Þverfjalli. Áð sögn lögreglu á Ísa- firði í gærkvöld hafði kvöldið reynst slysalaust. Í gærkvöldi var einnig ofsaveður á þjóðvegi eitt við Kvísker í Öræf- um. Vindhviður mældust þar 44 metrar á sekúndu síðdegis. Að sögn lögreglu urði engin óhöpp vegna veðurs. -ghg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.