Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 2
2 29. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Öryggiskröfur vegna kosninganna í Írak enn hertar:
Útgöngubann lengt og lokað fyrir umferð
ÍRAK, AP Á annan tug óbreyttra
borgara og íraskra lögreglumanna
létust í árásum uppreisnarmanna í
Írak í gær. Þá voru fimm banda-
rískir hermenn drepnir í þremur
árásum í Bagdad.
Uppreisnarmenn súnní-
múslima, sem hafa beðið fólk að
sniðganga kosningarnar á morgun,
hafa hótað hertum árásum og segja
að spjótunum verði beint að kjör-
stöðum. Vegna þessa á enn að auka
öryggiskröfur vegna kosninganna.
Útgöngubann hefur verið lengt og
landamærum landsins verður lok-
að, sem og flugvellinum í Bagdad.
Þá hefur enn ekki verið tilkynnt
hvar kjörstaðirnir eru.
Á kjördag verður lokað fyrir
bílaumferð óbreyttra borgara.
Stuðningsmenn hryðjuverka-
mannsins Abu Musab al-Zarqawi
sögðust í gær hafa myrt einn af
frambjóðendum á lista Iyad Allawi,
bráðabirgðaforsætisráðherra
landsins. Í gærkvöldi höfðu þær
fréttir ekki verið staðfestar en
mennirnir sögðust ætla að birta
myndir af morðinu á vefsíðu sinni.
Í gær kusu um 280 þúsund Írak-
ar búsettir utan heimalands síns
utankjörstaðar í fjórtán löndum. ■
Ekki á valdi Símans að koma í veg fyrir snjóflóð segir upplýsingafulltrúinn:
Sambandslaust í hættuástandi
FJARSKIPTI Það er ekki á valdi Sím-
ans að koma í veg fyrir snjóflóð,
að sögn Evu Magnúsdóttur, upp-
lýsingafulltrúa fyrirtækisins.
Þetta kom fram í svari Símans
við fyrirspurn Ómars M. Jóns-
sonar, bæjarstjóra í Súðavík, sem
hann sendi vegna þess að bærinn
varð algjörlega símasambands-
laus í óveðri 4. janúar síðastlið-
inn. Á sama tíma var ófært á
milli Súðavíkur og Ísafjarðar.
Ómar segir að síminn sé mikil-
vægt öryggistæki í tilfellum sem
þessum þegar hættuástand skap-
ast. Sambandið rofnaði aðfara-
nótt 4. janúar og kom aftur á um
klukkan sex síðdegis. „Á þessum
tíma var mikilvægt að vera í
sambandi við almannavarna-
nefnd á Ísafirði. Einu samskiptin
sem við gátum haft voru í gegn-
um talstöð björgunarsveitarinn-
ar í bænum.“
Ómar sendi Símanum fyrir-
spurn vegna málsins og hann seg-
ir fyrirtækið hafa brugðist vel
við. „Þeir fullvissuðu okkur um
að þetta yrði skoðað af mikilli
alvöru. Þeir ætla að lágmarka lík-
urnar á því að þetta endurtaki sig
og það kemur til greina að skipta
farsíma- og talsímakerfunum á
milli fleiri stöðva. Þá heldur ann-
að áfram að virka þó hitt bili.“
– ghg
Páll ekki á leið
í bæjarmálin
43 konur skráðu sig í Freyju, félag framsóknarkvenna í Kópavogi, daginn fyrir
aðalfundinn. Heimildir herma að verið sé að skapa bakland fyrir Pál Magnús-
son. Hann sé á leið í bæjarpólitíkina. Skondin umræða segir eiginkona Páls.
STJÓRNMÁL Una María Óskarsdótt-
ir, fyrrum aðstoðarmaður Sivjar
Friðleifsdóttur, var felld úr stjórn
Freyju, félags framsóknarkvenna
í Kópavogi, á aðalfundi á fimmtu-
dagskvöld. Una var varaformaður
félagsins.
43 konur höfðu skráð sig í
félagið fyrr um daginn með að-
stoð Aðalheiðar Sigursveinsdótt-
ur. Aðalheiður er kona Páls Magn-
ússonar, aðstoðarmanns Valgerð-
ar Sverrisdóttur viðskipta- og
iðnaðarráðherra.
Lögmæti fundarins hefur verið
dregið í efa. Sigurður Eyþórsson,
framkvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins, segir að á fram-
kvæmdastjórnarfundi flokksins í
gær hafi verið ákveðið að vísa
málinu til laganefndar hans.
Gagnrýnt hefur verið að
félagskonur hafi ekki vitað um
fjölgunina í félaginu. Konur hafi
skráð sig sem ekki séu með heim-
ilisfang í Kópavogi. Meðal þeirra
sé Edda Björg Hákonardóttir, eig-
inkona Árna Magnússonar félags-
málaráðherra, bróður Páls, sem
búsett sé í Hveragerði.
Aðalheiður segir konurnar
hafa farið að lögum Framsóknar-
flokksins. Ekkert mæli gegn því
að Edda skrái sig í félagið. Aðal-
heiður meti stuðning hennar mik-
ils.
Heimildarmenn segja að með
innkomu kvennanna í félagið sé
stuðningsmönnum Páls Magnús-
sonar fjölgað verulega. Þrjú félög
starfi í Kópavogi. Þau kjósi full-
trúa inn í fulltrúaráð, sem raði á
prófkjörslista og ráði leikreglum
hans. Stefnan sé tekin á að Páll
Magnússon leiði Framsókn í
næstu bæjarstjórnarkosningum.
Aðalheiður segir umræðuna
skondna. „Ég hef ekki heyrt að
Páll sé á leiðinni í framboð í Kópa-
vogi. Hann hefur verið á vett-
vangi landsmálanna en hann er og
verður gríðarlega sterkur í Kópa-
vogi.“
Aðalheiður segir markmiðið
hafa verið að koma Sigurbjörgu
Vilmundardóttur, fyrrum ungliða
Framsóknarflokkins, sem settist í
bæjarstjórn Kópavogs við fráfall
Sigurðar Geirdal, að sem fulltrúa
Freyju í næstu bæjarstjórnar-
kosningum. gag@frettabladid.is
RÓBERT MARSHALL
Vill starfa áfram sem formaður Blaða-
mannafélagsins. Aðalfundur er í vor.
Blaðamannafélag Íslands:
Staða for-
manns rædd
FUNDUR Stjórn Blaðamannafélags
Íslands hefur verið boðuð til fund-
ar á mánudag til að ræða stöðu
mála eftir að formaður félagsins
sagði upp starfi sínu á Stöð 2 eftir
að fréttastofa stöðvarinnar dró til
baka og baðst afsökunar á frétt
hans. Róbert lýsti því yfir að hann
hygðist áfram gegn formennsku í
Blaðamannafélaginu. Arna
Schram varaformaður sagðist
ekki geta svarað því hvort Róbert
nyti trausts til þess enda hefði
stjórnin ekki hist. Fundur hefði
verið boðaður til að ræða málið á
mánudag. - ás
ÍTALIR FASTIR Í SKAFLI Átta Ítalir
og einn Íslendingur festu bifreið
sína í skafli við Berserkjahraun í
umdæmi lögreglunnar í Stykkis-
hólmi. Hún fékk hjálparbeiðni
frá fólkinu um hálf fjögur í gær.
Björgunarsveitin Berserkir var
kölluð til og kom fólkinu úr skafl-
inum um hálfri stund síðar.
Ferðamennirnir voru á fáfarinni
leið sem er ófær. Ætluðu Ítalarn-
ir að kvikmynda landslagið.
HRATT KEYRT Á KÁRAHNJÚKUM
Fjórir voru teknir fyrir of hraðan
akstur á Kárahnjúkasvæðinu
fyrir hádegi í gær. Sá sem hrað-
ast ók var á 120 km hraða. Níutíu
kílómetra hraðahámark er á veg-
inum upp að Kárahnjúkum.
NÝR FORSTJÓRI Hildur Dungal
lögfræðingur hefur verið skipuð í
embætti forstjóra Útlendinga-
stofnunar frá og með 1. febrúar.
Það er Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra sem skipar í stöð-
una.Hildur er 33 ára og tekur við
embættinu af Georg Kr. Lárus-
syni.
Vinnumálastofnun:
15 leyfi til
viðbótar
VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofn-
un gaf í gær út 15 atvinnuleyfi til
viðbótar við þau 24 sem gefin
voru út fyrr í vikunni. Leyfin eru
einkum gefin út fyrir Kínverja og
Pakistana sem munu starfa hjá
Impregilo á Kárahnjúkum.
Í næstu viku verður fundur
með fulltrúum Impregilo til að
fara yfir umsóknir frá fólki á EES-
svæðinu og framhaldið metið.
Þá hafa verið gefin út nokkur
atvinnuleyfi fyrir önnur fyrirtæki,
m.a. í þjónustugeiranum. - ghs
SPURNING DAGSINS
Árni, er verið að grafa undan
þér?
„Nei, en það hefur skapast tækifæri til
að nota þessa ágætu fjölmiðlamenn til
að grafa sjálf göngin til Eyja.“
Fréttastofa Stöðvar 2 flutti viðtal við upplýsinga-
fulltrúa verktakafyrirtækisins NCC sem sagði að
Árni Johnsen færi með rangt mál þegar hann full-
yrti að fyrirtækið hefði metið kostnað við gerð
jarðganga til Vestmannaeyja.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
■ STJÓRNSÝSLA
UNA MARÍA ÓSKARSDÓTTIR
Var varaformaður Freyju en féll úr stjórn fé-
lagsins. Lögmæti fundarins verður kannað.
AÐALHEIÐUR SIGURSVEINSDÓTTIR
Kona Páls Magnússonar segir markmið
kvennanna ekki að koma Páli í bæjarmálin.
Síminn:
Samningar
voru felldir
KJARAMÁL Símsmiðir og rafeinda-
virkjar hjá Símanum hafa fellt
kjarasamninga sem Rafiðnaðar-
sambandið gerðu við fyrirtækið.
Á kjörskrá voru 250 manns en 133
greiddu atkvæði. Rúmlega helm-
ingur þeirra, eða 71, greiddi
atkvæði gegn samningnum en 61
félagsmaður samþykkti hann.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að símsmiðir hafi verið
óánægðir með samninginn. Þeir
hafi sett ákveðin grundvallarskil-
yrði sem hafi ekki verið uppfyllt.
Hann segir að búið sé að boða til
samningafundar með Símanum á
mánudagsmorgun.
- ghg
HERMAÐUR FYLGIST MEÐ UMFERÐ
Bandarískur hermaður fylgist með um-
ferð við Kirkuk í Írak. Öryggisgæsla verð-
ur enn hert í dag og á morgun.
SÚÐAVÍK
Bærinn varð símasambandslaus í óveðri í byrjun mánaðar. Ófært var til Ísafjarðar og einu
samskiptin við umheiminn fóru fram í gegnum talstöð.