Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 10

Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 10
29. janúar 2005 LAUGARDAGUR Ný bjórframleiðsla: Fjármögnun hefst í febrúar SKAGAFJÖRÐUR Undirbúningi bjór- framleiðslu í Skagafirði hefur miðað vel áleiðis og er stefnt að því að bjórframleiðsla hefjist þar í haust. Viðskipta- og rekstr- aráætlun liggur fyrir og verður kynningarbæklingur sendur til fjárfesta í febrúar. Gert er ráð fyrir að 145 millj- ónir þurfi til að koma brugg- húsinu í gang, 95 milljónir í hlutafé sem skipt verður milli einstaklinga og fagfjárfesta og 50 milljónir í lánum. Leitað hefur verið tilboða í vélar, tæki, flutninga og hráefni. Vilhjálmur Baldursson, stjórnarformaður Brugghússins ehf., segir að stefnt sé að því að ná sjö prósentum af íslenska markaðnum. Markaðurinn í heild veltir um 1,6 milljörðum króna. 65 prósent þeirrar upphæðar eru innlend framleiðsla og afgangur- inn innflutningur og er því stefnt að veltu upp á 112-115 milljónir króna. Uppskrift að bjórnum liggur ekki fyrir en vonast er eftir samstarfi við lítil brugghús á Norðurlöndunum; í Noregi, Danmörku eða jafnvel 100 ára gamalt brugghús í Færeyjum. - ghs Umhverfisvernd við Akureyri: Krossanesborgir friðlýstar UMHVERFIÐ Sigríður Anna Þórðar- dóttir umhverfisráðherra und- irritaði í gær auglýsingu um friðlýsingu Krossanesborga við Akureyri. Markmiðið er að vernda svæðið og auka gildi þess til útivistar fyrir almenn- ing, náttúruskoðunar og fræðslu. Svæðið er mikilvægur varpstaður fjölda fuglategunda, búsvæði sjaldgæfra plöntuteg- unda og þar eru ýmsar sérstæð- ar jarðmyndanir. Á svæðinu var um tíma kot- býlið Lónsgerði og enn sést móta fyrir húsatóftunum. Einnig er hægt að sjá ummerki um vatnsveituskurð sem gerður var um aldamótin 1900 og fyrsti akvegur í norður frá Akureyri, lagður 1907, liggur um svæðið. Er það nánast eini búturinn sem enn er eftir af þeim vegi. Á tím- um síðari heimsstyrjaldar voru hermannabraggar á svæðinu, byssuhreiður og gaddavírs- flækjugirðingar og sjá má leifar af þeim stríðsmannvirkjum. Ætlunin er að laga aðkomuna að svæðinu á næstunni, merkja gönguleiðir og bæta aðstöðu fyrir vettvangsnám. - kk Hafa stjórnvöld sofið á verðinum? Félagsmálaráðherra vill reyna til þrautar að leysa deiluna við Impregilo og segir að starfshópur eigi að fjalla um stöðu erlendra starfsmannaleiga. For- maður Samfylkingarinnar telur að stjórnvöld hafi sofið á verðinum. ALÞINGI Össur Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, telur að stjórnvöld hafi sofið á verðinum og ekki sinnt ítrekuðum kröfum verkalýðshreyfingar og stjórnar- andstöðu um að grípa í taumana og setja lög og reglur um starfs- mannaleigur meðan alþjóðleg stór- fyrirtæki á borð við Impregilo hafi stundað félagsleg undirboð og grafið undan samfélagsgerðinni. Þetta kom fram í utandag- skrárumræðu á Alþingi í gær um félagsleg undirboð á vinnumarkaði en Össur var málshefjandi þeirrar umræðu. Össur gagnrýndi einnig stjórn- völd fyrir að hafa ekki tryggt að lögum um iðnréttindi væri fylgt við Kárahnjúka þar sem óbreyttir starfsmenn gengju í störf iðnaðar- manna svo að hundruðum skipti. Þá hefðu þau ekki enn tryggt að skattskylda væri hér á landi. Að- stæður hér væru gróðrarstía fyrir starfsmannaleigur. Heilu íbúðablokkirnar væru byggðar með því að greiða fimmt- ung af eðlilegum kostnaði. Miskinn væri margs konar, til dæmis rýrari samkeppnishæfi starfsmanna og fyrirtækja auk þess sem samfélagið tapaði skatt- tekjum og ætti erfiðara með að standa undir velferðarkerfinu. Árni Magnússon félagsmála- ráðherra svaraði því til að það væri áhyggjuefni ef ekki væru greidd laun í samræmi við kjara- samninga. Lög eigi að tryggja að það sé gert óháð þjóðerni. Deilan geti farið fyrir félagsdóm og komist dómurinn að þeirri nið- urstöðu að samningur hafi verið brotinn sé undanþága til vinnu- stöðvunar. Ráðherra vill viðhalda því vinnumarkaðskerfi sem hér er og láta reyna á málið til þrautar innan þess en mælir gegn opinberri eftirlitsnefnd. Starfshópur hafi fengið það hlutverk að fjalla um stöðu erlendra starfsmannaleiga og hann líti meðal annars til ann- arra landa. ghs@frettabladid.is ÖSSUR SKARPHÉÐINS- SON ÁRNI MAGNÚSSON KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON OG SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR Undirritunin fór fram á Krossanesborgum og auk ráðherra fluttu þar stutt ávörp bæjar- stjórinn á Akureyri og forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K VILHJÁLMUR BALDURSSON Stjórnarformaður Brugghússins ehf.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.