Fréttablaðið - 29.01.2005, Qupperneq 20
Í dag er 77 ára afmæli Slysavarna-
félags Íslands, sem stofnað var í
Reykjavík 29. janúar árið 1928
árum síðan. Félagið heitir í dag
Slysavarnafélagið Landsbjörg eftir
sameiningu við björgunarsveitir
Landsbjargar árið 1999. Fyrsti for-
maður félagsins var Guðmundur
Björnsson landlæknir.
„Félagið var stofnað í kjölfar
mikillar umræðu í landinu,
sérstaklega um sjóslys,“ segir
Þorsteinn Þorkelsson, fjármála-
stjóri hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörgu, en hann er að auki fé-
lagi í Björgunarsveitinni Ársæli í
Reykjavík og sagnfræðimenntaður.
„Það voru ákveðnir menn sem
nefna mætti forkólfa í málinu, svo
sem Oddur V. Gíslason í Grindavík.
Hann gaf út slysavarnablað sem
nefndist Sæbjörg og beitti sér fyrir
slysavörnum til sjós.“
Þá segir Þorsteinn að mann-
skæð sjóslys í aprílmánuði árið
1906 hafi orðið til þess að umræða
um slysavarnir jókst til muna.
„Það var ekki síst fyrir Ingólfs-
slysið við Viðey þar sem Reykvík-
ingar þurftu að horfa upp á menn
farast án þess að geta komið þeim
til hjálpar,“ segir hann, en kútter
Ingólfur fórst eftir að hafa kastað
akkeri við Viðey vegna þess að
ófært var inn í Reykjavíkurhöfn.
Gríðarlegir brimskaflar gengu yfir
skipið og tíndu menn útbyrðis einn
af öðrum þannig að öll 20 manna
áhöfn skipsins fórst. „Þá sáu menn
að til þyrfti að vera búnaður til að
koma mönnum til bjargar og var
þá helst horft til svokallaðs flug-
línutækis, þar sem skotið er línu
með björgunarstól.“ Samfélags-
umræða um nauðsyn þess að koma
á fót samtökum sem héldu utan um
slysavarnarmál skilaði sér svo að
lokum með stofnun Slysavarna-
félags Íslands. „Á Alþingi var lagt
fram frumvarp til laga um lög
félagsins og greinargerð um þau,“
segir Þorsteinn og bætir við að þá-
verandi landlæknir, sem varð
fyrsti formaður félagsins, hafi
verið í forsvari undirbúnings-
nefndar um stofnun félagsins.
„Þetta er auðvitað hörkusaga sem
sjálfsagt væri efni í heila bók.“ ■
20 29. janúar 2005 LAUGARDAGUR
ALEXANDER SERGEJEVITS
PÚSKÍN (1799-1837)
lést þennan dag.
Stofnað eftir hörmungar
TÍMAMÓT: SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS STOFNAÐ
„Sælan er fólgin í glasi fullu af
tei og sykurmola í munni.“
- Púskín var eitt ástsælasta ljóðskáld Rússa og af mörgum
talinn upphafsmaður rússneskra nútímabókmennta. Hann
skoraði ástmann eiginkonu sinnar á hólm. Báðir særðust
og skáldið lést tveimur dögum síðar.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Hallgrímur Snorra-
son hagstofustjóri er
58 ára í dag.
Stefán Ólafsson pró-
fessor er 54 ára í dag.
Eðvarð Þór Eðvarðs-
son sundmaður er
38 ára í dag.
Arnar Guðlaugsson knattspyrnuþjálfari
er 37 ára í dag.
Kolbrún Hauksdóttir, sem er 22 ára í
dag, tekur á móti gestum á Glaumbar
klukkan níu í kvöld.
ÞORSTEINN ÞORKELSSON Þorsteinn er fjármálastjóri hjá Slysavarnafélaginu Lands-
björgu auk þess að vera félagi í Björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík.
Austurríska skíðakonan Ulrike
Maier, tvöfaldur heimsmeistari í
bruni, fórst þennan dag árið
1994 í skíðakeppni sem haldin
var í Þýskalandi. Ulrike, sem var
aðeins 26 ára gömul, hafði ráð-
gert að láta af keppni í lok
keppnistímabilsins, en afréð að
keppa þennan dag þrátt fyrir
slæmar aðstæður í von um að
krækja í nokkur stig í keppninni
um heimsmeistaratitilinn.
Milljónir manna sáu hörmulegt slysið í beinni
útsendingu í sjónvarpi.
Ulrike hálsbrotnaði eftir að hafa kastast út af
brautinni í Garmisch-Partenkirchen á um 105
kílómetra hraða. Talið er að henni hafi hlekkst á
eftir að hafa lent í kafla á brautinni með mjúkum
snjó. Hún missti vald á
öðru skíðinu, missti af sér
hjálminn á ísuðum snjón-
um, rak höfuðið harkalega
í uppistöðu fyrir millitíma-
tökutæki og rann síðan á
bakinu niður hlíðina.
Reyndar voru lífgunartil-
raunir á staðnum en hún
var svo flutt með þyrlu á
sjúkrahús nærri München.
Þremur klukkustundum
eftir slysið var Ulrike Maier úrskurðuð látin. Áður
en keppnin hófst hafði skíðakonan í útvarpsviðtali
gagnrýnt aðstæður í Garmisch-Partenkirchen og
taldi brautina hættulega vegna ísingar og svells. Í
viðtalinu sagði hún að laga þyrfti brautina ef ekki
ætti illa að fara.
29. JANÚAR 1994 Ulrike Maier
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1820 Georg III konungur Breta
andast geðsjúkur í
Windsor-kastala, en í valda-
tíð hans voru gerðar bylt-
ingar bæði í Frakklandi og
Ameríku.
1905 Verulegt tjón verður í
Krýsuvík vegna stórs jarð-
skjálfta með upptök við
Kleifarvatn.
1942 Bandarísku strandgæslu-
skipi sökkt undan Garð-
skaga. Íslensk skip bjarga
85 mönnum en 28 farast.
1949 Bretar viðurkenna nýtt ríki
Ísraels.
1959 95 farast þegar danska far-
þegaskipið Hans Hedtoft
ferst við strönd Grænlands
eftir árekstur við ísjaka.
1961 Körfuknattleikssamband
Íslands stofnað.
1996 La Fenice, 204 ára gamalt
óperuhús í Feneyjum á
Ítalíu, brennur til grunna.
Milljónir sáu banaslys í beinni
Núna um helgina stendur Fugla-
vernd í annað sinn fyrir al-
mennri garðfuglaskoðun og
hvetur landsmenn til að taka
þátt. Markmiðið er að fá sem
flesta til þess að skoða fugla í
görðum sínum og vekja áhuga á
fuglaskoðun og hversu auðvelt
það er að stunda hana. Hliðar-
markmið er svo að afla upplýs-
inga um fugla í görðum lands-
manna, hvaða tegundir eru til
staðar og í hve miklu magni. Á
vef félagsins kemur þó fram að
staðið hafi verið fyrir garð-
fuglaskoðun frá árinu 1994 en
þær hafi félagsmenn annast.
Í fyrra stóð Fuglavernd fyrir
garðfuglaskoðun dagana 24. og
25. janúar. „Þátttaka var ágæt,
fylgst var með fuglum á 40
athugunarstöðum. Í garðfugla-
skoðun 2004 sáust 13 fuglateg-
undir og alls 3.640 fuglar. Snjó-
tittlingur sást í flestum görðum
og var jafnframt langalgengasti
fuglinn, alls sáust 2293. Starar
sáust víða í fyrra og enn fremur
skógarþrestir,“ segir í tilkynn-
ingu félagsins. Þar kemur jafn-
framt fram að Konunglega
breska fuglaverndarfélagið,
RSPB, hafi staðið fyrir garð-
fuglaskoðun allt frá árinu 1979
og að hún sé mjög vinsæl á Bret-
landi. Þar munu síðast hafa
tekið þátt yfir 400 þúsund
manns. Fuglaskoðun fer líka
fram í Bretlandi núna um
helgina, en upplýsingar um hana
er að finna á vefslóðinni:
rspb.org.uk/birdwatch/index.-
asp. Nánari upplýsingar um
garðfuglaskoðunina hér heima
er hins vegar að finna á vef
Fuglaverndar, fuglavernd.is. ■
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1688 Emanuel Swedenborg, heimspek-
ingur
1737 Thomas Paine, rit-
höfundur
1860 Anton Tsjekov,
leikritaskáld
1863 Frederick Delius, tónskáld
1939 Germaine Greer,
femínisti og rithöfundur
1940 Katharine Ross, leikkona
1945 Tom Selleck, leikari
1947 David Byron,
söngvari Uriah Heep
1949 Tommy Ramone, trommari í
Ramones
1954 Oprah Winfrey, leikkona og sjón-
varpsþáttastjórnandi
1970 Heather Graham,
leikkona
1975 Sara Gilbert, leikkona
Allir hvattir til
fuglaskoðunar
SKÓGARÞRÖSTUR Skógarþrestir sáust
víða í görðum landsmanna í garðfugla-
skoðuninni í fyrra.
ANDLÁT
Guðrún Helgadóttir, áður Hvassaleiti
20, Reykjavík, dvalar- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund, lést fimmtudaginn 6. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Aðalsteinn Gíslason, kennari, Kjarrhólma
14, Kópavogi, lést fimmtudaginn 13. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hákon Jónsson, frá Brettingsstöðum í
Laxárdal, lést á Húsavík þriðjudaginn 25.
janúar.
Kristján Ísfeld, Jaðri, Hrútafirði, lést
þriðjudaginn 25. janúar.
Hjalti Guðmundsson, Bæ, Árneshreppi,
lést miðvikudaginn 26. janúar.
JARÐARFARIR
11.00 Christian Patt, Malic, GR., Sviss,
verður jarðsunginn frá Masans-
kirkju í Chur í Sviss.
13.00 Guðrún Brynjólfsdóttir, frá Akur-
ey í Vestur-Landeyjum, Njálsgerði
15, Hvolsvelli, verður jarðsungin
frá Akureyjarkirkju.
13.30 Steinunn Sveinbjörnsdóttir, frá
Vegamótum, Dalvík, verður jarð-
sungin frá Dalvíkurkirkju.
14.00 Björn Kristjánsson, frá Mikla-
holtsseli, verður jarðsunginn frá
Fáskrúðarbakkakirkju.
14.00 Elín Loftsdóttir, Hásteinsvegi 64,
Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum.
14.00 Elísabet Kristjánsdóttir Hrepp-
hólum, Hrunamannahreppi, verð-
ur jarðsungin frá Hrepphólakirkju.
14.00 Guðríður Friðgeirsdóttir, Nausti,
Stöðvarfirði, verður jarðsungin frá
Stöðvarfjarðarkirkju.
14.00 Haraldur Magnússon, Fjarðavegi
12, Þórshöfn, verður jarðsunginn
frá Þórshafnarkirkju.
14.00 Hákon Salvarsson, bóndi frá
Reykjarfirði, verður jarðsunginn
frá Ísafjarðarkirkju.
14.00 Hörður Hermóðsson, Mánagötu
16, Reyðarfirði, verður jarðsung-
inn frá Reyðarfjarðarkirkju.
14.00 Jens Karvel Hjartarson, frá
Kýrunnarstöðum, Engihjalla 11,
verður jarðsunginn frá Hvamms-
kirkju í Dölum.
14.00 Karl Þórðarson, Háeyrarvöllum
44, Eyrarbakka, verður jarðsung-
inn frá Eyrarbakkakirkju.
14.00 Steinþór Benediktsson, bóndi,
Kálfafelli, Suðursveit, verður jarð-
sunginn frá Kálfafellsstaðarkirkju.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samhug, hlýju og styrk við andlát og útför eginmanns
míns, föður okkar og bróður,
Jóhanns Ásmundssonar
safnstjóra, Minjasafns Egils Ólafssonar að Hnjóti.
Sérstakar þakkir til krabbameinsdeildar 11E og líknardeildar LSH,
Kópavogi.
Magnea Einarsdóttir
Árni Klemensson
Einar D. Klemensson Hildur S. Guðmundsdóttir
Jenný Ásmundsdóttir Guðmundur Benediktsson
Hildur Ásmundsdóttir Gylfi Jónsson
Grétar Ásmundsson Kristin Jóhannesdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
Hjalti Guðmundsson
Bæ, Árneshreppi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, miðvikudaginn 26. janúar.
F.h. ættingja,
Guðbjörg Þorsteinsdóttir.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn
hér á síðunni má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI