Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 23
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 5
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 309 stk.
Keypt & selt 43 stk.
Þjónusta 39 stk.
Heilsa 9 stk.
Skólar & námskeið 4 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 9 stk.
Húsnæði 44 stk.
Atvinna 24 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 29. jan.,
29. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 10.16 13.41 17.06
AKUREYRI 10.15 13.26 16.37
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Helgi Þorsteinsson fjárfestir hefur átt
mikinn fjölda bíla.
Helgi Þorsteinsson fjárfestir hefur átt mikinn
fjölda bíla. Hann segir ástæðuna aðallega þá
að hann sé óákveðinn og vilji prófa sem
flestar týpur. Síðast skipti hann út BMW-inum
sínum fyrir Grand Cheroke-jeppling árgerð
2000. Helgi á von á syni, sem áætlað er að
komi í heiminn 3. febrúar, og honum fannst að
BMW-inn yrði of lítill fyrir allt sem fylgir litlu
barni að ógleymdu golfsettinu. Hann þver-
tekur þó skellihlæjandi fyrir að hann sé að
fara í barneignafrí til að spila golf.
„Ég er búinn að eiga jeppann í þrjá mán-
uði og ætla að halda í hann.Ég hef átt bílana
mína að meðaltali í ár og aldrei nema einn í
einu. En ég er mjög ánægður með þennan
bíl, þetta er svona þægilegur og rúmgóður
borgarjeppi sem ég mun örugglega eiga
eitthvað áfram.“
Helgi segist vera með bílaáhugann í gen-
unum en hann grúskar ekki í vélum bílanna
sinna. „Ég nostra samt við þá og bóna til
dæmis einu sinni í viku.“ Af öllum bílum
Helga finnst honum BMW-inn standa upp
úr. „Það var eðalbíll og í miklu uppáhaldi.
En ég get alltaf eignast annan seinna. Nú
gengur allt út á soninn sem ég hlakka of-
boðslega til að eignast.“
En er bíll góð fjárfesting? Fjárfestirinn
hugsar sig ekki um í sekúndubrot og svarar
með einföldu nei-i.
Fyrir utan bílaáhugann á golfið hug
Helga allan. „Ég er búinn að vera í golfi
í sex ár og bakterían er komin til að vera.
Já, ég hef farið í holu í höggi,“ segir hann
og hlær. „En það voru engin vitni svo það
trúir mér enginn.“ ■
Bíll sem rúmar bæði
barnið og golfsettið
bilar@frettabladid.is
Toyota Avenis með 2.0 lítra
dísilvél var kosinn fjölskyldubíll
ársins 2005 af
tímaritinu
WhatCar?
Dóm-
nefndinni
þótti bíllinn skara fram úr
vegna aksturseiginleika sinna,
lítillar eldsneytiseyðslu og út-
blásturs ásamt góðum búnaði.
Öryggi bílsins þótti einnig til
fyrirmyndar en Avensis er bú-
inn fram- og hliðarloftpúðum
fyrir ökumann og farþega til
viðbótar við loftpúðagardínur
og sérhannaðan loftpúða fyrir
hné ökumanns.
Renault var á síðasta ári
söluhæsta bílmerki Vestur-
Evrópu þriðja árið í röð, með
10,3% hlutdeild af heildarsölu
fólksbíla. Ef litið er til einstakra
landa, þá var Renault sölu-
hæsta merkið í Frakklandi,
Hollandi, Belgíu, Portúgal og á
Spáni, annað söluhæsta í
Hollandi og það þriðja sölu-
hæsta á Bretlandi og í
Austurríki. Í Þýskalandi
reyndist Renault síðan
vera söluhæsta innflutta
bílmerkið.
Subaru eigendur í Hollandi
eru ánægðastir með bíla sína.
Nýlega var gerð könnun í
Hollandi á ánægju eigenda
með bílana sína. Könnunin
náði til 77 bílategunda og 35
bílaframleiðenda. Alls voru
24.000 bíleigendur
spurðir og komu
niðurstöð-
urnar ekki á
óvart. Í
flokki milli-
stórra bíla sigraði Subaru
Impreza og í flokki jepplinga
bar Subaru Forester sigurorð úr
býtum
Helgi hefur átt um það bil 20 bíla og nostrað við þá alla.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Blómin inni í
kirkjunni eru
handa þeim sem
eru lasnir eftir
predikunina!
Discovery bíll ársins
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Smíðaár 2000 3.3m x 1.3m. Létt, þétt
og góð. Verð 200 þús. Sími 863 4344.