Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.01.2005, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 29.01.2005, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 29. janúar 2005 Það bar til tíðinda að upplag bókar Magnúsar Þorkels Bernharðs- sonar; Píslarvottar nútímans, skyldi seljast upp um síðustu helgi og bókin skjótast á topp vin- sældalista íslensku bókaþjóðar- innar. Í bókinni er fjallað um sögu stjórnmála og trúarbragða í Íran og Írak; eða þau málefni Mið- Austurlanda sem eru helsta deilu- efni heimsins um þessar mundir. „Þetta er merkilegt því nú eru bókaútsölur í gangi og margar af vinsælustu jólabókunum á tilboði, en engu að síður slær bók Magnúsar aðrar út,“ segir Páll Valsson, útgáfustjóri skáldverka og fræðirita hjá Eddu útgáfu. „Þetta sýnir áhuga þjóðarinnar sem tekur vel við sér þegar henni býðst alvöru bók um málefni Mið- Austurlanda.“ Píslarvottum nútímans var dreift í búðir á föstudag fyrir viku og seldist upp í flestum þeirra áður en ný vika hófst. „Bókin var ekki hugsuð sem metsölubók, en við vissum að áhuginn væri mikill. Þannig var ein vinsælasta bókin í fyrra Arabíukonur eftir Jóhönnu Krist- jónsdóttur. En Magnús er virtur og vinsæll fyrirlesari og maður þóttist vita að hann ætti stóran hóp sem tæki honum vel, enda einn helsti sérfræðingur í málefn- um Mið-Austurlanda í heiminum.“ Og þótt málefnin séu þung er bókin aðgengileg. „Menn lesa hana eins og reyfara, þótt þeir finni að efnið er skrifað af mikilli þekkingu og yfirsýn. Mér finnst áhuginn vera hraustleikamerki á þjóðinni og sýna að Íslendingar eru móttækilegir fyrir góðri vöru. Þetta er bók fyrir almenning á öll- um aldri sem hefur áhuga á því sem er að gerast í veröldinni. Og óneitanlega gaman að gefa út bók af háum standard um málefni sem eru í brennidepli, enda erfitt að setja punkt því málið er lifandi og alltaf einhverjar kúvendingar.“ thordis@frettabladid.is MAGNÚS ÞORKELL BERNHARÐSSON Bók hans Píslarvottar nútímans selst eins og heitar lummur og sýnir svo ekki verður um villst að Íslendingar hafa mikinn áhuga á því að kynna sér málefni Mið-Austurlanda sem best. Píslarvottar nútímans seljast vel

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.