Fréttablaðið - 29.01.2005, Side 40

Fréttablaðið - 29.01.2005, Side 40
28 29. janúar 2005 LAUGARDAGUR Í hugum flestra er Alþýðubanda- lagið ekki lengur til og þar af leið- andi engin starfsemi á vegum þess. Það er þó ekki með öllu rétt því enn er starfandi að minnsta kosti eitt Alþýðubandalagsfélag – Alþýðubandalagið í Neskaupstað. Kommúnistar, síðar sósíalistar og enn síðar félagshyggjufólk í Neskaupstað náði þeim stórmerka árangri að halda hreinum meiri- hluta í sveitarstjórn í 52 ár; frá árinu 1946 til ársins 1998. Þegar vinstrisinnar í Neskaup- stað misstu hreinan meirihluta höfðu þeir haldið völdum þremur árum lengur en kommúnista- stjórnin í Kína sem komst til valda 1949. Vandséð er að þessi árangur vinstri aflanna í Nes- kaupstað verði nokkurn tímann bættur á Íslandi. Þorrablótsklúbbur Engin einhlít skýring er á þessum fágæta árangri en að margra mati spilar þar stórt hlutverk almenn þátttaka í félagsstarfi eins og t.d. þorrablótum Alþýðubandalagsins í Neskaupstað. Allt frá miðjum sjöunda áratug síðustu aldar hafa kommablótin, eins og heimamenn kalla þau, verið ein fjölmennasta og vinsælasta skemmtun bæjar- búa. Í kvöld verður haldið í Egils- búð 39. kommablótið og sem fyrr er það Alþýðubandalagið í Nes- kaupstað sem stendur að blótinu. „Starf félagsins í Neskaupstað breyttist eðlilega þegar Alþýðu- bandalagið gekk af vegi stjórn- málanna og í dag er þetta svona þorrablótsklúbbur,“ segir Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Pólitískir villingar Áður en Alþýðubandalagið í Nes- kaupstað breyttist í þorrablóts- klúbb var ekki vinsælt ef „póli- tískir villingar“, fólk úr öðrum flokkum en Alþýðubandalaginu, mætti á blótin. Kvóti var á miða- sölunni og aðeins flokksbundnir Alþýðubandalagsmenn gátu keypt tiltekinn fjölda miða. Ef í ljós kom að félagsmaður var ekki búinn að greiða árgjöldin þá voru þau snar- lega innheimt um leið og viðkom- andi keypti miða á blótið. Fyrir vikið voru skil á árgjöldum Al- þýðubandalagsins í Neskaupstað með eindæmum góð sem styrkti hið pólitíska starf flokksins í héraði. Þorrablótsgestir mynda 15 til rúmlega 20 manna hópa fyrir blót og sjá hóparnir um alla matseld sjálfir. Matnum er komið fyrir í þar til gerðum trogum sem hóp- arnir taka með á blótið en það er ávallt haldið í Egilsbúð. Algengt er að hver hópur sé með tvö til þrjú trog og með góðgætinu er drukkið bæði sterkt og létt; þó meira af sterku í flestum tilfell- um. Að loknum skemmtiatriðum og miklum söng er farið með trogin heim en hóparnir koma svo í flest- um tilfellum saman á ný daginn eftir blót til að gera matarafgöng- um skil og fara yfir helstu atburði blótsins. Ráðamenn skemmta Guðmundur Bjarnason, bæjar- stjóri Fjarðabyggðar, og Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar, hafa um áratugaskeið séð um að semja og flytja helstu skemmti- atriðin á blótunum í formi annáls sem tekur að jafnaði um einn og hálfan tíma í flutningi. Þar eru ýmsir máttarstólpar bæjarfélags- ins teknir fyrir og þó svo að vont sé að verða með þeim hætti fyrir barðinu á þeim félögum þá er verra að vera sleppt. Smári segir að hann og Guðmundur hafi átt margar dýrðlegar stundir þegar þeir hafa komið saman til að semja annál ársins. Félagi Smirnoff „Guðmundur byrjaði að skrifa annálana löngu fyrir 1980 og ég kom að því máli árið 1982. Reynd- ar má segja að höfundar annál- anna hafi lengi vel verið þrír: Ég, Guðmundur og félagi Smir- noff sem létt hefur geð okkar Guðmundar og aukið okkur hug- myndaflug á þessum stundum. Oft hefur ljúfur reykur frá kúbönskum vindlum fyllt loftið og til að fullkomna réttu stemning- una höfum við gjarnan stillt upp í kringum okkur kaþólskum Jesú- myndum.“ Smári segir að fyrir tveimur árum hafi þeim fjölgað um tvo sem semja og flytja annálinn en þá bættust Guðmundur R. Gísla- son og Jón Björn Hákonarson í hópinn. „Við tókum þessa nýgræð- inga að okkur og erum að ala þá upp í annálaritun. Auðvitað þarf að skóla piltana til en þeir eru efnilegir.“ Skömmin Hefð er fyrir því að annállinn samanstandi af töluðu máli, söng og hljóðfæraleik. Ágúst Ármann Þorláksson hefur lengi séð um tónlistarflutninginn og Helga Steinsson, skólameistari Verk- menntaskóla Austurlands, hefur á undanförnum árum komið að söngnum. Efni annálsins er hins vegar alltaf leyndarmál þangað til kemur að flutningi. „Það eru ótrú- legustu menn sem reyna að veiða upp úr okkur efni annálsins en við erum ætíð þögulir sem gröfin. Maður tekur eftir því að sumir eru í góðu spennuástandi þegar þeir koma í salinn og bíða í ofvæni eftir því hvort þeir verða teknir fyrir. Það fylgir því nefnilega mikil skömm að vera ekki tekinn fyrir og eitt er víst; við tökum sjálfa okkur örugglega fyrir enda úr nógu þar að moða,“ segir Smári. Blótsstjóri í ár verður Karl Jóhann Birgisson og sem slíkur mun hann meðal annars leiða þorrablótsgesti í söng. „Það er mikið sungið á blótunum, mun meira en gengur og gerist á öðr- um þorrablótum. Öflugir og radd- sterkir menn eru gjarnan kallaðir upp og látnir taka þátt í að leiða sönginn. Í ár býst ég við mörgum öflugum söngmönnum á blótið enda miklir uppgangstímar á Austurlandi og þá hafa menn hátt. Mér kæmi ekki á óvart þó að Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, verði kallaður upp að þessu sinni. Hann er stór- söngvari; leitun er að öðrum eins raddstyrk,“ segir Smári. Oft hefur heiðursgestum verið boðið á kommablótið en Smári segir að það sé þó engin regla. „Veður eru válynd á þorranum og stundum hafa heiðursgestirnir ekki komist á blótin. Í ár verða engir heiðursgestir en við erum nú þegar búin að bjóða heiðurs- gesti á þorrablótið að ári.“ Hver það er tekur Smári ekki í mál að upplýsa en hláturinn kraumar í honum þegar talið berst að næsta heiðursgesti. Allir velkomnir Starfsemi Alþýðubandalagsins í Neskaupstað í upphafi nýrrar aldar, sem þorrablótsklúbbs, nýt- ur stuðnings Norðfirðinga úr öll- um stjórnmálaflokkum. Tilhlökk- un og stemning svífur yfir bænum vikuna fyrir blót og sumir þorra- blótsgestana ferðast landshorna á milli til að koma á blótið. Komma- blótin í Neskaupstað hafa verið ríkur þáttur í skemmtana- og menningarlífi Norðfirðinga í hart- nær fjóra áratugi og ekkert bendir til annars en þau verði það áfram. Allir eru velkomnir á kommablótin í dag og þar geta allir skemmt sér hlið við hlið; sósíalistar og samfylkingarfólk, kratar og kommúnistar, framsókn- arfrömuðir og frjálslyndir. Meira að segja íhaldsmenn og aftur- haldskommatittir. kk@frettabladid.is Kommablótin í Neskaupstað STALÍN MESSAR YFIR LÝÐNUM Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, sem fæddur í hlutverk harðstjórans. SÉRA SMÁRI GEIRSSON Þegar líkbíll var keyptur til Neskaupstaðar var sr. Sigurður Ragnarsson, sóknarprestur Norðfirðinga, svo óheppinn að bjóða eldri borgurum bæjarins að skoða bílinn. Var það tilefni til þess að Smári fór í prestsbúning á næsta kommablóti og leyfði gamla fólkinu að máta líkkistu og prófa bílinn. ÞORLÁKUR FRIÐRIKSSON bóndi á Skorrastað í Norðfjarðarsveit. Lalli var um árabil í kvartett sem skemmti blótsgestum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E G Þorrablót Alþýðubandalagsins í Neskaupstað verður haldið í kvöld. Kommablótin svokölluðu hafa verið haldin frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Ráðamenn skrifa skemmtiatriðin og njóta liðsinnis félaga Smirnoffs.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.