Fréttablaðið - 29.01.2005, Síða 43

Fréttablaðið - 29.01.2005, Síða 43
LAUGARDAGUR 29. janúar 2005 31 Farðu á 2 Meistaradeildarleiki fyrir 10 krónur! Arsenal – Bayern München Chelsea – Barcelona og Dregið úr öllum seldum röðum – því fleiri raðir því meiri möguleiki. Allir sem tippa fyrir klukkan 2 í dag geta unnið ferð, gistingu og miða fyrir 2 á Chelsea – Barcelona og Arsenal – Bayern Munchen 8. og 9. mars. Upplifðu Meistaradeildina í návígi! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Aftur á byrjunarreit Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari var ekki sáttur við sína menn eftir tapleikinn gegn Rússum. HM Í HANDBOLTA Þau voru þung sporin hjá landsliðsþjálfaranum Viggó Sigurðssyni eftir leikinn enda ljóst að hann nær ekki því markmiði í Túnis að lenda í einu af sex efstu sætunum. „Mér fannst þessi leikur tapast í huga leikmanna í síðari hálfleik. Mér fannst liðið ekki trúa því að það væri með þessa fínu stöðu í hálfleik eftir mjög slaka byrjun. Við förum illa með dauðafæri og lykilskyttur bregðast. Við sköpum fín færi sem við misnotum gegn miðlungsmarkverði sem ver eins og heimsmeistari og það er okkur að þakka en ekki honum,“ sagði Viggó, sem kann fáar skýringar á slökum byrjunum í síðari hálfleik. „Við erum að gera ótrúlega ein- föld byrjendamistök í vörninni og erum hreinlega á byrjunarreit aftur. Það er langt frá því að okk- ar markmið náist hér í Túnis. Ég er mjög ósáttur við spilamennsk- una hjá liðinu,“ sagði Viggó en hver er ástæðan fyrir þessu gengi? „Það er erfitt að meta það núna. Ég þarf að skoða leikina bet- ur en það er ljóst að það vantar allan stöðugleika í liðið. Við meg- um svo ekki við því að vera án Óla annan leikinn í röð. Það er alveg ljóst. Svo er vörnin bara ekki nógu góð og það vantar klárlega varn- armola í vörnina,“ sagði Viggó og bætti við að gott hefði verið að hafa Sigfús Sigurðsson með í þessu móti. ■ VIGGÓ SIGURÐSSON Kennir lélegri vörn um tapið gegn Rússum. Ólafur Stefánsson: Spilum ekki um verðlaun HM Í HANDBOLTA Ólafur Stefánsson lét óvenjulítið að sér kveða í leikn- um og þegar hann er ekki betri en hann var í gær á Ísland litla möguleika á að leggja Rússa. „Vörnin var alls ekki nógu góð í síðari hálfleik. Liðið hefur gott af því að komast í millriðil svo menn geti náð sér í reynslu en það er ljóst að við munum ekki leika um verðlaunasæti. Það er ekki möguleiki,“ sagði Ólafur, sem var augljóslega mjög svekktur. „Auðvitað er þetta sárt því með sigri hefðum við átt möguleika á að fara með þrjú stig í milliriðil. Ég var að berjast og leggja sálina í þetta og ég held að allir hafi verið að því. Ég nenni ekki að svekkja mig á þessum leik því ég var búinn að svekkja mig nóg eftir Slóvenaleikinn því þar var ég að klikka.“ ■ FJÖGUR AF FIMM Ólafur Stefánsson skoraði úr fjórum af fimm vítum sínum gegn rússneska markverðinum Kostygov, sem varði eins og berserkur í leiknum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.