Fréttablaðið - 29.01.2005, Qupperneq 54
42 29. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Lárétt: 2 ata, 6 jökull, 8 dropi, 9 skálda,
11 einkennisstafir flugvéla, 12 lélegt,
14 lifir, 16 ekki, 17 fljótið, 18 að utan,
20 einkennisstafir, 21 kröftuga.
Lóðrétt: 1 vörumerki, 3 veisla, 4 aflið,
5 eignir látins manns, 7 írinn, 10 fyrrum
leiðtogi, 13 veitingastaður, 15 væta,
16 viðartegund, 19 komast.
Lausn:
Það var fyrir sléttri viku sem
Alvaro Calvi, verslunarstjóra hjá
Sævari Karli, var boðið á einka-
sýningu ítalska fatahönnuðarins
Giorgio Armani í Mílanó. Armani
sjálfur var á staðnum; geislandi
mikilúðlegum sjarma; hlýlegur
og gestrisinn.
„Það var frábært að hitta
Armani. Hann tekur vel á móti
fólki og ræddi við mig áhuga-
samur um Ísland,“ segir Alvaro
sem fyrr um daginn sat tvær sýn-
ingar á vetrarlínu Armani 2006
til 2006. Um kvöldið var partí á
veitingastaðnum Nobu, sem er í
eigu Armani.
„Við ræddum málin vítt og
breitt en mér fannst áberandi
hvað Armani var almennilegur
og laus við alla stjörnustæla og
mont. Ég vona að hann sé þannig
við alla. Hann sagðist aldrei hafa
komið til Íslands, en vissi að
landið liggur að Norðurpólnum.
Honum þótti undur og stórmerki
að í Reykjavík væri verslun sem
selur sérsaumaðan Armani-
fatnað, en það gera sárafáar búð-
ir í heiminum.“
Það var árið 1983 sem Sævar
Karl hóf að selja Armani á Ís-
landi, en vinsældir þess vöru-
merkis hafa verið miklar og stíg-
andi ár frá ári.
„Armani hefur átt þessari
miklu velgengni að fagna því
hann býður alltaf það besta og
minnkar aldrei gæðin. Efni, snið
og saumaskapur er það flottasta
sem fæst í veröldinni. Fötin eru
fyrir alla sem vilja líta vel út og
eru þægileg, en það leggur
Armani út frá. Hann sér ávallt
um að kynna sína hönnun sjálfur;
jafnvel þótt það þýði sex tísku-
sýningar á dag. Þá er Armani
þekktur fyrir að hanna mikið
sjálfur, þótt auðvitað hafi hann
marga hönnuði á sínum snærum
„ segir Alvaro sem sjálfur heldur
mikið upp á Armani.
„Jakkaföt frá Armani kosta
frá 88 þúsund og eru alls ekki
dýr miðað við gæði, en menn
verða að kunna að meta gæðin.
Armani klæðir alla og hægt að
sérsauma eftir máli þótt menn
séu ekki eins og gínur í laginu;
við höfum efnin og tökum mál
sem við sendum beint til Armani
á Ítalíu.“
Alvaro segir ljóst að Armani
passi vel upp á línurnar og útlitið,
en ítalska goðið var valið eitt af
fimmtíu fegurstu manneskjum á
jörðinni 1991 og lítur síst út fyrir
að vera kominn á áttræðisaldur-
inn. „Maður sér að hann passar
sig og stundar líkamsrækt. Á
honum eru engin aukakíló og
hann hefur líkama ungs manns.
Armani er auðvitað fagurkeri
sem lifir og hrærist í því að láta
sér líða vel og líta vel út. Hann er
sólbrúnn en eftir nýjustu tækni,
eins og allir Ítalir sem vilja líta
vel út. Hvort hann hafi svo farið í
lýtaaðgerð veit ég ekki, né vil
vita,“ segir Alvaro hlæjandi og
kærir sig kollóttan. Hann er
sjálfur fæddur í Bólivíu en er af
ítölskum ættum.
„Jú, ætli tískuáhuginn skrifist
ekki á ítölsku genin. Ég hef unnið
í búðinni hjá Sævari Karli í ára-
tug. Þetta er frábært starf og á
vel við mig. Svo var bara hreinn
plús að hitta Armani.“
thordis@frettabladid.is
GIORGIO ARMANI OG ALVARO CALVI Á GÓÐRI STUND Á VEITINGASTAÐ ARMANIS, NOBU Armani bauð Alvaro Calvi, starfsmanni Sævars Karls, á einkasýningu vetrarlínunnar 2005
til 2006 í Mílanó um síðustu helgi. Þeir Alvaro ræddu heima og geima, en Armani hefur enn ekki heimsótt Ísland, sem þó er eitt fárra landa sem selja sérsaumuð Armani-jakkaföt.
ALVARO CALVI: NAUT HÖFÐINGLEGS FÉLAGSSKAPAR GIORGIO ARMANI
Laus við stjörnustæla
Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir:
Margt óupplifað
Ég hef aldrei upplifað
hana. Ég á svo margt
óupplifað í lífinu og kveðjustundin er
eitt af því.
Edda Björgvinsdóttir:
Bless í beli
Ég hata kveðjustundir!!
Hvað getur maður sagt?
„Bless í beli“ eins og
stúlkan í bakaríinu sagði
alltaf í gamla daga? Eða
„Eigi skal bogna sagði munkurinn og
skeit standandi“ eins og pabbi segir
stundum? Hvað með kveðjuorðin:
„...erekkibarallirístuði.. ha “ Og
svo sjáumst við í leikhúsinu.
Guðrún Ásmundsdóttir:
Með kveðjufælni
Ég er mjög lukkuleg yfir að kveðju-
stundin skuli koma einmitt nú, þar
sem ég hef nýlokið nám-
skeiði í kveðjustundum.
Hef ég allt mitt líf verið
haldin vissri kveðjufælni.
Og sögðu góðir vinir
mínir að nú væri kominn
prófessor frá Nýja Sjá-
landi til landsins og væri hann sér-
fræðingur í fjölfælni og væri nú að
hefja námskeið í algengustu fælninni
sem væri kveðjufælni. Er ég nú að
losna úr viðjum allskyns fælni og ætla
að nota mér orð meistarans, en þau
hrutu af vörum hans okkur til heilla í
síðustu viku. „Hafið þið stundina nógu
einfalda vinir mínir,“ sagði hann „seg-
iði bara bless“.
Unnur ÖspStefánsdóttir:
Sífelldar kveðjustundir
Við erum alltaf að
kveðja...kveðja verkefni,
kveðja tímabil, kveðja
hvort annað. Á kveðju-
stund fyllumst við tómatil-
finningu og trega en á
sama tíma er hún upphaf-
ið á einhverju nýju. Ég
kveð ykkur nú með von um að kalt
hvítvín, grillaður kjúklingur og bjartar
sumarnætur taki sem fyrst á móti okk-
ur. Umfram allt kveð ég með einlægri
von um að við hittumst sem fyrst á
næsta horni ;) Með þökkum fyrir ljúfar
stundir.
Björk Jakobsdóttir:
Óþolandi
Þoli þær ekki. Ef ég nauð-
synlega verð að ganga
gegnum þær er best að
hafa þær eins stuttar og
hægt er. Og ekki kveðja
að eilífu. Sjáumst seinna er mín
kveðja til ykkar allra.
| 5STELPUR SPURÐAR |
Kveðjustundin?
... fær Auður Jónsdóttir fyrir bók
sína Fólkið í kjallaranum. Auður
hlaut í fyrradag Íslensku bók-
menntaverðlaunin í flokki fagur-
bókmennta.
HRÓSIÐ
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2káma,6ok,8tár, 9sem,11tf, 12
slakt,14tórir, 16ei,17ána,18inn,20nk,21
knáa.
Lóðrétt: 1boss,3át,4máttinn,5arf,
7keltinn,10maó,13krá,15raki,16eik,19ná.
Opið:
Laugardag 10-17Sunnudag 11-15
afsláttur af fluguhnýtingaefni í tilboðskassa, yfir 2.000 stk.
afsláttur
af skotlínum
afsláttur
LOOP Black line
flugustöngum
afsláttur
LOOP goretex
vöðlujakka.
afsláttur
af öllum
LOOP stöngum
www.ut iv is togveidi . is
Dæmi:
15-20% aukaafsláttur á
kassa á mörgum vörum!
Örfáar eftir
Almenningi er nú boðið að giska á
sigurvegara Íslensku tónlistar-
verðlaunanna í eins konar veð-
banka á visir.is. Verðlaunin verða
afhent í Þjóðleikhúsinu þann 2.
febrúar. Á síðunni er hægt að
giska á hver muni vinna í hverjum
flokki og eru vegleg verðlaun í
boði fyrir þann sem nær flestum
réttum. Vinningshafinn hlýtur
ferð til Kaupmannahafnar með
Icelandair ásamt gistingu fyrir
tvo, miða á tónleika með U2 í
Parken og 2.000 krónur danskar í
gjaldeyri frá Landsbankanum.
Einnig er hægt að taka þátt í kosn-
ingu á vinsælasta flytjanda Ís-
lands með netkosningu á visir.is.
Netkosningin stendur til klukkan
18 að kvöldi 1. febrúar. Daginn
eftir hefst svo síma- og SMS-kosn-
ing og stendur valið á milli þeirra
fimm efstu í netkosningunni.
Vinsælasti flytjandi ársins er
valinn úr hópi þeirra sem hlutu
tilnefningu í Popp- og Rokkflokki
og Jazzflokki. Niðurstaðan í vali
almennings á vinsælasta flytj-
enda ársins 2004 verður svo kynnt
í lok útsendingar frá hátíðarsam-
komu tónlistarmanna í Þjóðleik-
húsinu. Tveir heppnir þátttakend-
ur verða dregnir úr potti að kvöldi
1. febrúar og fá miða fyrir tvo á
hátíð Íslensku tónlistarverðlaun-
anna. ■
Ferð fyrir tvo á U2-tónleika
U2 Sá sem kemst næst því að veðja á
rétta sigurvegara Íslensku tónlistarverð-
launanna á visir.is hlýtur ferð fyrir tvo á
U2-tónleika.