Fréttablaðið - 13.02.2005, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 13.02.2005, Blaðsíða 37
SUNNUDAGUR 13. febrúar 2004 Svar: Lyftingar og áhrif þeirra á líkamsvöxt ungmenna vekja greinilega áhuga margra, sér- staklega unglingsdrengja og Vísindavefnum hafa borist nokkrar spurningar um það efni, til dæmis: Er hættulegt að byrja að lyfta áður en maður nær fullum þroska? Hvað þarf mað- ur að vera orðinn gamall til að hefja lyftingar fyrir alvöru og neyta kreatíns? Er það satt að ef maður byrjar að lyfta þá hætti maður að stækka? Vaxtarlínur og meiðsli Slæm íþróttameiðsli, áverkar eða álagsmeiðsli á meðan ungl- ingar eru enn að vaxa geta haft áhrif á vöxt, sérstaklega ef bein- brot eða áverkar verða við svo- kallaðar vaxtarlínur, en það eru þeir staðir á beinum þar sem lengdarvöxtur þeirra fer fram. Slík meiðsli geta stöðvað vöxt viðkomandi beina. Dæmi um slík meiðsli þekkjast til dæmis í íþróttum eins og bandaríska hafnaboltanum (kasthendi þess sem kastar boltanum) og tennis (högg á olnboga). Börn og lyftingar Þó aldrei sé algerlega hægt að útloka slys þá er – ef rétt er staðið að málum – hverfandi hætta á meiðslum hjá börnum og unglingum við að lyfta lóðum. Þetta undirstrikar líka að mjög mikilvægt er að standa rétt að því þegar börn og unglingar lyfta lóðum. Þau hafa ekki alltaf þroska eða getu til að fram- kvæma sömu æfingar og full- orðnir og geta orðið fyrir meiðslum við að reyna það. Mikilvægast er að byrja rólega á léttum þyngdum og læra rétta líkamsbeitingu, það er hvernig á að framkvæma hverja æfingu. Best er að fagfólk kenni réttar æfingar Það er einnig mikilvægt að sam- setning æfinga sé rétt og æfingaáætlanir séu rétt upp byggðar. Nauðsynlegt er því að fólk með fagþekkingu (íþrótta- kennarar, sjúkraþjálfarar) kenni hverjum og einum æfingarnar og fylgist með þeim. Rétt er að vera á varðbergi gagnvart einkaþjálfurum vegna þess að menntun þeirra er mjög misjöfn og ekki víst að þeir hafi allir þekkingu á börnum og ungling- um og því sem þau þurfa að varast. Áhrif lyftinga breytast við kyn- þroskaaldur Ef rétt er að lyftingunum staðið er ekkert sem bendir til þess að þær hafi neikvæð áhrif á vöxt og þroska. Þvert á móti geta þær haft jákvæð áhrif til dæmis á hreyfifærni og styrk vöðva, sina og beina. Hins vegar hefur það að lyfta lóðum ekki sömu áhrif á vöðvana fyrir og eftir kyn- þroska. Lyftingar fyrir kyn- þroska hafa eftir því sem flestar rannsóknir sýna ekki þau áhrif að vöðvarnir stækki eins og þeir vilja gera hjá karlmönnum eftir kynþroska. Ástæðan er lík- lega breytingar á hormónafram- leiðslu líkamans við kynþroska. Lyftingar fyrir kynþroska hafa því fyrst og fremst áhrif á hreyfiþroska. Þær bæta meðal annars samhæfingu hreyfinga og hreyfifærni. Börn í vöggu lyfta pela Ekkert einhlýtt svar er við því hversu gömul börn mega vera til að byrja að lyfta lóðum. Börn strax í vöggu byrja að lyfta pela og léttum leikföngum sem er gott fyrir hreyfiþroska þeirra. Þeir fræðimenn sem mest hafa rannsakað þetta mæla með því að börn yngri en 7 ára noti ekki þyngdir nema þá mjög léttar (og þá helst bolta eða léttar stangir án lóða). Áhersla skal heldur vera á að þau læri fyrst og fremst að framkvæma æfingar rétt án hjálpartækja. Jafnframt að æfingar standi stutt í einu og að hæfilegur tími líði á milli þeirra. Byrjendur eiga að fara hægt af stað Frá 8 ára til 16 ára er mælt með því að það verði smám saman aukning í hlutfallslegri þyngd lóða og magni æfinganna, það er hversu oft og hve lengi er æft í hvert skipti. Þegar unglingar hafa náð 16 ára aldri á að vera óhætt að stunda lyftingar af fullum krafti þó með þeim fyrir- vara sem að framan greinir: að byrjendur byrji hægt og læri að gera allar æfingar rétt undir leiðsögn fagaðila. Ekki er mælt með því að ung- lingar neyti kreatíns Mjög litlar rannsóknir eru til á áhrifum kreatíns á börn og unglinga, en hægt er að lesa meira um kreatín á Vísinda- vefnum í svari Steinars B. Aðal- björnssonar við spurningunni Hvað er kreatín? Hollusta kreatíns fyrir fullorðna er um- deild og efnið gagnast ekki nema þeim sem stunda lyftingar í mjög miklum mæli. Ekki er því hægt annað en að mæla gegn því að börn og unglingar undir 18 ára aldri neyti kreatíns. Þórarinn Sveinsson, dósent í lífeðlisfræði við sjúkraþjálfunar- skor HÍ. BARN Í VAXTARÆKT Rétt er að vera á varðbergi gagnvart einkaþjálfurum vegna þess að menntun þeirra er mjög misjöfn og ekki víst að þeir hafi allir þekkingu á börnum og unglingum og því sem þau þurfa að varast. Börn og lyftingar Hvenær mega börn og unglingar byrja að lyfta lóðum? Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Meðal spurninga sem þar hefur verið glímt við undanfarið eru til dæmis: Hvaða munur er á vistrænni og lífrænni ræktun, hvaða spaða er verið að tala um þegar menn eiga að ìhalda rétt á spöðunumî, hvað er q-hlutfall og hvers vegna er ekki veitt Nóbelsverð- laun í stærðfræði? Hægt er að lesa svörin við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum með því að setja efnisorð inn í leitarvél vefsins á slóðinni www.visindavef- ur.hi.is. VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.