Tíminn - 19.01.1975, Side 23
Sunnudagur 19. janúar 1975.
rivnw
23
Þó að SlMBl væri ekki stór, þá varð þjófurinn ofsahræddur
fundið mannaþef. Og þá
hefði hann ef til vill
getað umflúið örlög sin.
Það barst aumkunar-
legt neyðaróp út yfir
sléttuna. Það barst lika
til eyrna foreldra
SIMBA, en þau komu of
seint þangað sem hin
lævisa giidra hafði verið
búin syni þeirra. Þau
fundu gryfjuna tóma, og
upp úr henni lagði þef-
inn, sem var eins og
siðasta kveðja frá litla
Ijónsunganum.
Tæpri viku siðar var
SIMBI vel geymdur i
kassanum og á leið til
Evrópu á skipi. Veiði-
mennirnir komu til
gistihúss, og skrifuðu
nöfn sin í gestabókina, —
en nafn SIMBA var ekki
skrifaö þar, þvi að eng-
inn mátti vita um hann.
SIMBI fékk auðvitað
sitt herbergi, og veiði-
mennirnir gættu þess,
að opna ekki kassann
fyrr en gluggum og
dyrum hafði verið læst
og lokað, en herbergi
SIMBA var inn af þeirra
herbergi, þvi að þeir
ætluöu að gæta hans vel.
Um langan tima hafði
borið mikið á svo-
kallaðri „hótelrottu” i
gistihúsinu. En það eru
kallaðir þjófar þeir, sem
læðast um á hótelum og
stela frá gestunum.
Langa lengi hafði þessi
þjófnaður átt sér stað,
en enginn hafði séð þjóf-
inn eða getað hand-
samaö hann. Þetta var
gott gistihús
,,Empire-hótelið”, og
þar bjó oft rikt fólk, sem
hafði mikil verðmæti
með sér. Nú voru gest-
irnir orðnir smeykir að
búa þar, þvi að enginn
gat verið öruggur um
sig og eigur sinar.
Dulbúnir lögreglu-
þjónar höfðu verið
fengnir þangað til að
leita þjófsins, en þeir
höfðu einskis orðið
visari.
Þá kom SIMBI til sög-
unnar. — Nótt eina
heyrðist voðalegt
angistaróp um allt gisti-
húsið, og þegar fólkið
kom þjótandi inn i her-
bergið, sem ópið kom
fra' þá fannst þar maður
i einu horni her-
bergisins, skjálfandi af
hræðslu. Hann var með
grimu fyrir andliti og
þjófalykil i hendi, svo að
það var ekki um að
villast, að þarna var
þjófurinn.
En hvað var það, sem
hafði komið honum til
þess að reka upp þetta
hræðilega angistaróp,
þaö skildu menn fyrst,
þegar þeir litu undir
rúmið i herberginu. Þar
undir heyrðist geig-
vænlegt urr, og tvö stór,
leiftrandi augu lýstu i
myrkrinu undir rúminu.
Hvitar tannaraðir i opnu
gini sýndu hvað um var
að vera og hafði gert
þjófinn svo dauð-
skelkaðan, að hann varð
allshugar feginn, þegar
lögreglumennirnir
komu og leiddu hann
burt. Þetta var þá
SIMBI, litli ljónsunginn,
sem hafði hrætt þjófinn
svo herfilega, að hann
grét og sagðist heldur
vilja vera alla ævi i
fangelsi, en vera einu
augnabliki lengur i nánd
við þessa hræðilegu
ófreskju, sem hann hafði
séð undir rúminu. Þá
var SIMBI ofurlitill
Ijónsungi, en hann var
sonur konungs dýranna
og hann skaut vesælli
„hótelrottu” skelk i
bringu.
Nú varð ljónsunginn
eftirlætisgoð allra i
gistihúsinu. Margar
konur færðu honum
hunang i þakklætisskyni
fyrir það, að nú fengu
þær aftur skrautgripi
sina. Litlar stúlkur vildu
fá að strjúka feldinn
hans mjúka. En það
vildi SIMBI ekki.
Hunang gat hann þegið,
en engin bliðulæti.
Smám saman gleymdi
SIMBI að urra og glenna
upp ginið. Hann varð
gæfur og þolinmóður.
Hvað stoðaöi það fyrir
hann, að berjast á móti
örlögunum? Mennirnir
höfðu hvort sem var
borið hærri hlut.
Nú dvelur SIMBI i
Hagenbecksdýragarði
og lifir rólegu lifi.
(Þýtt)
ASCO TRYGGIR GÆÐIN
Þér getið búist við sann-
gjörnu verði, fullkomnum
gæðum og góðri endingu.
bess vegna er ASCO-kúplings-
diska aö finna i ameriskum,
evrópskum og japönskum bif-
reiðum i yfir 90 löndum. Toy-
ota og Mitsubishi nota ein-
göngu ASCO-kúplingsdiska.
Næst er þér þurfið á kúplings-
diski að halda — þá biðjið um
kúplingsdisk frá ASCO.
0mnm
Ármúla 24 • Sími 8-14-30
Reykjavík
Já! Þetta fæst
allt í
byggingavöru-
kjördeildinni.
Hér verzla þei
sem eru að
byggja eða
þurfa að
endurnýja.
Húsbyggjendur
EINANGRUNARPLAST
Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavikursvæðiö með stuttum fyrir-
vara.
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆM VERÐ.
GREIÐSLUSKILMALAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Sími 93-7370
Helgar- og kvöldsimi 93-7355
■v