Tíminn - 19.01.1975, Qupperneq 25
Sunnudagur 19. janúar 1975.
TÍMINN
25
t síðasta mánuði voru teknar nokkrar llnur úr þessu kvæði I bókar-
umsögn, sem birtist hér I blaðinu. t þessu, sem tekið var upp, reyndist
vera meinleg prentvilla (sem að visu var ekki Timanum að kenna), og
þess vegna er nú kvæðið birt hér i heild.
Rangárþing
Á björtum degi til austurs þitt auga leit,
yfirbragðsmikil fjöll með jökla að baki,-
Blessun er yfir búskap i hverri sveit,
blauta mýrin orðin að sigrænum reit.
Lofa skal þá, sem lyfta þar grettistaki.
Þér birtist Hekla háleit tigin og frið,
en heldur austar Tindfjallajökull skartar
og Þrihyrningurinn dökkblár með dimmgræna hlið,
hér dunar þér sagan i eyrum frá Njálutið,
er kvislar Fiskár siga fram silfurbjartar.
Já, saga þins héraðs er fræg, en þá fregn ber nú
hátt,
hvað framtakið leiðir til gæfu i hverju spori,
moldarhnausana mylur tæknin i smátt
mildar jarðveginn eykur hans gróðurmátt
svo gömlu sandarnir grænka á hverju vori.
Og jökulhjálminn þinn hátt yfir Hliðina ber
það hyllir upp Þórsmörk i litum sem þér eru kunnir.
Þú veist að sá jökull er vakandi yfir þér,
sem visaði landnámsmönnum að ströndinni hér
á blómlegt hérað, — i sýsluna sem þú unnir.
Pálmi Eyjólfsson.
Félag bifvélavirkja 40 éra
SJ-Reykjavik. Félag bifvéla-
virkja varð 40 ára 17. janúar s.l.
Stofnendur félagsins voru 40—50
bifvélaviðgerðamenn, en nú eru
félagsmenn 350. Fyrsta verkefni
félagsins var að fá bifvélavirkjun
Sparib
þúsundir!
verðstaðreyndir:
Vörubilahjóibaröar: 900-
16/10 kr. 15.015. 825-20/12 kr.
18.000. 1000-20/14 kr. 28.715.
1000-20/16 kr. 30.070. 1100-
20/14 kr. 31.150.
SÖLUSTAÐIR:
Hjólbarðaverkstæðið
Nýbarði, Garðahreppi.
Simi 50606.
Skodabúðin, Kópavogi.
Simi 42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri
h.f. Simi 12520.
Varahlutaverzlun Gunnars
Gunnarssonar, Egilsstöðum.
Simi 1158.
TÉKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUDBREKKU 44-66 SIUI 42600 KÚPAVOG!
samþykkta sem iðngrein árið
1935. í fyrstu voru bæði launþegar
og vinnuveitendur i félaginu, en
frá 1937 aoeins launþegar og
sama ár fékk félagið inngöngu i
Alþýðusamband íslands. Félagið
hefur m.a. beitt sér fyrir fræðslu-
námskeiðum fyrir félagsmenn,
sem hafa gefið góða raun. Félagið
er nU með lausa samninga eins og
flest önnur verkalýðsfélög.
Fyrsta stjórn félagsins var
þannig skipuð: Formaður Eirikur
Gröndal, ritari Óskar Kristjáns-
son, gjaldkeri Nicolai Þorsteins-
son.
Formenn félagsins hafa verið
Eirikur Gröndal i 2 ár, einnig var
hann i undirbUningsstjórn, Valdi-
mar Leonhardsson 20 ár, hann er
nU heiðursfélagi. Lárus Guð-
mundsson 1 ár, Björn Steinsdórs-
son 2 ár og Sigurgestur Guðjóns-
son i 14 ár, en hann hefur átt sæti i
stjórn félagsins siðan 1935. Aðrir i
stjórninni nU eru Guðmundur
Hilmarsson, varaformaður, Ein-
ar Steindórsson ritari, Eyjólfur
Tómasson gjaldkeri, Samson Jó-
hannesson varagjaldkeri, Björn
Indriðason gjaldkeri Styrktar-
sjóðs og Sigurður Óskarsson með-
stjórnandi. Starfsmaður félagsins
er Guðmundur Hilmarsson.
Óskilahestar
I Grimsueshreppi eru eftirtaldir hestar i
óskilum.
Rauðblesóttur hestur gamall. Leirljós
hestur 8 til 9 vetra.
Móbrúnn hestur á öðrum vetri. Hestarnir
eru ómarkaðir.
Nánari uppl. veitir Sigurður Gunnarsson, Bjarnar-
stöðum. Simi um Minni-Borg. Hestarnir verða seldir 2.
febrúar kl. 2 e.h. hafi réttir eigendur ekki vitjað þeirra.
Hréppstjórinn.
Stéttarfélag barna-
kennara í Reykjavík
Almennur fundur verður haldinn þriðju-
daginn 21. janúar 1975 i Átthagasal Hótel
Sögu kl. 20,30.
Fundarefni: Móðurmál og erlend tungu-
mál i skyldunámi.
Frummælendur: Andri ísaksson, prófess-
or, Hörður Bergmann, námsstjóri.
Fundarstjóri: Ingi Kristinsson, skóla-
stjóri.
Allir velkomnir. — Stjórn S.B.R.
Viðskipta-
fræðingur
Búvörudeild Sambandsins leitar eftir við-
skiptafræðingi i bókhaldsstörf.
Gjörið svo vel og hafið samband við
starfsmannastjóra I sima 28200.
Starfsmannahakl
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Laus staða
Staða afgreiðslustjóra við lögreglustjóra-
embættið i Reykjavik er laus til umsókn-
ar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins. Umsóknir um stöðuna, ásamt
upplýsingum um menntun og starfsferil,
skulu sendar embættinu fyrir 15. febrúar
n.k.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
17. janúar 1975.
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNIR. — Tveir að-
stoðarlæknar óskast til starfa á
Barnaspitala Hringsins frá 1. marz
nk. i sex mánaða stöður. Umsókn-
arfrestur er til 15. febrúar nk. Nán-
ari upplýsingar veitir yfirlæknir
Barnaspitalans.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til
starfa á endurhæfingadeild Land-
spitalans nú þegar eða eftir sam-
komulagi. Upplýsingar veitir yfir-
læknir deildarinnar.
KI.EPPSSPÍTALINN:
IIJÚKRUNARKONUR óskast til
starfa á hinum ýmsu deildum
spitalans i fast starf og til afleys-
inga. Vinna hluta úr fullu starfi
kemur til greina.
Upplýsingar veitir forstöðukona,
simi 38160.
LÆKNARITARI óskast til starfa
við spitalann, hið fyrsta. Umsókn-
arfrestur er til 26. þ.m.
Umsóknum, er greini aldur,
menntun og fyrri störf, ber að
senda skrifstofu rikisspitalanna.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi
á sama stað.
Reykjavik, 17. janúar 1975.
SKRIFSTOFA
RIKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5.SÍM111765
RÍKISSPÍTALARNIR