Tíminn - 17.05.1975, Side 7
•T.’.La.ugaraagtír-£?Vrti&iJl975.
tV.^TtMlNN
- 7
,,Espana —75"
Enn ein alþjóðasýningin er
liðin. Að þessu sinni var hún
haldin i Madrid á Spáni.
Sýningin var haldin i tveim
stærstu sýningarhöllunum i
Feria Del Campo, Kristal-
höllinni, sem er númer X og höll
númer XI.
Það fer ekki á milli mála, að
þetta var ein með glæsilegri
alþjóðasýningum, en skipulagið
hafði farið alvarlega úr
skorðum um það bil mánuði
áður en sýningin hófst og bitnaði
það á allri sýningunni. Mikið
var um tóma ramma, sumpart
vegna þess, að efni komst ekki
inn, þar sem pláss sýnenda var
skoriö of mikið niður, en lika
vegna þess, að ekki tókst að
koma upp sýningarefni nógu
tfmalega. Þetta lagaðist þó
mikið er líða tók á sýninguna.
Einn sá hlutur, er mesta at-
hygli vakti, var eins og svo oft
áður á slikum sýningum
tunglpósthús Bandarikjanna.
Var þar stöðugur straumur
folks að skoða þessa einföldu
hluti, sem notaðir voru til að
stimpla póst á tunglinu, ásamt
bréfi þvl er þar var stimplað.
Það, sem virtist vekja mesta
athygli, var þó sala tveggja
blokka, sem út voru gefnar af
tilefni sýningarinnar og
eingöngu seldar á sýningarstað
— þeim er keyptu aðgöngumiða
og aöeins eitt blokkarsett út á
hvem aðgöngumiða. Biðraðir
við sýningarhöllina urðu ýkju-
laust um 5 kilómetra langar, og
fyrstu dagana fór fólk að biða
klukkan 5 á morgnana til að
komast að. Tók biðin við hin fáu
sölugöt innanhúss um 3
klukkutima og gafst undir-
ritaður upp á að bfða eftir að fá
að kaupa þessar blokkir á
sýningarstað. Eftir sýninguna
var svo óselt upplag eyðilagt.
Mesta athygli einstakra
frimerkja á sýningunni vakti
frimerkið frá Brezku Guineu, en
af þvi er aðeins eitt eintak til i
heiminum.
Frá íslandi voru aðeins tvö
söfn á sýningunni, og voru þau
einu söfnin frá einstaklingum er
kynntu ísland, en auk þess var
svo sýningarefni frá islenzku
Póststjórninni, sem tók sig
ágætlega út i hinni opinberu
deild. Einstaklinga-söfnin voru
aftur á móti illa staðsett, innst á
efstu hæð I höll X og urðu vist
ekki á vegi margra.
Þaö, sem þvi miður einkenndi
sýningunna allt of mikið var
kaupskapur. Við talningu á
öðrum degi sýningarinnar, voru
um 60 manns að skoða sjálft
sýningarefnið á 3 hæðum i höll
X, á meöan þúsundir voru að
biða við sölulúgurog iverzlana-
deildinni. Hátt á annaðhundrað
þúsund manns sóttu sýninguna.
En mikið má Suðurevrópu-
þjóöum fara fram i skipulagi, ef
svona lagað á ekki að endurtaka
sig.
Sigurður H. Þorsteinsson.'
Biðraðir náðu lengra en myndavélin dró.
EYJOLFSSONAR
Smiðjuvegi 9 Kópavogi sími 43577
Klæðaskápur
frá okkur
er lausnin...
Tunglpósthús Bandarikjanna i glerkúlu var ákaft skoðað.
SPr,NG
DYNUR
KM-springdýnur
Framleiðum nýjar springdýn-
ur, einnig eins og ' tveggja
manna rúm. — Gerum við
notaðar springdýnur sam-
dægurs.
Helluhrauni 20 Opið til 7 alla
Hafnarfirði virka daga.
Sími 5-30-44
A
Vinnuskóli
Kópavogs
Vinnuskóli Kópavogs verður starfræktur i
sumar fyrir unglinga sem fæddir eru 1960
og 1961.
Innritun i vinnuskólann fer fram 21. og 22.
maikl. 10-12 og 13-15 að Álfhólsvegi 32 (11.
hæð).
óskað er eftir þvi að umsækjendur hafi
með sér nafnskirteini.
Allar nánari upplýsingar gefnar i sima
4-15-70.
Félagsstofnun Kópavogs
Hægt er að fá
skápana óspónlagða,
tilbúna
að bæsa eða mála
...og vandfundnir eru hentugri
klæðaskápar hvað sainsetningu
og aðra góða eiginleika varðar.
Litmyndabæklingur
um flestar gerðir klæðaskápa,
samsetningu, stærðir, efni og
verð ásamt öðrum upplýsingum.
Allar gerðir klæðaskápa
eru til í teak, gullálmi og eik.
Vinsamlegast sendið mér nýja litmyndabæklinginn
um klæðaskápana.
Nafn:
Skrifið me8 prentslölum
í
Heimilisfang:.
J Husgagnaverslun Axels Eyjóllssonar, SmiSjUvegi 9, Kópavogi. |