Tíminn - 17.05.1975, Qupperneq 16
16
TÍMINN
Laugardagur 17. mai 1975.
Ásgeir Bjarnason, forseti sameinaðs þings:
Farsælt er að sníða sér stakk
eftir vexti og miða framkvæmdir
við getu og búa sem mest að sínu
295 mél voru tekin fyrir á þinginu
Þinglausnir fóru fram i gær. í
yfirliti um störf þingsins, sem As-
geir Bjarnason, forseti samein-
aðs þings flutti, upplýsti hann, að
alls hefðu 295 mál verið tekin til
meðferðar á þessu þingi, en þing-
fundir voru 272 samanlagt i öllum
deildum. 149 frumvörp voru lögð
fyrir. 75 lagafrumvörp voru af-
greidd sem lög, 59 stjórnarfrum-
vörp og 16 þingmannafrumvörp.
Þingsályktunartillögur voru 93.
Er forseti sameinaðs þings
hafði gefið yfirlit um störf þings-
ins sagði hann:
Það yfirlit, sem ég hef nú lesið,
sýnir, að mörg mál hafa legið
fyrir þessu þingi, þótt nú sem
jafnan áður hafi þau ekki öll hlot-
ið endanlega afgreiðslu.
Þegar i byrjun þessa þings var
það ljóst, að vandamálin, sem við
var að fást, voru mörg og marg-
þætt og þvi eðlilegt að það tæki
tima fyrir alþingismenn að kynna
sér þau, áður en til endanlegrar
afgreiðslu kæmi.
Þegar litið er á lagasetningu
þessa þings þá ber hún glöggt
vitni þess, að vandamálin, sem
við var að etja, voru á sviði efna-
hagsmála. Við höfum I nokkur ár
að undanförnu búið við góöæri til
lands og sjávar og notið hag-
stæðra viðskiptakjara við erlend-
ar þjóðhr, þar til á s.l. ári að inn-
flutningsvörur okkar hækkuðu ört
i verði, jafnframt þvi sem útflutn-
ingsvörur okkar lækkuðu i verði.
Verðsveiflur þessar hafa komið
sér illa fyrir marga, skert llfs-
kjör, aukið verðbólgu, valdið
vinnudeilum og stöðvun atvinnu-
fyrirtækja, eins og nú er með tog-
arana. Framtíðin i þessum efnum
er óljós. Sumum finnst ef til vill,
að Alþingi sé svifaseint, þegar
ráða þarf bót á vandamálum sem
þessum. En vel hefur það mörg-
um reynst að kunna fótum sínum
forráð.
Þótt lagasetning þingsins mót-
ist aðallega af aðsteðjandi vanda-
málum og beri þess vott að var-
lega sé i framkvæmdir farið, þá
er hitt jafn ljóst, að Alþingi og
rikisstjórn eru stórhuga I ailri.
lagasetningu. — Þar vil ég minna
á virkjun fossaaflsins og
hveraorkunnar að þvl ógleymdu,
að einhugur stendur á bak við
landgræðsluna og útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar i 200 mílur. Það
er sagt, að „margs þarf búið
með.” Það hefur heldur ekki
gleymst að skyggnast sem viðast
og sjá um að halda vel I horfinu.
— Það er öllum hollt að hafa það I
huga að farsælt er að sniða sér
stakk eftir vexti, miða fram-
kvæmdir við getu og búa sem
mest að sinu eigin á sem flestum
sviðum.
Það hefur I vetur komið fram ó-
venjuleg óg mikil gagnrýni á Al-
þingi og alþingismenn og launa-
kjör þeirra. Þó er það svo, að I
engu hefur verið breytt frá þeim
lögum og reglum, sem störf
þingsins og launakjör þingmanna
hafa byggzt á, en þau eru I
meginatriðum eins og laun opin-
berra starfsmanna. Aratugahefð
hefur ráðið nú sem áður, þar sem
lagabókstafurinn nær ekki til.
Hver er tilgangurinn? Hvað á að
byggja upp, þegar búið er að
brjóta niður? Það er hverjum og
einum hollt að hugleiða þessi mál
og minnast þess, að I upphafi skal
endirinn skoða.
Ef ég hef eitthvað með stjórn
Alþingis að gera framvegis, mun
ég leita eftir þvi við hv. þing-
menn, hverju þeir vilja breyta I
starfsháttum Alþingis og reyna
að ná samkomulagi um þau mál,
þvi það er þeirra að ráða fram úr
þvi, sem þeim sjálfum finnst að
betur megi fara.
Þetta þing hefur verið anna-
samt og ekki sízt slðustu vikurn-
ar, en það er ekki nýtt, svo hefur
það jafnan verið.
Ég þakka hæstvirtri ríkisstjórn
og háttvirtum alþingismönnum,
skrifstofustjóra og starfsfólki Al-
þingis umburðarlyndi I minn garð
en jafnframt þakka ég ánægju-
legt samstarf. Sérstakar þakkir
færiég varaforsetum, sem jafnan
hafa fúslega veitt mér hina beztu
aðstoð. Ég þakka skrifurum
þingsins kostgæfni i störfum og
skrifstofustjóra og öllu starfsfólki
Alþingis fyrir mikið og gott starf.
Að lokum óska ég háttv. þm.
góðrar heimferðar og heimkomu
og læt I ljósi þá von, að öll megum
við heil hittast hér á næsta hausti.
Landsmönnum öllum óska ég
árs og friðar.
Löggjöf um ísl. staf
setningu
ALÞINGI felur rlkisstjórninni að
undirbúa löggjöf um Islenzka
stafsetningu.
Þannig hljóðar þingsályktunar-
tillaga, sem samþykkt var I sam-
einuðu þingi slðasta daginn sem
þingið sat, og urðu að venju all-
fjörugar umræður, þegar Z-una
bar þar á góma. Sverrir Her-
mannsson sagði, að þótt nýja-
brumsmenn vildu breyta staf-
setningu, myndi það sannarlega
ekki takast, og baráttunni um
z-una og stóran og lltinn staf yrði
haldið áfram, þótt það tæki ára-
tugi að endurheimta z-una.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra kvað nauð-
synlegt að setja löggjöf um staf-
setningu, en taldi ekki viturlegt
að alþingi færi að setja ritreglur
né semja setningarfræöi.
Gylfi Þ. Gislason kvaðst fagna
þvi, að vilji væri fyrir hendi á
þingi til að setja löggjöf um þetta
efni. Sagði hann það vera ófremd-
arástand, að menntamálaráð-
herra gæti með einfaldri auglýs-
ingu ákveðið hver skuli vera rétt
stafsetning. Gylfi taldi eðlilegt,
að stafsetningin, sem var I gildi á
árunum 1929-’74, væri I gildi þar
til lögin um stafsetninguna verða
sett.
Magnús Torfi Ólafsson tók til
máls og stytti þingmönnum
stundirnar með skemmtisögu um
bernskubrek Sverris Hermanns-
sonar. Siðan var tillagan sam-
þykkt með 33 atkv. gegn 6.
Jómfrúræða Guðrúnar Benediktsdóffur:
Fasteignasalar græða
220-280 miilj. kr. á ári
GUÐRCN Benediktsdóttir (F)
hélt jómfrúræöu sina á fundi
sameinaðs þings I gær. Hún fjall-
aði um þingsályktunartillögu,
sem hún lagði fram ásamt Inga
Tryggvasyni (F), um fasteigna-
miðlun rikisins.
Guðrún sagði: „Eins og kunn-
ugt er, þá búa flestir íslendingar I
eigin húsnæði, og er venjan sú, að
fjölskyldur byrja gjarna smátt,
en stækka við sig, þegar efni og
ástæður leyfa. Þannig er ekki óal-
gengt, að fjölskyldur skipti um
Ibúð á 5-10 ára fresti fyrstu 15-20
ár búskapar.
Milliliðakostnaður sá, er fylgir
fasteignasölu, nemur 2% af verði
eignarinnar, en það eru 100 þús.
kr. fyrir hverja 5 millj. kr. eign.
Þegar hugsað er til þess, að
greiða þarf rífleg mánaðarlaun
fyrir hverja sllka sölu, hlýtur
mönnum að ofbjóða og koma I
hug, hvort ekki megi spara.
I Reykjavlk og nágrenni eru
skráðar samkvæmt símaskrá
a.m.k. á milli 40 og 50 fasteigna-
sölur. Fjöldi þeirra bendir til að
atvinnuvegur þessi þyki arðvæn-
legur.
Arið 1973 var I Reykjavík einni
þinglýst 2209 afsölum fyrir fast-
eignum, og árið 1974 voru þær
2303. Sé miðað við aö meðalverð
sé 5-6 millj. kr. fyrir hverja eign,
þá er um að ræöa sölu fyrir um
11-14 millj. kr. á hverju ári, miðað
við núgildandi verðlag. Af þessari
upphæð renna 2%, eða um 220-280
millj. kr., I vasa fasteignasal-
anna. Er augljóst, að þetta eitt út
af fyrir sig hlýtur að vera verð-
bólguhvati.
Með tillögu þessari er gert ráð
fyrir aðúmrædd þjónusta á veg-
um rlkisins verði ókeypis eða seld
á kostnaðarverði. Mætti ef til vill
hugsa sér að ná rekstrarkostnað-
inum með hækkun þinglýsingar-
gjalda.
Með þvl að tengja skrifstofu
þessa Húsnæðismálastofnun rlk-
isins, er hægt að hafa auðveldan
aögang að mati ibúða, byggingar-
tlma, teikningum o.fl. viðvikjandi
hverri eign.
Ekki þarf getum að þvl að leiða,
hver þægindi og sparnaður tima
og fyrirhöfn það er fyrir almenn-
ing að eiga kost á allri þjónustu
varðandi fasteignaviðskipti á
einni og sömu skrifstofunni, — að
ekki sé minnzt á þann gifurlega
sparnað, sem þessi stofnun kæmi
til með að veita.
Herra forseti. Mér þykir vænt
um að hafa fengið tækifæri á
þessum nauma tlma, sem eftir er
þings, til að flytja þetta mál. Það
varðar ekki einungis hag almenn-
ings, sem á I fasteignaviðskipt-
um, heldur einnig þjóðarhag
varðandi verðbólguvandann o.fl.
Yrði vel, ef þessu máli yrði fylgt
fast eftir á Alþingi á hausti kom-
anda, þannig að þetta þjóðhags-
munamál næði sem fyrst fram aö
ganga til velfarnaðar landsbú-
um.”
Málinu var vlsað til allsherjar-
nefndar.
1
I
Vegaáætlunin samþykkt:
Framkvæmdir hefjast við
brúargerð yfir Borgarfjörð
Stórfelldasta samgöngubót sem gerð hefur verið á Vesturlandi,
segir Halldór E. Sigurðsson, samgöngumálardðherra
VEGAAÆTLUN var samþykkt á
alþingi I gær. Er þar kveðið á um
vegaframkvæmdir og brúargerð
á næstu tveim árum. Er áætlunin
mjög viðamikil og engin leið að
gera henni skil hér I blaðinu fyrr
en síðar. En eftir að málið var af-
greitt frá alþingi hafði Tlminn tal
af Halldóri E. Sigurðssyni, sam-
göngumálaráðherra og innti hann
eftir þvi hver væru helztu verk-
efnin á þessari áætlun, sem nær
til ársins 1977.
— Til þeirrar vegaáætlunar,
sem nú er búið að afgreiða frá
alþingi, sagði samgöngumálaráð-
herra, er varið meira fé I krónu-
tölu en áður hefur verið samþykkt
til vegagerðar hér á landi áður,
þótt það nái ekki þvi fram-
kvæmdamagni, sem áætlunin
gerði ráð fyrir 1972, sem var það
mesta að þvl leyti sem samþykkt
hefur verið.
— Það nýmæli er I þessari
vegaáætlun, að nú er þvl fé, sem
veitt er til viðhalds skipt milli
vetrar- og sumarviðhalds. En til
þessa þáttar er varið yfir mill-
jarði króna.
Þá er og eins miðað við það, I
samræmi viö breytingu þá sem
gerð var á vegalögunum á þing-
inu, að framlag til sýsluvega er
meira en tvöfaldað og framlag til
vega I þéttbýli hækkað um meira
en 100 millj. kr, eða úr 184 millj. I
285 millj. kr.
— Stærsta verkefnið á þessari
vegaáætlun er brúargerðin yfir
Borgarfjörð, sem hafin verður á
þessu ári og er gert ráð fyrir að
brúarbyggingin sjálf muni fara
fram á þessu og næsta ári. Er
röskum 500 millj. kr. varið til
framkvæmdanna á þessum tveim
árum.
— Þá er ennfremur gert ráð
fyrir því, að á tlmabilinu verði
lokið við að gera göng gegnum
Oddsskarð og stórt átak verður
gert við veginn yfir Fjarðarheiði,
þannig, að hann verði fær nær allt
árið.
Þá er og haldið áfram með
vegagerð á söndunum sunnan
jökla með vegagerð á Mýrdals-
sandi og Breiðamerkursandi.
Þess má einnig geta, að á þessu
ári er reiknað með, aö lokið verði
við rannsóknir og hönnun brúar á
ölfusá hjá Óseyrarnesi.
Nokkru fé er varið til að undir-
búa og ganga frá varanlegri
vegagerð hjá Akureyri og sömu-
leiðis hjá Blönduósi.
Hve löng verður brúin yfir
Borgarfjörð?
— Sjálf brúin verður 500 metr-
ar, og má segja, að þessi fram-
kvæmd sé framhald af stórað-
gerðum I samgöngumálum, sem
likja má við brúargerðina á
Skeiðarársandi og er reyndar á
sama veginum, það er hringveg-
inum. Með brúnni yfir Borgar-
fjörð styttist leiðin til Vesturlands
um 30 km og norður um 10 km.
— Það var 30. mal 1948, sem ég
fékk fyrst afgreidda þingsálykt-
unartillögu um rannsókn á þess-
umframkvæmdum.Númá segja,
að með afgreiðslu vegaáætlunar-
innar sé verkið hafið. Að vlsu
hefur verið unnið að undirbúningi
s.l. tvö ár og er þetta fyrsta brúin,
sem gert hefur verið nákvæmt
likan af og dregnir af því hagnýtir
lærdómar til sjálfrar mann-
virkjagerðarinnar.. Undirbúningi
og rannsókn er lokið og málið
komiðáframkvæmdastig. Verður
þetta stórfelldasta samgöngumót
sem gerð hefur verið á Vestur-
Guörún Benediktsdóttir og Halldór E. Sigurösson kveöjast eftir að þingi var slitið i gær