Tíminn - 17.05.1975, Síða 26

Tíminn - 17.05.1975, Síða 26
26 TÍMINN Laugardagur 17. mal 1975. ÞEIR KUNNA LISTINA AÐ SKORA MÖRK III w ★ Hermann Gunnarsson hefur 78 sinnum sent knöttinn í netið í 1. deildar keppni ★ Skagamenn hafa átt flesta markakóngana í deildinni ★ Hermann á markametið — 17 mörk á keppnistímabili markametið i 1. deiidar keppni. Hann skoraði 17 mörk 1973. ÞÓRÓLFUR BECK...... marka- kóngurinn úr KR. Það vantar að- eins eitt mark upp á, að hann hafi skorað 50 deildarmörk. STEINAR JÓHANNSSON........ hefur ávallt veriö ofarlega á blaði undanfarin ár. BOLTINN byrjar aö hoppa og skoppa I 1. deildarkeppninni i dag, og að sjálfsögðu er það aðal- atriöið, að koma honum i netið. Nú er knattspyrna aðalumræðu- efnið vfða og menn eru farnir að hugleiða, hverjir koma til með að standa uppi sem islandsmeistar- ar að keppnistimabilinu loknu — og það er töluvert siöan að menn fóru að spá og veðja á, hvaöa lið yrði likiegast til að ná langt i keppninni i sumar. Ekki er það ætlun okkar, að fara að taka hér þátt f þeim umræðum, heldur ætl- um við að skyggnast aftur I tfm- ann og lita á, hvaða leikmenn hafi verið drýgstir við að koma knettinum i netið frá þvi að deiidarskiptingin var tekin upp 1955, en keppnin um markakóngs- titilinn hefur oft á tiðum verið eins spennandi og baráttan um meistaratitilinn. Þrir Skagamenn jafnir Þrir góðkunnir Skagamenn úr Gullaldarliðinu” röðuðu sér -♦c-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-K-k-Wt-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-k-K-k-K-K-K-K-K-KJ $________ _ ★ ★ ^^P —__________________— ■ ___________ — _ ----------__ — __ ★ Toppskorarar frá upphafi $ BARÁTTAN um markakóngstitilinn hefur ávallt ver * ★ iö spennandi og vakið athygli. Deildaskipting ★ samþykkt 1955, og frá þeim tíma hafa þessir leíkmenn* var* ★ veriö markhæstir i 1. deild hverju sinni: $ Þóröur Þóröarson, Akranesi................ 7 $ Ríkharður Jónsson, Akranesi............... 7 $ Þóröur Jónsson, Akranesi ................... 7$ Þórður Þórðarson, Akranesi................. 6 ? Þóröur Þórðarson, Akranesi................. 6 ★ Þóröur Þórðarson, Akranesi................. n $ Þórólfur Beck, KR........................... n$ Þórólfur Beck, KR.......................... 15$ Ingvar Elíasson, Akranesi................. 15 $ Þórólfur Beck, KR.......................... 16* Ingvar Elíasson, Akranesi................. 11 ★ Skúli Hákonarson, Akranesi................. 10Í Eyleifur Hafsteinsson, Akranesi............ 10$ Baldvin Baldvinsson, KR.................... 10$ Jón Jóhannesson, Keflavík................... 8$ Hermann Gunnarsson, Val.................... 12$ $1955 ! ★ 1956 ★ 1957 $1958 $1959 $1960 ★ ★ 1961 ★ 1962 $1963 $1964 $1965 $1966 ★ 1967 $1968 ★ * * $1969 $1970 $1971 $1972 $ 1973 $1974 * Helgi Númason, Fram.................................. Kári Árnason, Akureyri............................... Ólafur Lárusson, KR.................................. Matthías Hallgrímsson, Akranesi...................... Hermann Gunnarsson, Akureyri......................... Steinar Jóhannsson, Keflavík......................... Tómas Pálsson, Vestmannaeyjum........................ Teitur Þórðarson, Akranesi........................... 9$ * Þess má geta, að aðeins 5 leikir voru leiknir 1955-'58, $ $síðan voru leiknir 10 leikir í deildinni l959-'68, þá voru$ $ leíknir 12 leikir 1969, og síðan hafa verið leiknir 14$ $leikir í deildinni. $ -Kk-k-k-k-k-k-k-K-k-K-K-k-K-k-k-k-k-K-K-k-K-K-k-k-K-k-k-k-k-K-k-k-k-K-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k 8$ 8$ 9Í 14$ 12$ 15$ Knötturinn kominn á sinn stað....Þórður Þórðarson (fyrir miðri mynd) er búinn að senda knöttinn I netiö hjá Keflvíkingum. Rik- harður Jónsson sést t.h. efst, þegar markareikningurinn var gerður upp 1955. Það voru þeir Þórður Þóröarson, Rikharö- ur Jónsson og bróðir hans Þórður Jónsson. Þeir skoruðu sin hvor 7 mörkin og samtals 21 mark af 23 mörkum Skagamanna það árið. Þórður tekur völdin Þórður Þórðarson tekur siðan völdin á toppnum og varö mark- hæstur þrjú á i röð — 1956, 1957 og 1958. Þórður hafði algjöra yfir- burði i markaskorun 1958, en þá skoraði hann 11 mörk — 6 mörk- um fleiri en hæstu menn, sem voru Björgvin Árnason úr Fram og Helgi Björgvinsson frá Skaganum, sem skoruðu sln hvor 5 mörkin. Þórólfur tryggði sér toppsætiö á siðustu stundu Þóróifur Beck.hinn marksækni leikmaður KR, varð markhæstur 1959 eftir tvisýna og spennandi keppni. Fjórir leikmenn áttu möguleika á að hljóta marka- kóngstitilinn, þegar siðasti leikur deildarinnar fór fram — KR mætti þá Akurnesingum. Þrir leikmenn — Þórólfur, Sveinn Jónsson, KR og Þórður Jónsson frá Skganum skoruðu I leiknum og varð röð fjögurra markhæstu manna þá þessi: Þórólfur Beck, KR .........!.. 11 Rikharður Jónsson, ÍA.........10 Sveinn Jónsson, KR ...........10 Þórður Jónsson, IA............10 Þórólfur aftur i harðri keppni Þórólfur var aftur i sviðsljósinu 1960, en þá átti hann i harðri keppni við Ingvar Eliasson frá Akranesi. Baráttunni lauk með jafntefli — báðir skoruðu þeir 15 mörk, en Steingrimur Björnsson frá Akureyri varð i þriðja sæti, með 10 mörk. Þórólfur setur markamet Þórólfur stóð siðan uppi 1961 sem yfirburðasigurvegari. Þá skoraði hann 16 mörk og setti þar með markamet i deildinni. Næsti maður, Björgvin Danielsson úr Val, skoraði 8 mörk. Ingvar komst á toppinn Ingvar Eliasson varð siðan markhæstur 1962, skoraði 11 mörk og þar með sigraði hann .stormsenterinn” frá Akureyri, Steingrlm Björnsson, sem skor- aði 10 mörk. Titiiiinn fór aftur upp á Skaga Ungur Skagamaður Skúli Hákonarson tryggði sér marka- kóngstitilinn 1963, þegar hann skoraði 10 mörk i deildinni. Eyleifur tekur siðan við Skagamenn vildu greinilega ekki sleppa markakóngstitlinum á þessum tima, Eyleifur Haf- steinsson kom fram á sjónar- sviðið 1964, og háði hann harða keppni við ungan Reykviking — Hermann Gunnarsson. Eyleifur varð sterkari og tryggði hann sér markakóngstitilinn i siðasta leik Skagamanna, en þá skoraði hann 2 mörk — alls 11. Hermann kom siðan i öðru sæti með 10. KR-ingar setja strik I reiknjng Skagamanna KR-ingar tóku við titlinum 1965, þegar Baldvin Baldvinsson varð markhæstur með 10 mörk. Skaga- mennirnir Eyieifur Hafsteinsson og Rikharður Jónsson voru næstir á blaði — 6 mörk. Suðurnesjamenn láta I sér heyra Suðurnesjamenn sýndu það 1966, að þeir geta lika skorað mörk. „Marka—Jón” Jóhannsson kom þá fram i sviðsljósið og skor- aði 8 mörk, einu meira en Akur- eyringurinn Kári Arnason. Hermann á toppinn Hermann Gunnarsson varð siðan markhæstur 1967, skoraði 12 mörk, en þá var Skúli Agústsson i öðru sæti (lOmörk) og félagi hans Kári Arnason kom þar á eftir — með 7 mörk. Þrir jafnir Þrir leikmenn voru jafnir, með 8 mörk, 1968. Það voru Helgi Númason, Fram, Kári Árnason, Akureyri, og KR-ingurinn óiafur Lárusson.Rétt á eftir þeim komu Valsmennirnir Hermann Gunnarssonog Reynir Jónsson — 7 mörk. Skagamenn endurheimta titilinn Skagamenn endurheimtu markakóngstitilinn 1969, þegar Matthias Hailgrimsson skauzt upp á toppinn og skoraði 9 mörk. Jón óiafur Jónsson frá Keflavik var i öðru sæti, ásamt Guðjóni Guðmundssyni frá Akranesi — þeir skoruðu 7 mörk. Hermann á Akureyri Hermann Gunnarsson brá sér til Akureyrar 1970 og þjálfaði og lék með Akureyrar-liðinu eitt keppnistimabil. Hermann tryggöi Akureyringum markakóngstitil- inn, með þvi að skora 14 mörk. Kristinn Jörundsson (Marka- Kiddi) úr Fram var næstur með 10 mörk. Steinar endurtekur afrek bróður sins Steinar Jóhannsson frá Kefla- vik endurtók afrek bróður sins — „Marka-Jóns” — frá 1966 og tryggði Keflvikingum titilinn. Steinar skoraði 12 mörk, en i öðru sæti voru þeir Kristinn Jörunds- son, Fram, og Skagamaðurinn Matthias Hailgrimsson — 11 mörk. v Eyjamenn eignast markakóng Arið 1972 var síðan komið að Eyjamönnum að leggja fram markaskorara Tómas Páisson varð þá markhæstur — 15 mörk. Eyleifur Hafsteinsson og Ingi Björn Albertsson voru i öðru sæti með 11 mörk.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.