Tíminn - 17.05.1975, Page 27
Laugardagur 17. mal 1975.
TÍMINN
27
Hermann setur markamet
Hermann Gunnarssonsetti nýtt
markamet 1973 (17 mörk) — og
sló þar meö markamet Þórólfs
Beck frá 1961 — 16 mörk. Her-
mann var svo sannarlega á skot-
skónum þetta ár, og skoraði mörg
fullfalleg mörk. Næstu menn fyrir
aftan hann voru:
Orn Óskarsson, Vestm.eyj....13
Matthias Hallgrimss. Akran. ..12
Teitur Þórðarson, Akranes .... 12
Steinar Jóhannss., Keflavik.... 11
Teitur fetar í fótspor
föður slns
Teitur Þórðarson (Þórðarson-
ar, markakóngsins mikla frá
fyrstu árum deildarinnar) var
siðan markhæstur sl. keppnis-
timabil. Teitur varð hlutskarpari
i baráttu við Steinar Jóhannsson.
Teitur skoraði 9 mörk, en Steinar
8. Sl. keppnistlmabil var tlmabil
varnarleikaðferðanna, og þvl
voru ekki skoruö mörg mörk þá.
TEITUR ÞÓRÐARSON.... varð
markakóngur 1974, 16 árum eftir
að faðir hans, Þórður Þórðarson,
var að hrella markveröi 11. deild-
inni.
Þeir
hafa
skorað
mest
Hermann Gunnarsson hefur skor-
að flest mörkin I 1. deildarkeppn-
inni, eða alls 78. 22 knattspyrnu-
menn hafa skorað yfir 30 mörk 11.
deildarkeppninni, en það eru
þessir leikmenn:
Hermann Gunnarss., Val/IBA 78
Eyleifur Hafsteinss. ÍA/KR 57
Gunnar Felixson, KR 57
Ingvar Ellasson, ÍA/Val 57
Ellert B. Schram KR 56
Matthias Hallgrimss. 1A 56
Þórólfur Beck, KR 49
Rikharður Jónsson ÍA 44
Kári Árnason, IBA 46
Steinar Jóhannss. ÍBK 41
ÞórðurJónsson1A 40
Steingr. Björnss. IBA 39
Skúli Agústsson, ÍBA 38
örn Óskarsson, ÍBV 37
Teitur Þórðárson 1A 36
Baldvin Baldvinss. Fram/KR 34
Haraldur Júliuss. IBV 34
Kristinn Jörundss, Fram 34
Þórður Þórðarson, 1A 34
Ingi B. Albertss. Val 32
Tómas Pálsson, iBV 32
Jón Ól. Jónsson, ÍBK 30
Sókn er
bezto
vörnin
t k HERMANN GUNNARS-
SON .... sést hér vera
búinn aö brjótast fram
hjá varnarvegg Breiöa-
bliks, og þá var ekki að
.. sökum að spyrja —
n MARK.
munu að sjálfsögðu stefna að
sigri, en þvi miður tekst aðeins
einu að sigra. Félögin leggja of-
urkapp á þetta mót, og virðist
mér þau öll vera vel undirbúin,
þannig að mótiö verður eflaust
jafnt. Ég ætla ekki að spá um
úrslitin, en ég ætla, aö liðin
muni skiptast i tvo hópa. Aðal-
keppnin mun standa á milli ÍA,
IBK, K.R. og Vals, en hins veg-
ar á milli F.H., Fram, Vikings
og IBV. Ég áskil mér þó fullan
rétt til að breyta þessu hvenær
sem er, þvi einsiogallir vita get-
ur allt gerzt I knattspyrnu, og
auk þess er ég mjög lélegur
spámaður.
Ósk min er aðeins sú, að leik-
in verði skemmtileg og drengi-
leg knattspyrna, þannig að allir
geti staðið upp ánægðir að leiks-
lokum, þvi þá er markmiði
iþróttarinnar náð.
Leikir helgarinnar
Akurnesingar hefja vörn Is-
landsbikarsins I dag á Skipa-
skaga, er þeir fá ungu ljónin úr
K.R. I heimsókn. I lið beggja
mun að likindum vanta góða
menn, þá Matthias hjá Skaga-
mönnum og Hauk Ottesen og
Ólaf Ólafsson hjá K.R. Þeir
verða allir i leikbanni.
URSLIT: Baráttuleikur, en
naumur sigur Skagamanna.
I Kaplakrika fá strákarnir
hans Arna Agústssonar Fram i
heimsókn. Framararhafa misst
nokkra mjög góða menn, og
ungu FH-ingarnir ætla sér stór-
an hlut i sumar.
URSLIT: Jafntefli, sem Fram
má þakka fyrir.
I Vestmannaeyjum leika
heimamenn við Vlkinga, sem
verða án nokkurra sinna beztu
manna, m.a. Guðgeirs Leifsson-
ar, bezta tengiliðsins á tslandi
um þessar mundir.
URSLIT: Tveggja marka sigur
I.B.V.
Valsmenn fara til Keflavikur
eftir helgina.
URSLIT: Jafntefli i baráttuleik.
Kveöja,
H.G.
LESENDUR góðir. Það
hefur verið afráðið/ að ég
taki að mér að sjá um
þátt hér í blaðinu. Verður
aðeins um að ræða per-
sónulegt rabb og vanga-
veltur um knattspyrnu og
málefni skyld henni.
Þetta er mest til gamans
gert/ en með ívafi alvöru/
og ef til vill einhverjum
til hugleiðingar.
Erlendir þjálfarar
á islandi:
Flest 1. deildar lið á Islandi
hafa nú ráðið til sin erlenda
þjálfara, og hefur svo verið um
þriggja ára skeið. Hefur fátt
verið meira umrætt meðal
knattspyrnuunnenda en dvöl
þessara manna hér á landi.
Kemur þar einkum tvennt til:
Annars vegar, „höfum við
gengið til góðs...?” o.s.frv., og
hins vegar það mikla fjármagn,
sem félögin verða að láta af
hendi rakna.
Skal þá fyrst vikið aö hinu
fyrrnefnda: Ég var mjög svo á
öndverðum meiði við nokkra
þessara manna i fyrrasumar.
Var það einkum vegna þeirra
leikaðferða, sem þeir innleiddu
hjá liðunum. Lögö var megin-
áherzla á varnarleik, og hjá ein-
staka liði á langar spyrnur „út I
loftið”. Aðalatriðið var að ná I
eitt stig i leik, en bæði ef gæfan
var þeim hliðholl. Inntakið var
sem sagt að tapa ekki leik,
hvernig svo sem aðferðin til
þess væri. Þetta álit ég alrangt!
Það fór svo ekki framhjá mörg-
um, að talsverður rígur var á
milli þessara þjálfara, og er það
gott að vissu marki, en það má
ekki skaða lærdóm og framfarir
islenzkra knattspyrnumanna. I
vor hefur mér fundizt þetta vera
að breytast að nokkru leyti, og
erþað vel. Sókn er bezta vörnin,
og verður um ókomna tið, en þó
með skipulögðum leik, sem er-
lendu þjálfararnir virðast i rik-
ari mæli stuðla að. Sóknarleikur
ryður sér nú mjög til rúms er-
lendis, og bezta sönnun þess var
úrslitaleikurinn I síðustu HM-
keppni, en það voru sóknarlið
Þjóðverja og Hollendinga, sem
sýndu greinilega, hvernig
knattspyrnan er árangursrlk-
ust.
Varnarleikur i knattspyrnu
sem aðalatriði er hvimleitt fyr-
irbrigði og á ekki rétt á sér,
nema ef vera skyldi i lands-
keppni við erlendar stórþjóðir,
og má þar minna á glæsilegan
árangur okkar manna gegn A-
Þjóðverjum s.l. sumar. Þó
skyldum við einnig vera
minnugir þess, að við höfum
leikið góða landsleiki með sókn-
arleik I fyrirrúmi! En nóg um
það.
Erlendu þjálfararnir hafa þó
skapað aukinn áhuga leik-
manna á æfingum, og úthalds-
þjálfun hefur aldrei verið jafn-
góð. Einnig er mikill fengur i að
fá slika menn til starfa, og eyk-
ur það mjög fjölbreytileik æf-
inga, en það hefur ekki svo litið
að segja. Við þjálfarana segi ég
,,8aráttuleikur, en
naumur sigur
Skagamanna"
aðeins: Aukið sóknarleik, bætiö
knattmeðferð, ásamt skipulögð-
um leikaðferðum, og þá erum
við á réttri leið. Ef ekki, þá
eykst leikleiði manna og áhorf-
endur verða taldir á fingrum
annarrar handar.
Um launagreiðslur til hinna
erlendu þjálfara er margt hægt
að segja, og sýnist þar sitt
hverjum. Þeir eru atvinnumenn
i sinu fagi og eiga fyllilega rétt á
talsverðum launum. Mitt
sjónarmið er þaö, að reynt skuli
að lækka þessar greiðslur, ef
mögulegt er, og reyna að styðja
eitthvað við bak leikmannanna
sjálfra.
Það er staðreynd, að þjálfun
okkar manna er I atvinnu-
mannaformi, og það segir sig
sjálft, að eftir 10-12 tima dagleg
störf er erfitt að æfa 2-3 tima 5-6
daga vikunnar. Þannig getur
það gengið I stuttan tima, en
ekki til lengdar. Þjálfararnir
eru allir af vilja gerðir að miðla
af vizku sinni, en vlst er, að
hægt er róið fyrir góðan stýri-
mann, ef ræðararnir eru að nið-
urlotum komnir!
Handknattleiksforustan hefur
„Hægt er róið fyrir
góðan stýrimann,
ef ræðararnir eru
að niðurlotum
komnir”
Þrlr af erlendu þjálfurunum, Joe Hooley (Keflavfk), Tony Knapp
(KR) og Joe Gilroy (Val). Gera þeir liösln að meisturum?
nú þegar skilið brýna nauðsyn
þess að styðja sina menn eftir
mætti og hefur þegar gert gang-
skör að þvi að svo geti orðið að
einhverju marki. Margt smátt
gæti gerteitt stórt. Til að mynda
ef mögulegt væri að greiða
vinnumissi, þannig að æfingar
gætu haf;izt fyrr á daginn, og
einnig ef keppt er erlendis.
Nú kynni einhver að segja, að
þetta sé vonlaus barátta, en hef-
ur Iþróttahreyfingin ekki frá
upphafi lifað að mestu leyti á
betli, svo og skilningi almenn-
ings og fyrirtækja. Allt virðist
mögulegt I fjáröflun, ef vilji er
fyrir hendi. Það hefur ráðning
erlendu þjálfaranna sýnt.
Að loknum fyrstu
mótum sumarsins
Það er ætlun min I þessum
pistlum að ræða aðallega um Is-
landsmótið, sem hefst i dag, og
ýmislegt þar að lútandi.
Reykjavikurmótinu og Litlu-
bikarkeppninni er nú nylokið.
Vorleikirnir voru að venju mjög
misjafnir, en auðséð var, að
flest lið voru i ágætri þjálfun.
Veðurguðirnir settu að venju
sinn sterka svip á mótin, og
knattspyrnan var oft leikin við
afleitar aðstæður.
Sigurvegarar þessara móta
urðu K.R.-ingar og Keflviking-
ar. Sigur þeirra var að minum
dómi fyllilega verðskuldaður.
Bæði liðin sýndu mestan dugn-
að, kraft og baráttuvilja, sem
nauðsynlegur er hverju sigur-
liði. Vil ég nota tækifærið og
óska þeim til hamingju. Samt
var þó ánægjulegast að sjá, að
lið Hafnarfjarðar, Armanns og
Þróttar eru á réttri leið.
1 upphafi
islandsmóts
1 dag hefst stærsta knatt-
spyrnumót okkar. öll liðin