Tíminn - 17.05.1975, Síða 27

Tíminn - 17.05.1975, Síða 27
Laugardagur 17. mal 1975. TÍMINN 27 Hermann setur markamet Hermann Gunnarssonsetti nýtt markamet 1973 (17 mörk) — og sló þar meö markamet Þórólfs Beck frá 1961 — 16 mörk. Her- mann var svo sannarlega á skot- skónum þetta ár, og skoraði mörg fullfalleg mörk. Næstu menn fyrir aftan hann voru: Orn Óskarsson, Vestm.eyj....13 Matthias Hallgrimss. Akran. ..12 Teitur Þórðarson, Akranes .... 12 Steinar Jóhannss., Keflavik.... 11 Teitur fetar í fótspor föður slns Teitur Þórðarson (Þórðarson- ar, markakóngsins mikla frá fyrstu árum deildarinnar) var siðan markhæstur sl. keppnis- timabil. Teitur varð hlutskarpari i baráttu við Steinar Jóhannsson. Teitur skoraði 9 mörk, en Steinar 8. Sl. keppnistlmabil var tlmabil varnarleikaðferðanna, og þvl voru ekki skoruö mörg mörk þá. TEITUR ÞÓRÐARSON.... varð markakóngur 1974, 16 árum eftir að faðir hans, Þórður Þórðarson, var að hrella markveröi 11. deild- inni. Þeir hafa skorað mest Hermann Gunnarsson hefur skor- að flest mörkin I 1. deildarkeppn- inni, eða alls 78. 22 knattspyrnu- menn hafa skorað yfir 30 mörk 11. deildarkeppninni, en það eru þessir leikmenn: Hermann Gunnarss., Val/IBA 78 Eyleifur Hafsteinss. ÍA/KR 57 Gunnar Felixson, KR 57 Ingvar Ellasson, ÍA/Val 57 Ellert B. Schram KR 56 Matthias Hallgrimss. 1A 56 Þórólfur Beck, KR 49 Rikharður Jónsson ÍA 44 Kári Árnason, IBA 46 Steinar Jóhannss. ÍBK 41 ÞórðurJónsson1A 40 Steingr. Björnss. IBA 39 Skúli Agústsson, ÍBA 38 örn Óskarsson, ÍBV 37 Teitur Þórðárson 1A 36 Baldvin Baldvinss. Fram/KR 34 Haraldur Júliuss. IBV 34 Kristinn Jörundss, Fram 34 Þórður Þórðarson, 1A 34 Ingi B. Albertss. Val 32 Tómas Pálsson, iBV 32 Jón Ól. Jónsson, ÍBK 30 Sókn er bezto vörnin t k HERMANN GUNNARS- SON .... sést hér vera búinn aö brjótast fram hjá varnarvegg Breiöa- bliks, og þá var ekki að .. sökum að spyrja — n MARK. munu að sjálfsögðu stefna að sigri, en þvi miður tekst aðeins einu að sigra. Félögin leggja of- urkapp á þetta mót, og virðist mér þau öll vera vel undirbúin, þannig að mótiö verður eflaust jafnt. Ég ætla ekki að spá um úrslitin, en ég ætla, aö liðin muni skiptast i tvo hópa. Aðal- keppnin mun standa á milli ÍA, IBK, K.R. og Vals, en hins veg- ar á milli F.H., Fram, Vikings og IBV. Ég áskil mér þó fullan rétt til að breyta þessu hvenær sem er, þvi einsiogallir vita get- ur allt gerzt I knattspyrnu, og auk þess er ég mjög lélegur spámaður. Ósk min er aðeins sú, að leik- in verði skemmtileg og drengi- leg knattspyrna, þannig að allir geti staðið upp ánægðir að leiks- lokum, þvi þá er markmiði iþróttarinnar náð. Leikir helgarinnar Akurnesingar hefja vörn Is- landsbikarsins I dag á Skipa- skaga, er þeir fá ungu ljónin úr K.R. I heimsókn. I lið beggja mun að likindum vanta góða menn, þá Matthias hjá Skaga- mönnum og Hauk Ottesen og Ólaf Ólafsson hjá K.R. Þeir verða allir i leikbanni. URSLIT: Baráttuleikur, en naumur sigur Skagamanna. I Kaplakrika fá strákarnir hans Arna Agústssonar Fram i heimsókn. Framararhafa misst nokkra mjög góða menn, og ungu FH-ingarnir ætla sér stór- an hlut i sumar. URSLIT: Jafntefli, sem Fram má þakka fyrir. I Vestmannaeyjum leika heimamenn við Vlkinga, sem verða án nokkurra sinna beztu manna, m.a. Guðgeirs Leifsson- ar, bezta tengiliðsins á tslandi um þessar mundir. URSLIT: Tveggja marka sigur I.B.V. Valsmenn fara til Keflavikur eftir helgina. URSLIT: Jafntefli i baráttuleik. Kveöja, H.G. LESENDUR góðir. Það hefur verið afráðið/ að ég taki að mér að sjá um þátt hér í blaðinu. Verður aðeins um að ræða per- sónulegt rabb og vanga- veltur um knattspyrnu og málefni skyld henni. Þetta er mest til gamans gert/ en með ívafi alvöru/ og ef til vill einhverjum til hugleiðingar. Erlendir þjálfarar á islandi: Flest 1. deildar lið á Islandi hafa nú ráðið til sin erlenda þjálfara, og hefur svo verið um þriggja ára skeið. Hefur fátt verið meira umrætt meðal knattspyrnuunnenda en dvöl þessara manna hér á landi. Kemur þar einkum tvennt til: Annars vegar, „höfum við gengið til góðs...?” o.s.frv., og hins vegar það mikla fjármagn, sem félögin verða að láta af hendi rakna. Skal þá fyrst vikið aö hinu fyrrnefnda: Ég var mjög svo á öndverðum meiði við nokkra þessara manna i fyrrasumar. Var það einkum vegna þeirra leikaðferða, sem þeir innleiddu hjá liðunum. Lögö var megin- áherzla á varnarleik, og hjá ein- staka liði á langar spyrnur „út I loftið”. Aðalatriðið var að ná I eitt stig i leik, en bæði ef gæfan var þeim hliðholl. Inntakið var sem sagt að tapa ekki leik, hvernig svo sem aðferðin til þess væri. Þetta álit ég alrangt! Það fór svo ekki framhjá mörg- um, að talsverður rígur var á milli þessara þjálfara, og er það gott að vissu marki, en það má ekki skaða lærdóm og framfarir islenzkra knattspyrnumanna. I vor hefur mér fundizt þetta vera að breytast að nokkru leyti, og erþað vel. Sókn er bezta vörnin, og verður um ókomna tið, en þó með skipulögðum leik, sem er- lendu þjálfararnir virðast i rik- ari mæli stuðla að. Sóknarleikur ryður sér nú mjög til rúms er- lendis, og bezta sönnun þess var úrslitaleikurinn I síðustu HM- keppni, en það voru sóknarlið Þjóðverja og Hollendinga, sem sýndu greinilega, hvernig knattspyrnan er árangursrlk- ust. Varnarleikur i knattspyrnu sem aðalatriði er hvimleitt fyr- irbrigði og á ekki rétt á sér, nema ef vera skyldi i lands- keppni við erlendar stórþjóðir, og má þar minna á glæsilegan árangur okkar manna gegn A- Þjóðverjum s.l. sumar. Þó skyldum við einnig vera minnugir þess, að við höfum leikið góða landsleiki með sókn- arleik I fyrirrúmi! En nóg um það. Erlendu þjálfararnir hafa þó skapað aukinn áhuga leik- manna á æfingum, og úthalds- þjálfun hefur aldrei verið jafn- góð. Einnig er mikill fengur i að fá slika menn til starfa, og eyk- ur það mjög fjölbreytileik æf- inga, en það hefur ekki svo litið að segja. Við þjálfarana segi ég ,,8aráttuleikur, en naumur sigur Skagamanna" aðeins: Aukið sóknarleik, bætiö knattmeðferð, ásamt skipulögð- um leikaðferðum, og þá erum við á réttri leið. Ef ekki, þá eykst leikleiði manna og áhorf- endur verða taldir á fingrum annarrar handar. Um launagreiðslur til hinna erlendu þjálfara er margt hægt að segja, og sýnist þar sitt hverjum. Þeir eru atvinnumenn i sinu fagi og eiga fyllilega rétt á talsverðum launum. Mitt sjónarmið er þaö, að reynt skuli að lækka þessar greiðslur, ef mögulegt er, og reyna að styðja eitthvað við bak leikmannanna sjálfra. Það er staðreynd, að þjálfun okkar manna er I atvinnu- mannaformi, og það segir sig sjálft, að eftir 10-12 tima dagleg störf er erfitt að æfa 2-3 tima 5-6 daga vikunnar. Þannig getur það gengið I stuttan tima, en ekki til lengdar. Þjálfararnir eru allir af vilja gerðir að miðla af vizku sinni, en vlst er, að hægt er róið fyrir góðan stýri- mann, ef ræðararnir eru að nið- urlotum komnir! Handknattleiksforustan hefur „Hægt er róið fyrir góðan stýrimann, ef ræðararnir eru að niðurlotum komnir” Þrlr af erlendu þjálfurunum, Joe Hooley (Keflavfk), Tony Knapp (KR) og Joe Gilroy (Val). Gera þeir liösln að meisturum? nú þegar skilið brýna nauðsyn þess að styðja sina menn eftir mætti og hefur þegar gert gang- skör að þvi að svo geti orðið að einhverju marki. Margt smátt gæti gerteitt stórt. Til að mynda ef mögulegt væri að greiða vinnumissi, þannig að æfingar gætu haf;izt fyrr á daginn, og einnig ef keppt er erlendis. Nú kynni einhver að segja, að þetta sé vonlaus barátta, en hef- ur Iþróttahreyfingin ekki frá upphafi lifað að mestu leyti á betli, svo og skilningi almenn- ings og fyrirtækja. Allt virðist mögulegt I fjáröflun, ef vilji er fyrir hendi. Það hefur ráðning erlendu þjálfaranna sýnt. Að loknum fyrstu mótum sumarsins Það er ætlun min I þessum pistlum að ræða aðallega um Is- landsmótið, sem hefst i dag, og ýmislegt þar að lútandi. Reykjavikurmótinu og Litlu- bikarkeppninni er nú nylokið. Vorleikirnir voru að venju mjög misjafnir, en auðséð var, að flest lið voru i ágætri þjálfun. Veðurguðirnir settu að venju sinn sterka svip á mótin, og knattspyrnan var oft leikin við afleitar aðstæður. Sigurvegarar þessara móta urðu K.R.-ingar og Keflviking- ar. Sigur þeirra var að minum dómi fyllilega verðskuldaður. Bæði liðin sýndu mestan dugn- að, kraft og baráttuvilja, sem nauðsynlegur er hverju sigur- liði. Vil ég nota tækifærið og óska þeim til hamingju. Samt var þó ánægjulegast að sjá, að lið Hafnarfjarðar, Armanns og Þróttar eru á réttri leið. 1 upphafi islandsmóts 1 dag hefst stærsta knatt- spyrnumót okkar. öll liðin

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.