Tíminn - 17.05.1975, Page 28
28
TÍMINN
Laugardagur 17. mai 1975.
'
PlflTttt'I
Japönsku Sanso
vatnsdælurnar
komnar aftur í tveim stærð-
um.
Hentugar fyrir sumar-
bústaði og bændabýli.
Pantanir óskast sóttar
strax.
Globusa
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Menntamálaráðuneytið,
15. mai 1975.
Styrkur til hóskóla-
nóms í Belgíu
Belgiska menntamálaráöuneytiö býöur fram styrk
handa islendingi til háskólanáms i Belgiu háskólaáriö
1975-’76. Styrkurinn er ætlaöur til framhaldsnáms eöa
rannsókna aö loknu prófi frá háskóla eöa listaskóla.
Styrktímabiliö er 10 mánuöir frá 1. október aö telja og
styrkfjárhæðin er 8.000 belgiskir frankar á mánuöi,
auk þess sem styrkþegi fær sérstakan styrk til bóka-
kaupa. Styrkurinn gildir eingöngu til náms viö háskóla
þar sem hollenzka er kennslumál. Umsóknum um
styrk þennan skai komiö til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavlk, fyrir 5. júnl n.k. Meö
umsókn skal fylgja æviágrip, greinargerö um fyrir-
hugaö nám eöa rannsóknir, staöfest afrit próf-
skírteina, heilbrigöisvottorö og tvær vegabréfsljós-
myndir. — Sérstök umsóknareyðublöð fást I ráöuneyt-
inu.
r>Ö
Sveinn Björnsson, listmólari með
stórsýningu á Kjarvalsstöðum
Á laugardag opnar Sveinn
Björnsson listmálari málverka-
sýningu aö Kjarvalsstööum, þar
sem hann sýnir um 87 málverk.
Sveinn Björnsson er fimmtugur
að aldri og hefur haldið fjölda
málverkasýninga, bæöi hérlendis
og erlendis, en fyrst sýndi Sveinn
árið 1954.
I samtali viö Tlmann sagöi
Sveinn, aö þetta væru yfirleitt
stærri myndir er hann sýndi og
flestar nýjar. Þær stærstu eru um
sex fermetrar. Auk þess eru fá-
einar af eldri myndum Sveins á
sýningunni.
Myndir Sveins Björnssonar eru
yfirleitt frá sjávarslöunni, og af
sjó og sjómennsku, en hann er
einkum kunnur fyrir sllkar
myndir, en auk þess eru þarna
„fantaslur”.
Sýningin veröur opin 110 daga á
venjulegum safntlma, en þó
IMIVICO
Slereo og 4ra rása tæki frá leiötoganum
JVC NIVICO Japan Victor Company,
tæknifrömuði japanskra hljómtækja.
m
s%
U.S. PATtNT
No. 3566294
Arn
Faco
Hliómdeild
Láugavegi 89
sími 13008
veröur opiö á mánudaginn, annan
I hvltasunnu.
— Þetta er ekki nein afmælis-
sýning, síður en svo sagöi Sveinn
okkur, heldur afrakstur af vinnu
minni undanfarna mánuði og ár.
Myndirnar eru ekki málaðar I
tilefni af aldri, heldur af tilefni af
einhverju nýju þreki. Ég hefi
mjög rlka þörf til aö mála og er
sýningin til oröin I framhaldi af
þvi.
Það er rétt, myndirnar
eru óvenju stórar, en mótívið er
lika stórt.sjór, menn og himinn.
Slíkar myndir hafa tilhneigingu
til þess aö verða stórar. JG.
Fáorð símskeyti dýrari
— margorð ódýrari
Milli CEPT-landa (landa i
Evrópusambandi Pósts og sima)
hefur náöst samkomulag um
breytingu á gjöldum fyrir sim-
skeyti. Þessi breyting er I þvi
fólgin, aö fast gjald fyrir hvert
simskeyti hækkar verulega, en á
móti kemur mikil iækkun á gjald
fyrir orö. Gjald fyrir 20 orða
skeyti veröur þaö sama bæöi
samkvæmt gömlu og nýju reglun-
um. Skeyti meö færri oröum en 20
veröa dýrari, en skeyti meö fleiri
oröum en 20 veröa ódýrari sam-
kvæmt nýju reglunum, og vex
mismunurinn meö lengd skeyt-
anna.
Skýrslur yfir slmskeyti til og
frá útlöndum fyrir árið 1974 sýna,
aö meðallengd simskeytanna tií
útlanda var 26 orö, en frá útlönd-
um 28 orð.
Nýju skeytagjöldin eru fasta-
gjald kr. 390 og gjald fyrir hvert
orö kr. 12 til Færeyja, kr. 17 til
Englands og kr. 21 til annarra
CEPT-landa, en þau eru Austur-
rlki, Belgía, Dankörk, (Græn-
land), Finnland, Frakkland,
Grikkland, Holland, írland,
ítalía, Júgóslavia, Kýpur, Lie-
chtenstein, Malta, Mónakó, Nor-
egur, Luxembourg, Portúgal, San
Marino, Spánn, Sviss, Svíþjóð, V-
Þýzkaland, Tyrkland og Vatikan-
iö.
Skeytagjöld til annarra landa
veröa óbreytt. Nýju skeytagjöldin
taka gildi 15. maí 1975.
Fyrirlestur
um
Findhorn
samfélagið
A hvitasunnudag halda Michael
Lindfield og Dobinka Popov frá
Findhorn Foundation á Noröur-
Skotlandi fyrirlestur meö
skuggamyndum um þetta nútima
samfélag á fundi hjá mannúðar-
sálfræöifélaginu, SÍM.
Fyrirlesturinn verður kl. 3 e.h. i
Norræna húsinu og er öllum
heimill aögangur. Fyrirlesararn-
ir mæla á ensku.
Findhorn samfélagiö hefur
vaxiö frá þvi aö vera sex manna
hópur yfir iaö vera um 200 manna
samfélag á 12 árum. Hefur þaö
vakið athygli fyrir margháttaða
nýsköpun I menningarmálum,
þ.á.m. tilraunaháskóla, þar sem
hugrænum, andlegum og listræn-
um hæfileikum nemenda er þjalf-
un gefin. Fólk viös vegar að úr
heiminum sækir skóla þennan.
Eitt athyglisverðasta einkenni
Findhorn samfélagsins, sálfræði-
iega séö, er hin árangursrika
hagnýting þeirra á hópefli til þess
aö auövelda samfélagslegt starf
og samskipti.
Póstmenn
óónægðir með
skipulagsmól
Aðalfundur Póstmannafélags
Islands, sem haldinn var fyrir
skömmu, samþykkti að vita þau
vinnubrögð, sem viðhöfð voru við
setningu reglugerðar frá 20.12.
1974 um skipulagsmál hjá Pósti
og slma og telur fundurinn að
með slíkum vinnubrögðum sé
veriö aö ögra til átaka.
Þó illa hafi tiltekizt I upphafi af
hálfu valdhafa um þessi mál, þá
skorar P.F.l. á samgönguráð-
herra að framhaldsákvarðanir
verði ekki teknar nema .i fullu
samráði við þá aðila sem við eiga
aö bua og framkvæma þær. Þar á
meöal er P.F.l. að þeim hluta
sem að póstmálum snýr.
Kór Menntaskólans
við Hamrahlíð
heldur tónleika
Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð heldur tónleika I hátlðarsal
skólans annan dag hvltasunnu,
mánudaginn 19. maí, og hefjast
þeir kl. 17.
Kórinn hefur nýverið tekið þátt
I norrænni útvarpskeppni
æskukóra, haldið tónleika I Kaup-
mannahöfn og sungið I danska út-
varpið. Hafa undirtektir alls stað-
ar verið með ágætum. A tónleik
unum annan hvítasunnudag gefst
tækifæri til að heyra þá söngskrá
er kórinn bauð fram erlendis og
fleiri lög. Allir eru velkomnir eftir
þvl sem húsrúm leyfir.