Tíminn - 17.05.1975, Síða 31
Laugardagur 17. mal 1975.
TÍMINN
rc
31
Tveir Stuömanna hvíla lúið bein eftir afspyrnuerfiðan dag i stúdfói
og glugga I brezku kvöldblöðin, sem greindu itarlega frá plötugerö-
inni. Myndina tók Báli-Skrugga gegnum skrárgatið, og kann
Nú-tlminn honum þakkir fyrir að lána hana til birtingar.
gera það, og til þess liggja marg-
ar ástæður.
Sýrland önnur sumarleyf-
isparadís islendinga
Nú er málinu aftur snúið að
plötunni, og annar Stuðmanna
segir:
— Tónlistarlega séð gengur
platan i gegn um nokkur tónlist-
artimabil. — Og hinn bætir við:
— Kannski tekur hún aðeins
yfir þau ár, sem við höfum verið
að vaxa upp.
— Hvers vegna heitir platan
Sumar á Sýrlandi?
— Sýrland er mikið i fréttum.
Noregur og Sýrland eru auðug
lönd af oliu. Þar að auki ætluðu
nokkrir meðlimir Stuðmanna i
hitabeltisfötum til Sýrlands i eina
tið.
— Þetta er ekki alls kostar rétt
hjá þér, segir hinn við þann, er
áður talaði. — Hugmyndin að
nafninu liggur alveg ljós fyrir.
Sýrland mun verða önnur sumar-
leyfisparadis íslendinga, þ.e.a.s.
þegar landinn hefur fengið nóg af
Sþáni.
— Við skulum ekki fara að rlf-
ast strákar, segir Nú-timamaður
á sinn diplómatíska hátt, og tekur
um leið orðið af þeim félögum.
Segið mér frekar eitthvað
skemmtilegt, sem á daga ykkar
hefur drifið.
— Það var einu sinni hljóm-
sveit, sem hét Stuðmenn, byrjar
annar þeirra. Fáir vissu deili á
henni. Eitt sinn sem oftar héldu
meðlimir hljómsveitarinnar i
plötuupptöku til Bretlands. Þar
báðu þeir vel þekktan tónlistar-
mann að aðstoða sig við plötu-
gerð, og brá hann skjótt við. Bjóst
hann við að sjá gamla tónlistar-
jaxla sem meðlimi Stuðmanna.
Honum féll hreinlega allur ketill i
eld, þegar haiin sá að þeir voru
kornungir og „normal” menn.
Smjörgreiddir í ferming-
arfötum
Nú-timamaður segir þeim, að
hann hafi verið að reyna að graf-
ast fyrir um fortið Stuðmanna og
hafi honum orðið sæmilega
ágengt.
— Veiztu eitthvað sem við vit-
um ekki? hrekkur út úr öðrum
Stuðmannanna.
— Ég frétti m.a. af ykkur úti á
Hótel Sögu fyrir allmörgum ár-
um.
— Nú, já, — þá hljóta það að
hafa verið hinir upprunalegu
Stuðmenn. Já, ég man eftir þessu
núna.
— Þið voruð smjörgreiddir, —
ekki satt?
— Jú, og I fermingarfötunum
okkar. Þetta var fyrir u.þ.b. sex
árum.
— Þið dreifðuð aðdáendamynd-
um, ekki satt?
— (Hlátur). Jú, mikið rétt. Við
skemmtum þarna og vöktum
mikinn hlátur og hrifningu. Þá
vorum við fjórir.
— Var þetta i fyrsta sinn sem
þjð komuð fram?
—, Já, og við héldum þessu
áfram. Veturinn þarna á eftir
skemmtum við litillega, — en sið-
an ekki söguna meir, fyrr en
„Honey, will you marry me” var
gefið út.
— Hvers vegna var hljómsveit-
in endurvakin?
— Einn af okkur fékk allt i einu
þá hugmynd, að gaman væri að
endurvekja Stuðmenn. Hann
impraði á þessu við mig, og ég
var til i það.
Larz og Ljóni
Nýja, skruggugóða Stuð-
mannaplatan, Sumar á Sýrlandi,
er merkileg smið fyrir margra
hluta sakir. Hún likist engri plötu,
sem hér á landi hefur verið gefin
út, — og sennilega likist út engri
plötu áður útgefinni. Platan er
með eindæmum fjölbreytt, og
hafa þeir félagar náð mjög sterk-
um heildarsvip, þrátt fyrir þá
fjölbreytni, sem þar er að finna.
Eflaust langar lesendur að vita,
hvað þessir menn heita, — en Nú-
timinn getur ekki að svo stöddu
upplýst þeirra réttu nöfn. Hins
vegar nefnast viðmælendur okkar
hinn góðkunni Larz Himmelberg
og Ljóni. Þá er Báli-Skrugga i
hljómsveitinni, auk tveggja ann-
arra, sem við vitum engin deili á.
Einn Stuðmanna kom fram i
þættinum „Tiu á toppnum”, og er
sá kennari að starfi.
— Börnin heyrðu i mér i útvarp-
inu og sögðu svo i næsta tima: Þú
ert i Stuðmönnum. Nei, sagði ég,
— en það þýddi ekki að neita, þau
voru viss.
Stuðmenn stofuhljómsveit
— Er ekki einhver Leó Löve I
hljómsveitinni?
— Fyrst langar mig að geta
þess, að það hefur kostað okkur
mikil heilabrot að velja nöfn á
meðlimi hljómsveitarinnar, — en
við höfum fundið þau hist og her.
Já, það er rétt, að Leó Löve var
talsvert viðriðinn hljómsveitina,
þvihann var eitt sinn i Stuðmönn-
um. Hins vegar var hann rekinn
og Ljóni tekinn inn I staöinn. Við
höfum þvi ekki lengur neitt sam-
an við Leó að sælda.
— Þið ætlið ykkur semsé aldrei
að koma fram opinberlega? spyr
Nú-timamaður og breytir um um-
ræðuefni.
— Nei, Stuðmenn eru bara
stofuhljómsveit. I einu plötuum-
slaginu hefur verið komið fyrir
miða, og sá sem þá plötu kaupir,
hefur svo sannarlega heppnina
með sér, þvi að hann fær Stuð-
menn heim i stofu til sin.
Stuðmönnum þykir vænt
um að hjálpa kollegum sín-
um í faginu.
— Þetta er Islenzk tónlist, þótt
áhrifin séu utan úr hinum stóra
heimi. Þetta er tónlist, sem er
framin af íslendingum á islenzk-
an máta.
Tekið var að liða á kvöldið og
Nú-timamaður var farinn að
hugsa sér til hreyfings. En Stuð-
menn héldu áfram að tala.
— Nú eru allir farnir að flagga
þessu stuði, — og ýmsir minni
spámenn hafa notfært sér hug-
myndir Stuðmanna og skirt plötu
sina: Stuö, stuð, stuð. En
Stuðmönnum stendur á sama.
Þeim þykir vænt um að hjálpa
kollegum sinum i faginu. Jafnvel
kæmi til greina frekari hjálp, og
ættu þeir, sem hjálpar eru þurfi,
að hafa samband við Stuðmenn á
föstudögum kl. 17-19.30.
Að lokum sögðu Stuðmenn
þetta:
— Við viljum ekki ráðleggja
neinum að gefa út plötu. Slik
vinna er afspyrnu erfið, sem sést
kannski bezt á þvi, hve þreyttir
við erum. — Gsal.
„Textinn kom fram við ósjálfráða skrift. Einn Stuðmanna er nefiii
lega látinn (sbr. Bitlarnir)”.
RÚAALEGA 50 ÞÚS. GESTIR
KOAAU í TÓNABÆ Á S.L. ÁRI
RÚMLEGA FIMMTIU þúsund gestir komu i Tónabæ á siðasta ári, — 224 að meðal-
tali sóttu hverja skemmtun f húsinu. Flestir gestir komu I febrúarmánuði, ails 6590,
þar á eftir kom marzmánuður með 5922 gesti, janúarmánuður með 5665 gesti, og þar
á eftir siöustu þrir mánuðir ársins, október, nóvember, desember, allir með rúin-
lega 5000 gesti hver.
Fæstir komu I júni, aöeins 1771.
Dansleikir á föstudögum og laugardögum fyrir unglinga fædda ’59 og fyrr voru
langfjölmennastir á árinu, þá sóttu rúmlega 21 þúsund manns, og var meðaltalið
einnig hæstá þessum dansleikjum, 367aömeöaltali á hverjum dansleik.
Fyrstu fjóra mánuöi þessa árs hafa rúmlega 21 þús. gestir heimsótt Tónabæ, flest-
ir i marzmánuöi, alls 6709,1 april komu 5538 og i febrúar 5072. Almennu dansleikirnir
eru sem fvrr vinsælastir. fvrstu fióra mánuði ársins sóttu þá 9336 manns, að meðal-
tali 322 á hvern dansleik.
A fimmtudagskvöldum er Tónabær opinn kl. 20—23.30. Þá er aldurstakmark f. ’61
og ’62, aðgangseyrir 200 kr. og boðið upp á diskótek, skemmtiatriði og hljómsveitir.
A föstudagskvöldum er opið frá kl. 21—01, og er aldurstakmark þá f. ’60 og fyrr, aö-
gangseyrir 300krónur. Þá munu verða gerðar tilraunir meö dansleiki fyrir unglinga
f. ’59, og eldri. A föstudögum erboöiöuppá diskótek, skemmtiatriði og hljómsveitir.
A laugardagskvöldum er opið á sama.tima og á föstudagskvöldum, og aldurstak-
mark er hiö sama. Þá greiöir hver gestur kr. 500, og boðiö er upp á hljómsveitir,
diskótek og skemmtiatriöi.
Sunnudagskvöldin eru skemmtikvöld.
Búið er að ákveða sumaráætlun Tónabæjar, og er hún svohljóðandi i Bimbó nafni:
30. mai skemmtir Pelican, 31. mai Júdas, 6. júni Dögg, 7. júni Eik, 13. júni Borgis,
Vikivaki (sænsk-Islenzk hljómsv., sem hingað kemur, 5. júli Brimkló.
14. júni Júdas, 20. júni Ernir, 21. júni Pelican, 27. júni Fjóla, 28. júni Haukar, 4. júli
Vikivaki (sænsk-Islenzk hljómsv., sem hingað kemur) 5. júli Brimkló.
BARÐASKAMMTUR
Barði er fyrir löngu orðinn
þekktur meðal þeirra, sem að-
hyllzt hafa hina nýju stefnu I
brandaragerð. Baröa-brandar-
ana þekkja margir, og sifellt
verða þeir flciri og fleiri. Til gam-
ans hefur Nú-timinn tekið saman
brandara þessa og hyggst birta
þá i þættinuin á næstunni. Fimm
brandarar veröa birtir I einu, og
um leiö eru lesendur beðnir að
senda okkur brandara um hrak-
fallabálkinn Barða Barðason, ef
svo vildi til aö þeir væru ekki til I
safni okkar.
Fyrsti skammtur:
Barði og Asta kona hans sendu
vinum og kunningjum jólakort
um slðustu jól, eins og siður er
meðal vor. Barði varð þvi hálf
hvumsa við, er hann fékk senda i
pósti orðsendingu frá rannsókn-
arlögreglunni, þar sem hann var
vinsamlegastbeöinn að hætta öll-
um ólátum heima fyrir, — og var i
þessu sambandi visað til jóla-
korts þeirra hjóna.
En þar stóð, fyrir neðan hina
heföbundnu jólarullu: ásta barði
börnin!!
****
Eins og Islendinga er siður sett-
ist Barði einu sinni sem oftar við
skákborð og tefldi við kunningja
sinn. Allt i einu varð kunninginn
æfur og sagðist ekki tefla frekar.
— Þú teflir i tvisýnu, sagði hann.
****
Barði Barðason er tónlistarlega
sinnaöur, eins og reyndar allir
forfeður hans, upp til hópa. Hann
gekk þvl i hljómsveitina WC og
Viggu, sem vinsæl varð i byggð-
inni kringum sódavatn i lúðra-
sveit. En, — Baröi var rekinn. —
Þú gekkst á lagiö, helv.... fiflið
þitt, öskraði bassaleikarinn með
tárin I augunum!
****
Eins og öllum sem þekkja
Barða er kunnugt, er hann kenn-
ari með meiru, en áður en hann
ætlaöi að hella sér út i kennsluna
af fullum krafti, þótti honum ráð-
legt að sækja nokkra reiknings-
tima hjá Reiknings- og Gúmmi-
hjólbarðavinnustofunni s.f. við
Hjólkoppabraut. Vistin varð þó
ekki löng. Barði sneri dæminu
nefnilega alltaf við!!
****
Þrátt fyrir alla erfiðleika varð
Baröi kennari, og þótti honum
bezt að kenna landafræði, enda
hefur hann ferðazt mikið um ó-
byggðir landsins, bæði ofan- og
neðanjarðar, eins og han sagði
einatt. Barði var þó rekinn úr
þeim starfa sinum eftir einn
landafræðitima.
Hann sýndi nemendunumi tvo
heimana!!