Tíminn - 17.05.1975, Side 33
Laugardagur 17. mai 1975.
TÍMINN
33
poka sfnum og setti hana
á höfuð sér. Þá fóru aliir
hlutir að hneigja sig og
beygja og fetta sig og
bretta. Tré og steinar,
menn og skepnur, allt,
sem þar sást i nánd.
Maður kom ríðandi.
Maðurinn hneigði sig,
hesturinn hneigði sig.
Þar var klika kerling á
ferð með kú i taumi.
Kerlingin hneigði sig, og
beygði, og kusa gerði
slíkt hið sama.
Drengurinn varð lika
að hneigja sig eins og
aðrir. En litið glaðnaði
yfir honum, ennþá hélt
hann áfram að gráta.
— Nei, þér get ég ekki
hjálpað, þú ert ljóti
hljóðabelgurinn. En
húfuna máttu eiga. Það
getur komið sér vel fyrir
þig. Að svo mæltu
kvaddi ævagamli
maðurinn og fór.
Drengurinn labbaði
áfram leið sina grátandi
sem áður. Hann gekk
lengi, lengi. Loks sá
hann ljós skammt fram
undan sér. Hann gekk á
ljósið og kom loks að
stórri og veglegri höll.
Drengurinn sá enga lif-
andi veru fyrir utan
höllina. Allt var kyrrt og
hljótt. Settist hann þá
niður fyrir utan hallar-
dyrnar og tók að blása i
hljóðpipuna.
Skömmu siðar
opnuðust hallardyrnar,
og út komu tröllkarlar
og tröllskessur og alls
konar óvættir, þvi að
þetta var bústaður
þeirra, sem drengurinn
hafði rekizt á.
Drengnum fór nú ekki
að litast á blikuna. En
hann tók húfuna upp úr
poka sinum og setti hana
á höfuð sér, og svo náði
hann líka i hrossa-
brestinn og sneri honum
af öllum kröftum og blés
um leið i hljóðpípuna.
Þá varð nú heldur en
ekki líf og fjör I tröllun-
um. Þau dönsuðu og
hringsnerust hneigðu
sig og beygðu, fettu sig
og brettu og réðu sér
ekki fyrir kæti.
Eftir skamma stund,
hætti drengurinn Hann
tók ofan húfuna og stakk
henni ofan i pokann.
Hljóðpipuna lét hann i
buxnavasann sinn, en
hrossabrestinum hélt
hann enn á i hendinni.
Þá þyrptist trölla-
hyskið allt i kringum
hann, og allir kölluðu
hver i kapp við annan. —
Haltu áfram haltu
áfram) Konungur
tröllanna kom sjálfur til
hans. Hann var bæði
stór og digur, og nefið á
honum var þriggja álna
langt.
— Þú skalt verða
tengdasonur minn, sagði
hann við drenginn. Ég á
þrjár dætur, allar gjaf-
vaxta. Þú mátt kjósa
hverja þeirra, sem þér
lizt bezt á, og þær eru
hver annarri fallegri.
Þvi næst sneri hann
sér i áttina til
hallarinnar og kallaði
með drynjandi röddu: —
Grýla þrifætt! Griður
fjórfætt! Glumra
fimm»ætt! Komið þið
allar, dætur minar!
Brúðguminn bíður!
Tröllskessurnar
komu út eftir röð. Þær
hölluðu undir flatt og
nefnin á þeim — drottinn
minn dýri— það voru nú
nef i lagi. Ein þeirra
gekk á þremur fótum,
önnur á fjórum, og sú
þriðja hafði fimm fætur.
— Þú mátt eiga hverja
þeirra, sem þú vilt,
sagði risinn. Þú sérð, að
þær eru hver annarri
friðari.
Þá gat drengurinn
ekki að sér gert, hann
rak upp skellihlátur.
— Hvað er að tarna! Að
hverjum þremlinum
ertu að hlæja? sagði
tröllkarlinn.
— Ég er að hlægja að
þér, sagði drengurinn og
reyndi að stilla sig.
— Hvað gengur að hon-
Auglýsfrf
í Tímanum
um? spurði kóngurinn.
Þá fóru risarnir og
skessurnar öll að skelli-
hlæja, svo undir tók i
fellum og fjöllum, likast
þvi sem kominn væri
landskjálfti.
En rétt í þessu ljómaði
dagur, og ofurlitil
geislarönd sást á himn-
inum. Sólin var að koma
upp fyrir fjallið.
— Æ, æ og ó, ó, orguðu
tröllin. Þarna kemur
hún Glóey geislarjóð.
Við verðum að flýta
okkur inn. Inn með
ykkur öll!
Þá tók drengurinn
hljóðpipúna og blés i
hana, húfuna setti hann
upp i snatri, og hrossa-
brestinum sneri hann í
ákafa. Tröllin urðu
nauðug viljug að dansa
og snúast, unz sólin var
komin upp fyrir fjalls-
brúnina. Þá þoldu þau
ekki lengur mátið, þau
sprungu öll, og hvert eitt
og einasta varð að
steini.
Drengurinn gekk
siðan inn i höllina. Var
þar hver salurinn öðrum
fegurri. Allt glóði af
gulli og geimsteinum.
Drengurinn fór um alla
höllina og safnaði
saman dýrgripunum.
En i einu herbergi fann
hann forkunnar fagra
kóngsdóttur. Hún var
bundin á hárinu og sat
með fæturna i vatni upp
að knjám. Drengurinn
leysti hana, og varð hún
þá svo glöð, að hún
kyssti hann beit á
munninn.
Þau fóru nú með allar
gersemarnar heim til
föður stúlkunnar, sem
var voldugur konungur.
Tók hann vel við þeim og
þóttist hafa heimt dóttur
sina úr heljum. Þarf svo
ekki að orðlengja þeirra
meir. — Drengurinn og
kóngsdóttirin giftust,
unnust þau vel og lengi,
áttu börn og buru og
urðu kóngur og
drottning i riki sínu.
Aðalfundur
Reykjavikurdeildar Norræna *félagsins
verður i Norræna húsinu þriðjudaginn 20.
mai kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Röntgentæknar —
Hjúkrunarkonur
St. Jósepsspitalinn, Reykjavik óskar eftir
að ráða röntgentækna eða hjúkrunarkon-
ur við röntgendeild spitalans. Upplýsingar
veitir deildarhjúkrunarkona.
Nauðungaruppboð
Annað og siðasta á húsi nr. 34 við Þrúð-
vang, Hellu, Rangárvöllum, eign Vefstof-
unnar h.f., sem auglýst var i 26., 30. og 34.
tbl. Lögbirtingarblaðsins 1974, eftir kröfu
Iðnþróunarsjóðs fer fram á eigninni
sjálfri föstudaginn 23. mai n.k. kl. 16.00.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
13. mai 1975.
'M
ýi
‘t
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur
óskar eftir að ráða
umsjónarmenn
til starfa við skóla borgarinnar frá upp-
hafi næsta skólaárs. Laun samkvæmt
kjarasamningi borgarstarfsmanna.
Umsóknum skal skila til fræðsluskrif-
stofunnar fyrir 15. júni n.k.
M
fee?
•>
4;!:
m
W
(Þýtt úr norsku)
Þröstur Magnússon
Leigu
bílstíórar
Kynníð ykkur
Rekord II
með díselvél
Verð f rá kr. 1.616.000
Hagkvæmur lipur og bjartur.
Rúmgóó farangursgeymsla.
Þægilegt aö stíga inn og út.
Vökvastýri og aflmikil vél.
Rekord II meó bensínvél. Verö frá kr. 1.360.000.
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
@ Véladeild
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900