Tíminn - 10.06.1975, Síða 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKÚLATUNI 6 - SIMI (91)19460
FARSKIPIN VORU
ÞEGAR FARIN AÐ
HREYFAST ÚR
HÖFN í GÆR.
TÍMAAAYND GUNNAR
SAMUÐARVERKFALLI VELSTJORA AFLYST, EN
Skipafélögin vilja fá
dómsúrskurð um
lögmæti verkfallsins
Félagsdómur kemur saman í dag
ASÍ-deilan:
Sáttatillögur
í gærkvöldi?
BH-Reykjavik. — Ég held það
komi i ljós i kvöld eða annað
kvöld, hvað þeir eru með i poka-
horninu, sagði Björn Jónsson,
forseti Alþýðusambandsins, við
Timann i gærkvöldi um tiu-leytið,
i þann mund, er fundir voru að
hefjast hjá samninganefndunum.
Annars er það eina, sem fram
hefur komið frá atvinnurekend-
um, siðan viðræður hófust, að ein-
hver kauphækkun verði að koma,
svo að von sé um samkomulag.
En það er verið að tala um, að i
kvöld komi 'eitthvað frá sátta-
nefnd.
1 sama streng um tillögur frá
sáttanefnd tók ólafur Jónsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandins, en hann kvað
vinnuveitendur ekki hafa verið
jafn þvera og Björn vildi vera
láta. Vinnuveitendur hefðu alltaf
viljað ræða um verðtryggingu
Iauna með ákveðnum skilyrðum,
og batnandi viðskiptakjör hefðu
áhrif til launahækkana.
1 gær geröist það, aö Starfs-
stúlknaféiagið Sókn ákvað aö
fresta boðuðu verkfalli um viku,
og er við ræddum við forvigis-
menn verkalýðshreyfingarinnar
á sáttafundinum i gærkvöldi,
kváðust þeir telja þá ráðstöfun
eðlilega, þar sem starfsvettvang-
ur Sóknar væri á sjúkrahúsum,
elliheimilum og barnaheimilum,
Oó-Reykjavík. Vélstjórafélag Is-
lands aflýsti I gær samúðarverk-
falli á kaupskipum vegna verk-
falls vélstjóra á stóru skuttogur-
unum. Var aflýsing verkfallsins
tilkynnt, skömmu áður en-félags-
dómur átti að kveða upp úrskurð
um, hvort samúðarverkfallið
væri löglegt eða ekki. óskuðu
aðilar eftir frestun á dómsúr-
VERKSVIPTING
A FUNDI Vinnuveitendasam-
bands íslands, sem haldinn var I
gær, var samþykkt svohljóðandi
tillaga:
„Sambandsfundur Vinnuveit-
endasambands Isiands, haldinn 9.
júnl 1975, samþykkir heimild til
verksviptingar hjá félögunum og
felur sambandsstjórninni að
ákveða nánar, hversu viðtæk
verksviptingin skuli vera og hve-
nær hún komi til framkvæmda”.
Tillaga þessi var samþykkt ein-
róma, en 30:211 atkvæði voru á
fundinum. Atkvæðamagn fer eftir
greiddum félagsgjöldum og fé-
lagafjölda einstakra félagsdeilda
innan Vinnuveitendasambands
Islands. Tillagan hlaut um 92%
alls atkvæðamagns innan sam-
bandsins.
skurði þar til i dag, þriðjudag,
meðan athugun færi fram á þvi
hvort málið yrði fellt niður.
Nokkur kaupskip héldu úr höfn
I gær, skömmu eftir að samúðar-
verkfallið var afturkallað en enn
fleiri lágu enn bundin við bryggj-
ur i gærkvöldi.
Hjörtur Hjartar framkvæmda-
stjóri skipadeiidar SIS sagði i
gærkvöldi, að málshöfðunin hefði
ekki veriö dregin til baka og
sagði, að skipafélögin biðu enn
eftir úrskurði félagsdóms.
— 1 gærkvöldu barst bréf frá
Vélstjórafélaginu, þar sem til-
kynnt var, að verkfallinu væri af-
létt, en við höfum vefengt það,
sagði Hjörtur, að löglegt sé sam-
kvæmt vinnuíöggjöfinni að efna
til samúðarverkfalls á þann hátt,
sem gert var, og teljum fulla
ástæðu til þess að úr því fáist
skorið, vegna þess að það er ákáf-
lega óeðlilegt, að slik atriði fáist
ekki lögskýrð á eðlilegan hátt og
menn viti hvað þeir megi gera og
hvaö ekki.
Erfitt mun vera að koma
mörgum skipanna úr höfn, þar
sem stuttur timi er til stefnu, en
boöað hefur verið til allsherjar-
verkfalls rúmum sólarhring eftir
að vélstjórar afléttu sinu samúð-
arverkfalli.
Sópað fyrir
konunginn
SVONA LITUR
DÆAAIÐ ÚT
— SEGIR A.S.Í.
Carl XVI Gustaf Svlakonungur kemur I opinbera heimsókn til Is-
lands I dag. Konungur mun búa I Ráöherrabústaönum viö Tjarnar-
götu, og þessi unga stúlka var aö sópa stéttina þar fyrir utan I gær.
Timinn fór fram á þaö, aö ljósmyndari blaösins fengi aö taka ljós-
myndir inni I Ráöherrabústaönum, en forsetaembættiö neitaöi
þeirri ósk.
■-----------------► o »---------------------► o
sem sizt ættu að kenna á verk-
fallsaðgerðum.
Siðustu fréttir
Klukkan 11.45 i gærkvöldi sett-
ust samningaaöilar i ASl-deilunni
aö samningaboröi meö sátta-
semjara. Torfi Hjartarson varö-
ist allra frétta um hvaö fyrir
þessum fundi lægi, er Tlminn
haföi samband viö hann skömmu
fyrir fundinn. Þó lá i loftinu aö
hér væri um aö ræöa einhvers
konar tiliögu sáttanefndarinnar,
sem byggöar væru á frumkomn-
um tillögum og hugmyndum
samniiigsaöila.
Reyndi að sigla
kyrrsettu skipi
frá Eskifirði
Oó-Reykjavik Skipstjórinn á Is-
borgu setti vélar á fulla ferð og
skipið togaði óþyrmilega I vlrana,
þar sem það lá bundið við bryggju
á Eskifirði aðfaranótt laugar-
dags. Var þá búið að kyrrsetja
skipið vegna áfengissmygls og
taka skipsskjöl i land. Lögreglu-
menn voru nærstaddir og komu i
veg fyrir að virar slitnuðu eða
bryggjan yrði dregin á haf út.
Eins og skýrt var frá i Timan-
um á sunnudag, fundu tollveröir
smygl I skipinu, sem var að koma
frá Portúgal. Alls fundust 350 litr-
ar af spíritus og um 30 litrar af
léttu víni. Nokkuð af þessum
farmi var komið i bila I eigu
nokkurra skipverja og voru þeir á
bryggjunni, þegar leit var gerð i
þeim, Nokkurt magn fannst einn-
ig I vélarrúmi skipsins.
Tveir stýrimenn og einn vél-
stjóri játuðu að eiga áfengið, sem
reynt var að smygla. Eftir að leit-
að hafði verið I Isborgu, var kyrr-
setningunni aflétt, og fór skipið
áleiðis til Vestmannaeyja. Voru
þá enn tollverðir innanborðs.
Friöjón Guðröðarson, lögreglu-
stjóri i Höfn i Hornafirði, fer með
dómsrannsókn málsins.
EVENSEN
KEMUR
í DAG
HJ-Reykjavik Kl. 15 siðdegis i
dag er væntanlegur til landsins
Jens Evensen, hafréttarmáiaráð-
herra Noregs. Evensen kemur
hingaö frá London, þar sem hann
átti viðræður við helzta sérfræð-
ing brezku rikisstjórnarinnar á
sviði hafréttarmála, David Enn-
als aðstoðarutanrikisráðherra.
Að ósk Evensens hefur verið
ákveðinn fundur meö honum og
Islenzkum ráöamönnum kl. 16.30
slödegis. Einar Agústsson utan-
rlkisráðherra mun sitja fundinn,
en enn er ekki fullákveðið, hverjir
aðrir Islenzkir ráðamenn taki
þátt i honum, þvi að nú ber
margt að samtlmis. A fundinum
veröa rædd fiskveiöi- og hafrétt-
armál.