Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.03.2005, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 31.03.2005, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 31. mars 2005 Laugavegi 82 544 4036 Tilboðsdagar 20% afsláttur af öllum efripörtum Toppar, Bolir, Peysur, Skyrtur og Jakkar. Laugavegi 2 - 101 Reykjavík Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is Opið: Virka daga 10-18 Laugardaga 11-14 VORVÖRUR GLÆSILEGT ÚRVAL SENDUM LISTA ÚT Á LAND SÍMI 567 3718 Ný netsíða: www.svanni.is VOR 2005 Yfirhafnir á hálfvirði Vattúlpur, dúnúlpur, ullarkápur, húfur og hattar S: 588 5518 Opnunartími Mörkinni 6 mán. – fös. 10 – 18 lau. 10 – 16 Uma andlit Vuitton KILL BILL STJARNAN GETUR VERIÐ SÁTT. Hönnunarmerk- ið Louis Vuitton hefur valið Hollywood- fegurðardísina Umu Thurman sem andlit sitt. Tryggir þetta Umu margra milljóna dollara samning og hefur nú þegar setið fyrir á fjölmörg- um myndum til að kynna handtöskur fyrir árið í ár. Uma er að vonum spennt með nýja fyrirsætusamning- inn. „Ég skemmti mér meira núna en ég hef nokkurn tímann gert á ævinni.“ Tískuvikan í París er tilefni fjölda hönnuða til að sýna vinnu sína þar sem tískuhúsin eru öll með „showroom“ og innkaupa- stjórarnir þræða þau og kaupa inn fyrir næstu árstíð. Þess vegna er mikilvægt fyrir hönn- uði sem eru að koma sér á fram- færi að sýna eigin hönnun á sama tíma til að ná sambandi við hugsanlega viðskiptavini. Nokkur hópur íslenskra hönnuða var í París á dögunum, meðal annars Ásta Guðmunds- dóttir, og Hanna Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður sýndi í Galleríi við Place des Voges ásamt norsku tvíeyki, Arne og Carlos. Þeir eru þekkt- ustu hönnuðirnir í Noregi um þessar mundir og meira að segja opinberir hönnuðir Mette- Marit krónprinsessu. Steinunn hefur hannað fallega línu fyrir veturinn 2005-6, að mestu í svörtu og ljósgráu með mikið af kasmírull sem er einstaklega mjúk, einnig peysur með böndum til að binda með slaufur eða vefja eftir vild og jakka sem hægt er að fara í hvort sem þeim er snúið upp eða niður. Klæðin eru til þess gerð að láta sér líða vel í þeim og nota þau eftir eigin höfði. Þau minna á hönnun Issey Myake, en ein lína hans gengur út á að hver flík er unnin úr ein- um þræði sem er aldrei slitinn og efnið aldrei klippt og við- skiptavinurinn á að nota flíkina að vild. Lína Steinunnar er þó íslensk og með alþjóðlegum blæ en hún hefur meðal annars unnið með Tom Ford við hönnun kvenlínu Gucci þegar hann var þar aðal- hönnuður. Þær Erna Steina Guðmunds- dóttir, Lísbet Sveinsdóttir og Matthildur Halldórsdóttir hafa nú í fimm ár verið að byggja upp fyrirtækið ELM og eru smátt og smátt að bæta við hönnunina, frá því að vera aðal- lega með prjónaðar peysur og aðrar flíkur, í að hanna flíkur sem eru saumaðar úr mjög fínni bómull og hör þar sem einungis hágæðaefni eru notuð. Íslenskir hönnuðir eru með útþrá. Flestir eiga þeir (þær ætti ég heldur að segja, það virðast aðallega vera konur sem eru í því að hanna!) það sam- merkt að eiga erfiðara með inn- komu á evrópskan markað, sér- staklega hér í París, háborg tískunnar. Vandamálið er að það kostar gífurlega fjármuni að markaðssetja sig eða að greiða þriðja aðila fyrir að sjá um að selja í búðir og þessa fjármuni vantar alveg. Hvernig væri að eyða hundrað milljónum í að markaðssetja fatahönnuði í staðinn fyrir menningarkynn- ingu? Í íslenskri hönnun liggur grafið gull sem því miður allt of fáir vita um. Ein kona með saumavél í eldhúsi getur ekki náð ein inn á heimsmarkað, þótt það sé afskaplega rómantískt. ■ Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Ein sit ég og sauma Clarins kynnti á dögunum nýjan ilm sem ber heitið Par Amour. Þetta er létt- ur og kvenlegur ilmur þar sem blandast saman létt berjaangan, rósailmur og aðeins ákveðnari ilmur af sandalviði. Mikil alúð var lögð við hönnun glassins og umbúðanna en tákn ilmsins er ævintýralegt tré með eldrauðum laufum, en listamaðurinn, Liliana Guderska, er fyrrverandi fyrirsæta. Glasið er sporöskjulagað og tappinn eldrautt hjarta enda þýðir Par Amour: fyrir ástina. Samhliða Par Amo- ur kemur annar ilmur, svipaður en létt- ari sem nefnist Par Amour Toujours og ber hann ljúfa angan af greipávexti og rós- um. Til aðgreiningar frá Par Amour er glasið og umbúðirnar bleikt en ekki rautt, sem leggur áherslu á æsku og léttleika Par Amour toujours. Par Amour fæst í 30, 50 og 100 mililítra flöskum en Par Amour Toujours í 30 og 50 millilítra flöskum. ■ Léttur ilmur fyrir ástina CLARINS FAGNAR HÁLFRAR ALDAR AFMÆLI UM ÞESSAR MUNDIR.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.