Fréttablaðið - 31.03.2005, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
ÓLÁN
Mér finnst alltaf verið að hvetjafólk til að taka lán. Það þykir
einföld og þægileg leið til að eignast
eitthvað. Þó maður eigi náttúrlega
aldrei það sem maður er með í láni.
Eða hvað? Ég hef slæma reynslu af
lánum. Ég hef tekið mikið af þeim í
gegnum tíðina. Ég hef gert óraun-
hæfar áætlanir og lent í greiðslu-
erfiðleikum og vanskilum. Og oftar
en ekki hef ég greitt lánin upp í
gegnum lögfræðinga og þurft að
borga margfalt meira en til stóð. All-
ir tala með lánum, fáir gegn þeim.
ÉG FÓR á heimasíðu eins bankans í
gær og reiknaði út, í gamni, hvað
það kostaði að taka 100% íbúðarlán.
Ég miðaði við upphæðina 20 milljón-
ir, til 40 ára. Verðbólga í dag er um
3,5%. Það sem ég hefði borgað þeg-
ar upp er staðið væru alls
88.465.995. Ef verðbólgan aftur á
móti yrði 5% þá yrði heildarupp-
hæðin 127.252.329 kr. Ef verðbólgan
mundi hækka upp í 10% þá mundi
heildarupphæðin hækka upp í
477.368.981. Vá!
AUÐVITAÐ er oft nauðsynlegt að
taka lán. En ungt fólk þarf að vera
meira vakandi gagnvart lánum,
vöxtum og kostnaði samfara lán-
töku. Það er svo auðvelt að steypa
sér í skuldafangelsi. (Ég gerði það
með aðra hendi fyrir aftan bak og
bundið fyrir augu.) Lán er ekki eign,
langt í frá. Það er skuld, sem verður
innheimt með öllum tiltækum ráð-
um; innheimtuvöxtum, nauðungar-
sölum og gjaldþrotum.
AUGLÝSINGAR fjármálafyrir-
tækjanna og bankanna eru fullar af
blekkingum. Það á að vera svo auð-
velt og þægilegt að taka lán. Og öll
lán eru hagstæð. Hvað er eiginlega
hagstætt lán? Fyrir hvern er það
hagstætt? Fyrir mér er hagstætt lán,
lán sem tekur mið af greiðslugetu
lánþegans og breytilegum aðstæðum
hans. Verðtryggt lán finnst mér ekki
hagstætt, sérstaklega vegna þess að
launin mín eru ekki verðtryggð. Að
taka verðtryggt lán er eins og að
spila rússneska rúllettu.
ÉG HELD að lán hafi farið alveg
jafnilla með heilsu Íslendinga og
reykingar. Kannski þarf að stofna
Lánavarnaráð og setja feitletruð við-
vörunarorð á víxileyðublöð og láns-
umsóknir eins og gert er við sígar-
ettupakka.
Á ÍSLENSKU er lán tengt heppni.
Og sumir eru lánsamari en aðrir. En
lán verður auðveldlega að óláni. Lán
er skuld.
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR