Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 10
SKUGGINN AF SJÁLFUM SÉR Jóhannes Páll páfi gægðist út um glugga á íbúð sinni í Vatíkaninu í gær og blessaði vegfarendur. Páfinn reyndi jafnframt að segja eitthvað en svo mjög er dregið af honum að ekki var hægt að heyra orðaskil. 10 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR Halldór Blöndal: Nýr framhaldsskóli í Eyjafirði 2006 SKÓLAMÁL Halldór Blöndal, for- seti Alþingis, telur að sveitar- stjórnarmenn og skólamenn á Siglufirði, í Ólafsfirði og á Dalvík verði að koma sér saman um staðsetningu nýs framhalds- skóla við utanverðan Eyjafjörð, en alþingismenn hafa lýst áhuga á að koma á fót slíkum skóla. Hann segir að alþingismenn eigi ekki að skipta sér af staðsetn- ingunni. Ekki er gert ráð fyrir fjár- magni til stofnsetningar skólans á fjárlögum þessa árs en Halldór telur fullkomlega mögulegt að gert verði ráð fyrir því í fjárlögum næsta árs. Ekki þurfi mikið því að töluverður sparnaður komi á móti. Talið er hugsanlegt að fyrsti bekkur geti tekið til starfa haustið 2006 og að í árslok 2009 næði framhaldsskólinn til allra bekkjardeilda. Halldór segir að gömul hefð sé fyrir því að nemendur í Eyja- firði fari í Menntaskólann á Ak- ureyri og Verkmenntaskólann og það geri þeir eflaust áfram en svo skipti líka miklu máli að hafa framhaldsskóla á staðnum. Það sýni til dæmis Framhalds- skólinn á Húsavík. - ghs Félag járniðnaðarmanna: Verkefni fara úr landi JÁRNIÐNAÐARMENN Trúnaðar- mannaráð Félags járniðnaðar- manna hefur lýst andstöðu sinni við frumvarp til laga um að Tryggingadeild útflutnings verði lögð niður. Þetta kemur fram í ályktun. Þar kemur fram að deildin veiti framleiðendum útflutn- ingsábyrgð. Verði hún lögð niður muni samkeppnisstaða innlendra fyrirtækja versna, hætta verði á að útrás þeirra dragist saman og verkefni fari úr landi. Örn Friðriksson, formaður Félags járniðnaðarmanna, segir að miklu skipti fyrir útflutn- ingsfyrirtæki að geta fengið ábyrgðir lána. - ghs HALLDÓR BLÖNDAL Halldór Blöndal telur að skólamenn og sveitarstjórnarmenn í Ólafsfirði, á Dalvík og hugsanlega á Siglufirði verði að koma sér saman um staðsetningu á nýjum fram- haldsskóla.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA DÓMSMÁL „Þessi niðurstaða sannar það og sýnir að lögbannið var til- efnislaust með öllu og þeir sem óskuðu eftir því í upphafi sem og þeir sem settu það á okkur mega skammast sín,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands. Héraðsdómur Norðurlands eystra vísaði í gær frá kröfu Útgerðarfélagsins Sólbaks á hendur Sjómannasambandinu, Vélstjórafélaginu, Félagi skip- stjórnarmanna og Einingar-Iðju um staðfestingu lögbanns þess er sett var á félögin við hótanir þeirra að trufla löndun Sólbaks þann 13. október síðastliðinn. Taldi dómurinn að álagt lög- bann sýslumanns hefði verið of víðtækt og skort lagaheimildir í upphafi og ekki hafi orðið neinnar truflunar vart þegar löndun átti sér stað. Varð ekki séð að stefn- andi hefði neina réttarhagsmuni af því að fá lögbannið staðfest og því vísað frá. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir dóminn staðfesta að Eining-Iðja hafi ekki einkarétt á löndun á Eyjafjarðar- svæðinu og því hafi Útgerðar- félagið Sólbakur ekki getað kraf- ist lögbanns. „En málið er búið og því var því vísað frá. Við erum mjög sáttir við þetta.” - aöe Útgerð Sólbaks gegn sjómannafélögunum: Vísað frá dómi LÖGBANN EKKI STAÐFEST Útgerð Sólbaks þótti ekki setja fram nægileg rök fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra til að staðfesta lögbann það er sýslumaðurinn á Akureyri setti í október. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.