Fréttablaðið - 31.03.2005, Síða 51
■ MÁL MICHAEL JACKSON
TA
SK
I s
w
in
go
7
50
B
*
REKSTRARVÖRULISTINN
VÉLAR OG TÆKI
Sími 520 6666 www.rv.is Réttarháls 2
R
V
20
30
A
Stjörnulögfræðingur
og verjandi OJ látinn
Bandaríski stjörnulögfræðing-
urinn Johnnie Cochran er látinn,
67 ára að aldri. Cochran, sem
greindist með heilaæxli í desem-
ber árið 2003, lést á heimili sínu
í Los Angeles.
Cochran skapaði sér nafn sem
lögfræðingur með því að taka að
sér mál þeldökkra skjólstæðinga
sem höfðu margir hverjir átt
erfitt uppdráttar í samfélaginu.
Hann var þó þekktastur sem lög-
fræðingur leikarans og fótbolta-
kappans fyrrverandi O.J. Simp-
son, sem var sýknaður af ákæru
um að hafa myrt fyrrverandi eig-
inkonu sína og vin hennar. Þótti
mörgum frammistaða Cochran
hafa verið lykillinn að sýknun
O.J., sem af flestum var talinn
sekur um verknaðinn. Setningin
„Ef hann passar ekki verður að
sýkna“ varð fræg í réttarhöld-
unum þegar Cochran sýndi kvið-
dóminum fram á að morð-
hanskinn passaði ekki á Simpson.
Á meðal fleiri þekktra skjól-
stæðinga Cochran voru Tupac
Shakur, Snoop Dogg og Sean „P.
Diddy“ Combs. ■
Móðirin neitaði
peningafúlgu
Móðir piltsins sem hefur ákært
Michael Jackson fyrir kynferðis-
lega misnotkun neitaði að taka við
peningafúlgu eftir að heimildar-
mynd um Jackson, þar sem popp-
arinn og pilturinn sáust haldast í
hendur, var fyrst sýndur.
Þessi vitnisburður kemur sér
afar illa fyrir verjendur Jacksons,
sem alla tíð hafa haldið því fram
að móðirinn sækist einungis eftir
peningum hans. Það var vitnið
Jamie Masada, sem kom á fundi
með piltinum og goði hans
Jackson árið 1999, sem hélt þessu
fram í réttarsalnum. ■
JOHNNIE COCHRAN Lögfræðingurinn knái mátar morðhanskann sem O.J. var talinn
hafa notað við morðin á fyrrum eiginkonu sinni og vinar hennar.
BIÐUR BÆNIR Michael Jackson biður
bænirnar á leið úr réttarsalnum. Ekki veitir
af, því hann er í slæmum málum um
þessar mundir.