Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 48
Brian „Head“ Welch, fyrrum gítarleikari Korn er staðráðinn í því að snúa rapparanum 50 Cent í átt til ljóssins. Gítarleikarinn frelsaðist fyrir skömmu síðan og sagði skilið við rokkhljómsveitina sem gerði hann frægan. Núna er hann búinn að gera lag sem gagnrýnir lífsstíl rapparans harðlega. Head segir að lagið sé ekki árás á rapparann, heldur „persónulegt bréf frá Guði“ til hans. Gítarleikarinn segist hafa áttað sig á því að það væri vilji Guðs að hann gerði þetta lag til rapparans, þegar hann var skírður í ánni Jórdan í Ísrael fyrir nokkrum vikum síðan. Lagið heitir A Cheap Name og í texta lagsins varar Head 50 Cent við því að haldi hann áfram að lifa eins og hann gerir, þá sé tíunda skotið ekki langt undan. Með því vitnar hann í þá stað- reynd að 50 Cent lifði af skotárás þar sem hann fékk 9 skotsár. „Ég hef ekki hugmynd um hvort þú átt að lifa eða deyja,“ sagði Head beint til 50 Cent í viðtali. „Aðeins Guð veit það. Ég er bara sendillinn með skilaboðin. Ég veit að Guð bað mig um að segja þér að hann elskar þig, og að leiktíminn sé núna bú- inn. Hann segist hafa verið með þér, og haldið þér öruggum allan þennan tíma. Hann er ástæðan fyrir því að þú tókst níu skot. En ekki að þú sért Súpermann.“ Queens of the Stone Age snýr aftur eftir að hafa hrist rokkheiminn verulega með Songs for the Deaf. Getur sveitin mögulega haldið vin- sældum sínum eftir brotthvarf bassaleikar- ans Nick Oliveri? Þó svo að flestir hafi orðið varir við Queens of the Stone Age fyrir rúmum tveimur árum, þegar þeir gáfu út hina mögnuðu Songs for the Deaf, á sveitin sér langa sögu. Hún var í raun og veru fyrst stofnuð árið 1990 í Palm Beach Flórída og hét þá Kyuss. Sveitin lifði í sjö ár og náði aldrei teljandi vinsældum á þeim tíma. Þeir voru þó mjög virtir á meðal aðdáenda þungarokks og jafnvel sagðir frumkvöðlar vafasamrar stefnu sem kennd er við „stoner rock“. Myndrænni lýsing á sömu tónlist- arstefnu er „eyðimerkurrokk“. Það nafn festist við stefnuna því sveitir á borð við Kyuss áttu það til að halda tónleika í partíum sem voru haldin í eyðimörkinni í Suður-Kaliforníu. Kyuss var fyrsta hljómsveit gítarleikarans Josh Homme og bassaleikarans Nick Oliveri. Sveitin átti aldrei auðvelt með að fóta sig og liðsmenn hurfu einn af öðrum. Oliveri var fyrstur til þess að fara og sveitin brann upp árið 1997. Josh Homme var ekkert á því að hætta og stofnaði Queens of the Stone Age úr ösku Kyuss árið 1997. Framkvæmdasamur Homme Í fyrstu útgáfu sveitarinnar fékk hann til liðs við sig trommarann Alfredo Hernandez úr Kyuss og fyrrum bassaleikarann Nick Oli- veri. Homme er þekktur fyrir að vera sérstaklega framkvæmda- samur og fyrsta breiðskífan skil- aði sér í búðir árið eftir. Með út- gáfunni tryggði sveitin sér samn- ing við Interscope og önnur plata sveitarinnar R kom út hjá þeim tveimur árum síðar. Á þeirri plötu var m.a. að finna slagarana Feel Good Hit of the Summer, The Lost Art of Keeping a Secret og Better Living Through Chemistry. Eftir tónleikaferðina sem fylgdi í kjölfarið var flestum ljóst að hér væri stórsveit á ferð. Bassaleikarinn Nick Oliveri fang- aði athygli fjöldans með því að spila oftast nakinn á tónleikum. Ekki var það svo verra þegar hann var handtekinn fyrir það at- hæfi á stærstu rokkhátíð Suður- Ameríku sem haldin er árlega í Ríó. Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters og fyrrum trommari Nirvana, var duglegur að hrósa sveitinni í viðtölum sem leiddi til þess að Josh Homme bauð honum trommarastólinn þegar kæmi að því að hljóðrita næstu plötu. Öllum að óvörum samþykkti Grohl til- boðið og færði Songs for the Deaf þann ótrúlega kraft sem á henni er. Sveitin sló í gegn og Grohl lék með sveitinni á stuttri tónleikaferð eftir útgáfu plötunnar. Oliveri rekinn Það komst í heimsfréttirnar þegar Josh Homme rak vin sinn, stripp- linginn Nick Oliveri, úr sveitinni í fyrra. Það var aldrei farið mjög djúpt ofan í ástæður þess, en Homme gaf það þó í skyn að bassaleikarinn ætti í heljarinnar glímu við áfengi sem bitnaði á starfsemi sveitarinnar. Það er því með eftirvæntingu sem rokkþyrstir hafa beðið eftir fjórðu plötu sveitarinnar. Lulla- bies to Paralyze er nú komin í búðir og hefur fengið góða dóma gagnrýnenda á flestum víg- stöðvum. biggi@frettabladid.is > Plata vikunnar ... KINGS OF LEON: Aha Shake Heartbreak „Á fyrri plötu Kings of Leon hljómaði sveitin eins og sveitalubbar sem voru að reyna að hljóma eins og New York upparnir í The Strokes. Á annarri plötu þeirra hljóma þeir bara eins og sveitalubbar, og það fer þeim miklu betur.“ BÖS 28 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR AUDIOSLAVE Sveitin situr í toppsæti Dominoslistans með lagið Be Yourself. [ TOPP 20 ] X-DOMINOSLISTINN 30. MARS AUDIOSLAVE Be Yourself RAMMSTEIN Keine Lust KINGS OF LEON King Of The Rodeo BECK Epro NINE INCH NAILS The Hand That Feeds AND YOU WILL KNOW US BY… Worlds Apart KASABIAN Processed Beats CHEVELLE The Clincher MODEST MOUSE The World At Large INTERPOL C’mere GREEN DAY Holiday LCD SOUNDSYSTEM Daft Punk Is Playin In My House LOKBRÁ Stop The Music (ísl) GARBAGE Why Do You Love Me JAN MAYEN Damn Straight (ísl) BRAIN POLICE Paranoia (ísl) MARS VOLTA The Widow HOFFMAN Bad Seeds (ísl) JEFF WHO Death Before Disco (ísl) THE FUTUREHEADS Hounds Of Love 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Drottningar dauðans snúa aftur QUEEN OF THE STONE AGE Rokksveitin knáa er búin að senda frá sér nýja plötu sem hefur fengið góða dóma gagnrýnenda. tonlist@frettabladid.is Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI Queens of the Stone Age: Lullabies to Paralyze, Gorillaz: Demon Days, Michael Jackson: Thriller og The Knife: Deep Cuts. > G or ill az > M ichael Jackson Head vill frelsa 50 Cent > Popptextinn ... „Girls are gonna love the way I toss my hair, boys are gonna hate the way i sing.“ - Brothættur söngvari Kings of Leon leggur sjálfum sér línurnar í laginu Day Old Blues af nýjustu plötu þeirra Aha Shake Heartbreak. Beck: Guero „Sjötta meginstraumsútgáfa Beck veldur vonbrigð- um. Sjarmi Becks í gegnum tíðina hefur verið hæfni hans að skapa bragðgóða hrærigrauta úr mismunandi stílum. Í þetta skiptið bragðast graut- urinn óþægilega kunnuglega.“ BÖS Bloc Party: Silent Alarm „Nýjasta eftirlætið frá Bretlandi veldur ekki von- brigðum. Fínasta frumraun frá Bloc Party. Angur- vært og grípandi rokk með hjartað á réttum stað.“ BÖS 50 Cent: The Massacre 50 Cent gefur aðdáendum sínum það sem þeir vilja á fylgifisk hinnar geysivinsælu Get Rich or Die Tryin. Þetta er nánast sama kaffið, Nesquick með allt of miklum sykri. Aðdáendur verða sáttir, hinir halda áfram að hrista hausinn. BÖS Daft Punk: Human After All „Daft Punk náðu loksins að sannfæra mig að hér séu tilfinningaríkir og skapandi menn á ferð. Bráð- skemmtileg plata sem rennur þægilega í gegn frá upphafi til enda.“ BÖS Mercury Rev: The Secret Migration „The Mercury Rev hefur aldrei hljómað eins óá- hugaverð og á þessari nýju plötu. Það er eins og liðsmenn hafi verið knúnir áfram af einhverju allt öðru en sköpunargleði við að gera þessa plötu.“ BÖS Kanye West: The College Dropout „Frumraun Kanye West er frábær hiphop-plata. Hér er eitthvað fyrir alla. Plata sem á eftir að standast tímans tönn.“ BÖS LCD Soundsystem: LCD Soundsystem „Frumraun LCD Soundsystem er um margt áhuga- verð plata. Hún á þó líklegast ekki eftir að standast væntingarnar sem hún er með frá erlendu press- unni. Sæmilegasta plata, ekki mikið meira en það.“ BÖS Gwen Stefani: Love Angel Music Baby „Fyrsta sólóplata Gwen Stefani veldur vonbrigðum. Það er eins og þessi hæfileikaríka og sjarmerandi stúlka hafi ekki vitað í hvorn fótinn hún átti að stíga, og því hafi hún stólað á aðra til þess að leiða sig áfram. Því miður virðast þeir hafa verið með bundið fyrir augun.“ BÖS [ SMS ] UM NÝJUSTU PLÖTURNAR Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.