Fréttablaðið - 23.04.2005, Side 18
23. apríl 2005 LAUGARDAGUR
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 86. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005
Allt um
sumartískuna
Bls. 34–35
Bls. 18 & 20
Misþroskamæður sv arafyrir sig
Óttast
um líffjölskyldunnar
256Mb kr. 3.490,-
512Mb kr. 5.990,-
1.0Gb kr. 9.990,-
PQI SD minniskort
Móðir drengsinssem var skotinn á Akureyri
Kerfið veitir handrukkurum frelsiÍtarleg úttekt DV á því hvernig ofbeldismennfremja glæpi en ganga lausir.
Laus Laus Laus
Halldór Dungal Drakk própanól og varð blindur
Bls. 32–33
Bls. 21–23
Kerfið veitir
handrukkurum frelsi
Ítarleg úttekt DV á því
hvernig ofbeldis-
menn fremja
glæpi en ganga
lausir.
Karl Wernersson er maður vik-
unnar. Félag í eigu hans og
tveggja systkina hans keypti tvo
þriðju í Sjóvá af Íslandsbanka.
Milestone, félag í eigu systkin-
anna, er einnig næststærsti hlut-
hafinn í Íslandsbanka. Með kaup-
unum á Sjóvá er Karl kominn í
hóp öflugustu fjárfesta og
stóreignamanna í ís-
lensku viðskiptalífi.
Karl er fæddur árið
1962, sonur hjónanna
Werners Rasmussen og
Önnu Karlsdóttur, og
er í miðjunni í fimm
systkina hópi. Fjöl-
skyldan átti og rak
Ingólfsapótek og var
Werner auk þess at-
kvæðamikill at-
hafnamaður og
fjárfestir. Á
margan hátt
má segja að
Werner hafi
verið á undan
samtíð sinni í við-
skiptahugsun og
hafi verið líkari í
hugsun þeim sem
nú fara um völl við-
skiptanna en þeim
sem þá réðu ríkjum.
Hann var ódeigur við
að reyna nýja hluti og
sumt gekk vel, en ann-
að miður eins og geng-
ur.
Eitt verkefna fjöl-
skyldunnar sem gekk illa
var Örtölvutækni sem Karl
stjórnaði um tíma. Er það
mál þeirra sem þekkja til
Karls að hann hafi tekið
rekstrarerfiðleika fyrirtæk-
isins nærri sér. Hann er því
hertur í eldi reynslunnar
þegar hann nú hefur komið
sér í hóp öflugustu kaup-
sýslumanna landsins.
Þótt fjölskyldan hafi alla
tíð verið vel stæð hefur upp-
gangurinn verið gríðarlegur síð-
ustu árin. Karl er að sögn þeirra
sem þekkja til ekki silfurskeiðar-
drengur og vann eins og margir
jafnaldrar hans almenna verka-
mannavinnu á sumrin. Þar þótti
hann duglegur til vinnu og þykir
enn.
Fjölskyldan átti stóran hlut í
lyfjafyrirtækinu Delta og var
Karl lykilmaður í því að sameina
fyrirtækið Pharmaco, eða Actav-
is eins og það heitir nú, sem laut
stjórn Björgólfsfeðga. Eftir sam-
eininguna margfaldaðist verð-
mæti eignarhlutarins og þá
eignamyndun nýtti Karl sér til
þess að eignast stóran hlut í Ís-
landsbanka. Sú fjárfesting hefur
skilað honum góðum hagnaði.
Þar sem hann hafði verið í við-
skiptum með Björgólfsfeðgum
reiknuðu margir með að kaup
hans í Íslandsbanka væru hluti
af ásókn Landsbankans í Íslands-
banka. Það kom því mörgum á
óvart þegar það skýrðist smátt
og smátt að Karl væri á eigin
vegum í fjárfestingunni og hygð-
ist beita sér þar á eigin forsend-
um. Síðan þá hefur skýrst skref
fyrir skref að Karl tekur frum-
kvæði sem stór eigandi í bankan-
um og styður þar núverandi
forstjóra og meirihluta í
bankaráðinu. Þeir sem til
þekkja segja samstarf
Bjarna Ármannssonar,
forstjóra Íslands-
banka, og Karls mjög
gott, þótt þar fari
talsvert ólíkir
menn.
Karl þykir nokk-
uð dulur og gefur
sig lítið upp. Hann
þykir öflugur
rekstrarmaður
og hefur sýnt
upp á síðkastið
að hann kann
ýmislegt fyrir
sér í leikfléttum
viðskiptalífsins.
Undanfarin ár
hefur hann byggt
upp og rekið lyf-
sölukeðjuna Lyf og
heilsu og reynslan
af smásölu mun ef-
laust nýtast honum vel í
því verkefni að reka vá-
tryggingafélagið Sjóvá.
Karl er í viðskiptum
sagður standa fast á
sínu og er ekki mikið
fyrir að fara eins og
köttur í kringum heitan
graut. Þeir sem hafa
unnið með honum segja
hann snöggan að greina
kjarnann frá hisminu og
einbeita sér síðan að
kjarnanum og láta ann-
að ekki trufla sig. Hann
þykir mjög jarðbundinn
og lætur smáatriði lítið
trufla sig við ákvarðanir í
rekstri fyrirtækja sinna.
Hann þykir geta verið
harður í horn að taka og ófeim-
inn við að skapa sér óvinsældir
með ákvörðunum sem hann telur
þurfa að taka.
Í fjárfestingum sínum þykir
Karl hafa verið djarfur og
óhræddur við að taka áhættu.
Fram til þessa hafa fjárfesting-
arnar skilað góðum árangri og
komið honum í hóp lykilmanna í
íslensku viðskiptalífi. ■
Háskóli Íslands þarf aukna fjár-
muni til þess að standa undir ört
stækkandi nemendahópi. Ríkis-
endurskoðun staðfesti þá stað-
reynd í nýlegri stjórnsýsluúttekt
en þetta hefur lengi legið ljóst
fyrir meðal stúdenta og starfs-
fólks Háskólans.
Röskva, samtök félagshyggju-
fólks við Háskóla Íslands, telur
nauðsynlegt að staða Háskólans
verði tekin til gagngerrar endur-
skoðunar í kjölfar úttektarinnar.
Nauðsynlegt er að bregðast fljótt
og vel við til þess að koma í veg
fyrir að fjárskorturinn bitni á
gæðum þeirrar menntunar sem
Háskóli Íslands veitir. Jafnrétti til
náms, án tillits til efnahags eða
annara aðstæðna, er algjört
grundvallaratriði.
Skólagjöld munu án nokkurs
vafa skerða slíkt jafnrétti og telur
Röskva því rétt að auknir fjár-
munir til Háskólans komi úr ríkis-
sjóði. Það er líka staðreynd að Ís-
lendingar verja hlutfallslega
minna fé til háskólastigsins en ná-
grannaþjóðir okkar. Allir þeir há-
skólar sem Ríkisendurskoðun bar
saman við Háskóla Íslands hafa
hærri tekjur á hvern nemanda,
utan eins í Króatíu. Samanburðar-
skólarnir hafa margir tvöfalt eða
allt að þrefalt fjármagn með
hverjum nemanda miðað við Há-
skóla Íslands. Eins og Röskva
hefur ítrekað bent á og kemur
einnig fram í skýrslunni hefur
Háskóli Íslands ekki fengið greitt
fyrir alla nemendur sem þar hafa
stundað nám síðustu árin og eru
nemendur sem ekki fæst greitt
fyrir nú um fimmhundruð talsins.
Slíkt er að sjálfsögðu óásættan-
legt og afar mikilvægt að leiðrétt
verði sem allra fyrst.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar
eru fjöldatakmarkanir og niður-
felling námsgreina nefndar sem
mögulegar aðgerðir. Þeim hafnar
Röskva með öllu, enda ljóst að það
myndi hafa í för með sér að færri
lykju háskólanámi á Íslandi og að
námið yrði einsleitara. Í ljósi þess
að hlutfall háskólamenntaðra á Ís-
landi er undir meðaltali OECD
væri slíkt afar óæskileg þróun.
Það er mat Röskvu að öflugur há-
skóli sem stendur öllum opinn
hafi ómetanleg áhrif á þjóðfélagið
allt. Það er því hagur okkar allra
að standa við bakið á Háskólanum
og gæta þess að hann sé í stakk
búinn til þess að veita bestu
menntun sem möguleg er. Háskóli
Íslands hefur sýnt að hann er full-
fær um vera í fremstu röð. Það
verður hann hins vegar ekki að
sjálfu sér. ■
EVA BJARNADÓTTIR,
FORMAÐUR RÖSKVU
UMRÆÐAN
RÍKISENDURSKOÐUN
OG HÍ
Jarðbundinn og
stendur á sínu
MAÐUR VIKUNNAR
KARL WERNERSSON, STÆRSTI EIGANDI SJÓVÁR
Fjársvelti Háskólans staðfest
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
. –
H
U
G
VE
R
K
A.
IS