Fréttablaðið - 23.04.2005, Side 28

Fréttablaðið - 23.04.2005, Side 28
28 23. apríl 2005 LAUGARDAGUR Tómt vesen að vera fyndinn Sviðið er autt, en í djúpum leðursófum við súrrealískt taflborð sitja tveir af mestu grínurum lýðveldisins, Laddi og Sveppi. Báðir meitlaðir svipmóti leiklistargrímanna. Laddi alvarlegur eins og útfararstjóri. Sveppi blaðskellandi eins og erkitýpa grínsins. Báðir blessaðir örlátum vöggugjöfum grínguðsins. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir tók þá Ladda og Sveppa tali áður en þeir stigu aftur á svið. Þórdís: Laddi, hvað finnst þér fyndið við Sveppa? Laddi: Mér finnst allt fyndið við Sveppa. Sveppi: Eyrun? Hárið? Bumban? Laddi: Allt saman. Sveppi hefur oft fengið mig til að skella upp úr og konan mín er æðislega hrifin af honum. Mér skilst að pabbi Sveppa komi til að sjá mig, en konan kemur örugglega til að sjá Sveppa. Þórdís: Hvað eigið þið sameigin- legt sem skemmtikraftar? Laddi: Að vera báðir aldir upp í sjónvarpi og vera hvorugur menntaðir leikarar. Ég sat reynd- ar einn kúrs í háskóla Los Angel- es-borgar og var tekinn inn í leik- arafélagið eftir það, því UCLA er svo flott nafn. Annars getur eng- inn orðið leikari nema að hafa til þess hæfileika og það er fullt af útlærðum sem geta ekkert leikið. Ég nefni engin nöfn. Sveppi: Ég sótti nú tvisvar um í Leiklistarskólann án þess að kom- ast inn, ég varð alveg brjálaður í bæði skiptin. Laddi: Iss, ég hugsa að ég hefði ekki heldur komist inn. Við erum of miklir grínarar. Það má ekki grínast svona mikið. Sveppi: Við Laddi vitum þó best að það er miklu erfiðara að grín- ast en leika drama. Laddi: Maður fær strax í hausinn ef manni tekst illa upp og er um- svifalaust púaður niður, meðan í drama heyrast engin viðbrögð úr salnum. Sveppi: Eitt sinn þótt óæðra að vera gamanleikari en þetta hefur skánað í seinni tíð. Menn líta ekki lengur á grínistann sem trúð og gera sér grein fyrir að farsi er strembin leiklist. Sjarmerandi strákapör Þórdís: Laddi, hvern þinna karaktera þykir þér vænst um? Laddi: Ég hef alltaf haldið mest upp á Eirík Fjalar og þykir vænt um hann eins og son minn, en hann á bágt, greyið. Búinn að lesa yfir sig og orðinn barn á ný. Ann- ars taldi ég yfir fimmtíu karakt- era um daginn, þótt þekktastir séu helmingur þeirra, meðal ann- arra Skúli rafvirki, Þórður hús- vörður, Dengsi, Elsa Lund, Saxi læknir, Hallgrímur Ormur og Olli Ofnæmisvaldur. „Ojojojojoj!“ Sveppi: Munurinn á okkur Ladda er að hann fer í gervi, en ég er bara Sveppi og leik engan annan en sjálfan mig. Það er dálítið sjar- merandi og fólki finnst skemmti- legt að sjá mann viðurkenna að maður sé stundum vitlaus. Mér finnst í lagi að vera heimskur í einu en kannski ágætur í öðru. Er ekkert feiminn við það. Þórdís: En þú er svolítið feiminn, Laddi? Laddi: Já, en aldrei í karakter. Ég er feiminn að eðlisfari, þótt það hafi elst aðeins af mér. Þórdís: Er gaman að vera frægur fyrir grín eða er það vítahringur? Sveppi: Það er kannski ekki staða sem maður sóttist brjálæðislega eftir, að vera eltur um allt af brjáluðum krökkum, en ég hef vissulega kallað þetta yfir mig sjálfur. Að mínu mati er starf grínistans það skemmtilegasta í heimi, um leið og það er gríðarleg vinna. Slíkt hentar mér vel og ég elska að mæta í vinnuna til að hugsa um eitthvað asnalegt að gera, og því asnalegra, því ánægðari verður yfirmaðurinn. Mér veitist auðvelt að fá hug- myndir, það er nóg að fara í Garð- heima og sjá garðbrúsa til að hugsa um að vökva Pétur, en kannski er best að hafa sem minnstan heila í þetta svo hann flækist ekki fyrir. Laddi: Það var einhvern tímann sagt að maður yrði að vera nógu klikkaður, því annars væri ekkert varið í þetta. Það hefur enginn gaman að venjulegum manni í þessum bransa. Tár í augum trúðsins Þórdís: Eruð þið skemmtilegir heima hjá ykkur? Laddi: Ég er alltaf grautfúll heima en veit ekki með Sveppa. Einhvers staðar verður maður að taka frí frá gríninu, en í alvöru er ég alltaf í góðu skapi og örugglega Sveppi líka. Sveppi: Oft er talað um tár í auga trúðsins og að undir grímunni sé maður þunglyndur, en heima er maður bara eðlilegur, spjallar, hlær og grínast. Laddi: Auðvitað upplifir maður stundum spennufall og fær tár í auga, en það er þá komið í samt lag daginn eftir. Þórdís: Er reiknað með að þið reytið af ykkur brandarana hvar sem þið komið, utan sviðsins? Laddi: Já, það er oft þannig og fer dálítið í taugarnar á manni. Undir slíkum kringumstæðum gerir maður allt til að vera ekki fyndinn og berst við að vera al- varlegur og helst smá fúll líka. Sveppi: Iss, það getur verið tómt vesen að vera fyndinn, og kannski vítahringur má segja. Laddi: Maður heyrir oft utan af sér að því fylgi rosaleg spenna þegar maður er væntanlegur í heimsókn og menn búist við miklu. Sveppi: En þó ekki í fjölskyld- unni? Er það ekki búið, Laddi? Er fólk ekki hætt að biðja þig að taka Saxa og koma með Dengsa? Laddi: Sko, krakkar suða kannski ekki lengur eins mikið í manni, en þeir koma og banka upp á undir því yfirskini að vera að safna flöskum eða dóti á tombólu, en biðja þá um eigin- handaráritanir. Sveppi: Já, þetta dettur inn hjá mér líka, en truflar mig ekkert. Ég hef gaman af því. Laddi: Já, ég segi það sama, ef krakkarnir eru kurteisir. Myndlistin bíður Þórdís: Hvenær urðu þið þess fyrst varir að þið vektuð hlátur með fólki? Laddi: Það hefur verið hlegið að mér síðan ég man eftir mér. Ég var alltaf með kvöldskemmtun fyrir mömmu og bróður minn uppi á borði öll kvöld og sýndi ballett, en mamma hélt að ég yrði frægur dansari. Hún fattaði ekki að ballettinn var grín. Í skóla var ég alltaf með sprell og geiflur, og væri ég kallaður upp á töflu var það ekki Laddi sem fór heldur einhver karakter, svo ég var rekinn rakleiðis í sætið aftur. Sveppi: Ég var bara pjakkur þegar ég gerði mér grein fyrir því að fólk hló að mér, bæði í at- höfnum og orðum. Í fótbolta fékk ég aldrei medalíur fyrir að vera góður spilari, en alltaf fyrir að vera vinsælasti keppandinn. Ég tók þetta að mér; að standa fyrir framan aðra, draga buxur upp á bumbu og setja sokka á eyrun. Þórdís: Svo að grínleiðin hefur ekki komið á óvart? Laddi: Ég ætlaði að verða smiður eins og pabbi eða myndlistar- maður en endaði í hljómsveitinni Föxum sem söngvari og trommu- leikari. Fór svo að vinna í Kassa- gerðinni þar sem yfirmaður í Sjónvarpinu sá skopmyndir mín- ar af vinnufélögunum og vildi fá mig í vinnu, en Halli bróðir vann þar sem leikmunavörður. Maður var náttúrlega alltaf með djöfuls fíflalæti og 1970 fékk Flosi Ólafsson mig í áramótaskaupið og um svipað leyti byrjuðum við Halli á Glámi og Skrámi. En mig langar að mála meira og mun gera það í ellinni. Það er einn bú- inn að panta sýningu hjá mér til að ýta mér í þetta af meiri al- vöru, og ég hef samþykkt að gera það fljótlega. Sveppi: Ég hafði alltaf ætlað að ná langt á þessu sviði, en stefndi ekkert eftir höfnunina frá Leik- listarskólanum og fannst fínt að vinna mikið á grænmetislager og í handlangi. Ég beið eftir tæki- færum en gerði mér ekki grein fyrir því að þurfa að gera eitt- hvað sjálfur. Það voru svo Simmi og Jói sem báðu mig að labba hringinn í samstarfi við útvarps- stöðina Mónó og þá fór þetta að- eins að rúlla. Gönguferðin fékk mig til að hugsa og ég varð kröfuharður. Ég vildi verða svo þekktur að ég gæti unnið við þetta í fullu starfi, í stað þess að vera áfram í grænmetinu og kannski í gríni um helgar. Fyndnir hrottar Þórdís: Húmor snýst um að gera grín að sjálfum sér og öðrum, en nýtið þið stundum húmorinn til góðs? Laddi: Já, miðað við það sem mað- ur heyrir hjá ókunnugu fólki sem faðmar mann og þakkar fyrir öll árin sem maður hefur verið heim- ilisvinur inni í stofu. Þá finnur maður að þetta er ekki bara grín, heldur vekur góðar tilfinningar og væntumþykju hjá fólki. Slíkt veitir manni innblástur og mér finnst það hjálpa þræl- mikið. Fólk kemur með hugmynd- ir, hefur áhuga og vill horfa, og maður tekur mark á því. Einn kom upp að mér og sagði brandara. Þegar hann var búinn sagði hann: „Þú mátt nota hann, Laddi.“ Þá var þetta brandari eft- ir sjálfan mig, sem hann hafði heyrt hjá öðrum. Ég þakkaði bara fyrir. Þórdís: Langar ykkur í alvarlegri hlutverk? Sveppi: Ég er sáttur við hlutverk grínistans, en mundi íhuga alvar- legri hlutverk ef mér byðist, bara til að prófa. Það er gaman að takast á við allar hliðar leiklistar- innar. Laddi: Ég væri alveg til í að prófa að vera hrotti. Ef einhver vill gera bíómynd með okkur þar sem við erum algjörir viðbjóðir og hrottar, þá erum við Sveppi til. Þórdís: En hver er fyndnastur? Sveppi: Mér fannst Laddi alltaf fyndnastur á sínum tíma. Laddi: Já, mér fannst það líka. ■ GRÍNISTAR AF GUÐS NÁÐ Væntumþykja og aðdáun landsmanna á þessum tveimur húmoristum er takmarkalaus, enda hafa báðir verið rausnarlegir á hlátursgasið, hver með sínum hætti. Laddi er maður margra karaktera, á meðan Sveppi leikur engan nema sjálfan sig undir nafni. Saman stíga þessir hláturvaldar á svið í fjölskylduleikritinu Kalla á þakinu, og upp- skera þúsund hlátursköst að launum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.