Fréttablaðið - 23.04.2005, Side 44
SJÓNARHORN
23. apríl 2005 LAUGARDAGUR16
Vissir þú ...
...að elsti látbragðsleikari í heimi er
hinn bandaríski Arnold Jones sem
er fæddur 13. janúar árið 1914?
...að hæsta teygjustökk í heimi
stökk Curtis Rivers frá Bretlandi
5. maí árið 2002 en hann stökk
úr loftbelg í 4.632 metra hæð?
...að elsta stjarna sem uppgötvuð
hefur verið til þessa er stjarna utan
sólkerfisins í hnattlaga klasanum M4,
um 5.600 ljósár frá jörðu, en talið er
að stjarnan sé tíu milljarða ára?
...að Reinhold Messner frá Ítalíu
var fyrstur til að klífa Everest-fjall
einn en hann komst á tindinn 20.
ágúst árið 1980?
...að hraðasti hafstraumur í heimi
er Sómalí-straumurinn í norðan-
verðu Indlandshafi en hann nær
12,8 kílómetra hraða á monsún-
tímabilinu?
...að Sólbríinn verpir minnstu eggjum
allra fugla á Jamaíka og tveim nær-
liggjandi eyjum en tvö slík egg
mældust tæplega tíu millimetrar og
vógu aðeins 0,365 og 0,375 grömm?
...að stærsta drekafluga heims er
Megaloprepus caeruleata frá Mið-
og Suður-Ameríku og getur orðið
allt að 120 millimetra löng og
vænghafið allt að 190 millimetrar?
...að Alþjóðaráð Rauða krossins
sem stofnað var í Genf 1893 hefur
fengið friðarverðlaun Nóbels þrí-
vegis, árið 1917, 1944 og 1963?
...að mesta atvinnuleysi í heimi,
sjötíu prósent, er í Líberíu.
...að hvergi í heiminum er borðað
jafn mikið af bökuðum baunum
og í Bretlandi en ársneysla á mann
er 5,3 kíló þar í landi?
...að stærsta leikvangsþak er yfir
Ólympíuleikvanginum í München í
Þýskalandi en það nær yfir 85.000
fermetra svæði?
Erum að taka upp nýja sendingu
79.900
59.900
Klassískur gítar
frá 10.90022.900
Stillitæki
MAPEX trommusett
með stöndum og diskum
ÁLFTIN BREIÐIR ÚT VÆNGI SÍNA OG SÝNIR ÖNDUNUM HVER RÆÐUR Á REYKJAVÍKURTJÖRN.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N