Fréttablaðið - 23.04.2005, Page 45

Fréttablaðið - 23.04.2005, Page 45
LAUGARDAGUR 23. apríl 2005 AF HVERJU VERÐUR OLÍU- BRÁK Á VATNI REGNBOGALIT- UÐ? Svar: Olía er eðlisléttari en vatn og leysist ekki upp í því. Þess vegna flýtur olían á vatni í flekkj- um og myndar þunnar himnur eða brákir. Seigja í olíunni og yfir- borðsspenna ráða þykkt brákar- innar en hún er ekki alveg jöfn og filman þynnist almennt til jaðr- anna. Víxlun ljósbylgna Ljós speglast bæði af efra og neðra borði olíuhimnunnar. Þessir tveir spegluðu geislar sameinast í gegnum fyrirbæri sem við köllum víxlun eða samliðun en allar bylgjur sýna víxlunareiginleika. Þar sem öldutoppar tveggja bylgna mætast fáum við styrkj- andi víxlun bylgnanna og stórt út- slag, en þar sem öldutoppur ann- arrar bylgjunnar mætir öldudal hinnar fáum við eyðandi víxlun og útslagið verður lítið eða ekkert. Þykkt olíufilmunnar ræður hvort víxlunin verður styrkjandi eða eyðandi Hvítt ljós er samsett af öldu- lengdum frá öllum regnbogans lit- um. Þegar spegluðu geislarnir tveir af efra og neðra borði olíu- filmunnar mætast ræðst það af þykkt filmunnar hvaða öldulengd- ir gefa styrkjandi samliðun og þar með sterkan speglaðan geisla. Þar sem þykkt filmunnar er oddatölu- margfeldi af fjórðungi öldulengd- ar fæst sterk speglun, en veik speglun fæst þar sem þykktin er heilt margfeldi af hálfri öldu- lengd. Á olíubrák geta komið fleiri litir en í regnboga Öldulengd rauðs ljóss er í kringum 650 nm í lofti en nálægt 432 nm í olíunni. Þannig fæst sterk rauð speglun þar sem þykkt filmunnar er 108 nm, 324 nm, 540 nm og svo framvegis, en engin eða aðeins dauf speglun þar sem þykktin er 215 nm, 430 nm, 645 nm og svo framvegis. Á þeim stað þar sem speglun rauða geislans er dauf fer hann í gegnum olíu- filmuna niður í vatnið. Sami stað- ur getur hins vegar gefið ágæt skilyrði fyrir speglun litar af annarri öldulengd. Litaáferð olíu- filmunnar breytist því með þykkt- inni. Fram geta komið fleiri litir en við sjáum í regnboganum því skilyrðinu um styrkjandi samlið- un getur verið fullnægt fyrir nokkrar öldulengdir í einu og við fáum speglun af litablöndu. Lögmál Snells og brotastuðlar Þykkar filmur geta einnig sýnt breytilegt litamynstur með breytilegu sjónarhorni. Þetta gerist því leið geislans í gegnum olíufilmuna breytist örlítið með innfallshorni. Þessum hrifum er lýst með lögmáli Snells sem lýsir stefnubreytingu geisla sem fer úr einu efni í annað. Efnin eru einkennd með svonefndum brot- stuðlum n. Brotstuðull fyrir loft er 1,0, fyrir vatn 1,33 og fyrir olíu er hann á bilinu 1,4 til 1,6. Styrkur speglunar frá hverjum skilfleti eykst með vaxandi hlut- falli brotstuðla. Hægt er að lesa meira um ljósbylgjur og liti á Vísindavefn- um, til dæmis í svörum við spurningunum hvers vegna eru plöntur grænar en ekki fjólublá- ar eða svartar, hvers vegna er sólin gul og grasið grænt, hvað eru litir og hvernig myndast regnboginn? Ari Ólafsson, dósent í eðlis- fræði við HÍ. Vísindavefurinn fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Á lista Samræmdrar vefmælingar fyrir síðustu viku var Vísindavefurinn í 10 sæti yfir mest sóttu vefmiðlana. Fimm vinsælustu svör þeirrar viku voru þessi: Af hverju eru ljóskur taldar heimskar, hvað merkir holið í Hollandi, hvað éta górillur (fyrir utan banana), er álft og svanur sami fuglinn, og hver var Afródíta? VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Á OLÍUBRÁK GETA KOMIÐ FLEIRI LITIR EN Í REGNBOGA Olía er eðlisléttari en vatn og leysist ekki upp í því. Þess vegna flýtur olían á vatni í flekkjum og myndar þunnar himnur eða brákir. Regnbogalituð olía HVAÐ MERKIR ORÐIÐ BISKUP UPPHAFLEGA OG HVERJAR ERU ORÐSIFJAR ÞESS? Svar: Íslenska orðið biskup er líklegast fengið úr fornensku. Þar kemur fyrir orðið biscop eða bisceop í sömu merkingu. Það kemur líka fyrir í latínu (episcop- us) en upphaflega er það komið úr forngrísku, epískopos. Það orð er dregið af grískri sögn sem þýðir: 'horfa á', 'skoða', 'fylgjast með' eða 'líta eftir'. Hún er aftur á móti samsett úr sögn sem merkir: 'sjá', 'virða fyrir sér', 'athuga' eða líta eftir, og forsetningunni epi- sem í samsetningum þýðir: 'upp(i) á', 'yfir', 'til', 'gagnvart' eða 'eftir'. Biskup er eftirlitsmaður Upphaflega merkti biskup þess vegna 'eftirlitsmaður' eða 'tilsjón- armaður'. Í frumkristni var það notað um nokkurs konar yfirmann í söfnuðinum sem hafði sérstakt vald um helgisiði, skírnir, altar- issakramenti, vígslur, fyrirgefn- ingu synda, fjármál og málamiðl- anir í deilum. Uppruni embættis- ins er óviss, en á annarri öld hafði það fest sig í sessi, ásamt embætt- um presta og djákna. Eftir því sem kirkjunni óx fiskur um hrygg þurfti meira skipulag svo til varð stigveldi þar sem prestar voru í forustu safnaða, höfðu djákna sér til aðstoðar og voru undir eftirliti biskupa sem höfðu marga söfnuði í sinni umsjá. Upp af þessu varð svo til enn flóknara skipulag þeg- ar leið á miðaldir. Biskupar sem eftirmenn postula Nokkrar kirkjudeildir, sérlega rómversk-kaþólska kirkjan og gríska rétttrúnaðarkirkjan, telja að biskupar séu eftirmenn postul- anna og hafi vald sitt í krafti þess. Við siðaskiptin höfnuðu margir þessari hugmynd enda hafa flest- ar mótmælendakirkjur enga bisk- upa. Lúthersku kirkjurnar á Norð- urlöndum og í Þýskalandi hafa þó haldið í biskupsembættið en fæst- ar þeirra telja biskupana arftaka postulanna. Stefán Jónsson, nemi í heim- speki.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.